Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Valur Páll Eiríksson skrifar 10. september 2026 22:30 Leonie Fiebich var stigahæst í þýska landsliðinu sem fer í undanúrslit á heimavelli. EPA/FILIP SINGER Evrópa á þrjá fulltrúa í undanúrslitum á HM kvenna í körfubolta eftir að hafa átt engan fyrir fjórum árum. Átta liða úrslitin fóru fram í Berlín í dag.
Átta liða úrslitin fóru öll fram í íþróttahöllinni í Berlín í dag. Leikar hófust með leik Bandaríkjanna við Ungverjaland. Þar voru þær bandarísku í engum vandræðum og leiddu 36-12 eftir fyrsta leikhluta. Það var merki um það sem koma skyldi og sigur ríkjandi heimsmeistara síðustu fjögurra móta aldrei í hættu. Lokatölur 108-56 Bandaríkjunum í vil. Þær bandarísku gátu dreif álaginu vel fyrir komandi átök í undanúrslitunum þar sem allir leikmenn hópsins spiluðu yfir tíu mínútur og Caitlin Clark sú eina sem spilaði meira en 20 mínútur. Það kom í ljós í lokaleik dagsins að Spánn mun mæta þeim bandarísku í undanúrslitunum. Spánn gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir ríkjandi bronshafa Ástralíu 89-66. Spánn mætir því gríðarsterku bandarísku liði í undanúrslitum á laugardaginn kemur. Í hinu undanúrslitaeinvíginu er slagur Evrópuliða. Frakkland gerði sér lítið fyrir og rúllaði yfir silfurlið síðasta móts, Kína. Frábær annar leikhluti lagði grunninn að 90-61 sigri þeirra frönsku sem hefndu fyrir að hafa fallið úr keppni fyrir Kína í 8-liða úrslitum á HM fyrir fjórum árum. Heimakonur í þýska landsliðinu verða andstæðingar þeirra frönsku í undanírslitum. Spennan var litlu meiri í leik þeirra þýsku við Belgíu. Þýskaland leiddi með þremur stigum eftir fyrsta leikhlutann og byggði ofan á það forskot hægt og bítandi til að fagna 19 stiga sigri, 93-74. Eftir að hafa átt engan fulltrúa á meðal fjögurra bestu liða heims í undanúrslitum á síðasta móti eru þrjú í ár. Bæði silfur- og bronslið síðasta móts voru slegin út af Evrópuþjóðum í dag.
Mest lesið Heimir gáttaður á fyrstu spurningu: „Aftur? Allt í lagi…“ Fótbolti Valskonur fallnar í fyrsta sinn Íslenski boltinn Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ Enski boltinn Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Öskraði á sjálfan sig til að vekja sig Sport Ýtti við Jesus og fagnaði eins og Ronaldo Fótbolti Þurfum að vera óþolandi eins og Aron og Gylfi Fótbolti „Menn mega ekki vera of miklir töffarar“ Fótbolti Daníel Tristan kallaður inn í A-landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Sjá meira
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn
Uppgjörið: Víkingur R - Þór/KA 0-2 | Björguðu sér og sendu bæði Víking og Val niður um deild Íslenski boltinn