Milljarðaútflæði og áfallið hjá Oculis minnkar slagkraft hlutabréfasjóða
Einn helsti hlutabréfasjóður Íslandssjóða, sem var með stórt veðmál á Oculis, hefur séð eignir sínar skreppa saman um rúmlega fjörutíu prósent það sem af er ári samhliða miklu útflæði og snarpri gengislækkun. Innlendir hlutabréfasjóðir sem beita virkri stýringu hafa allir átt undir högg að sækja undanfarið en samanlögð afkoma sjóðastýringafélaga stóð nánast í stað á fyrri árshelmingi.
Tengdar fréttir
Minni fjármálafyrirtæki draga saman seglin við erfiðar markaðsaðstæður
Smærri fjármálafyrirtæki, meðal annars Fossar og Acro, leita nú leiða til hagræðingar samhliða erfiðu árferði á verbréfamörkuðum og hafa þurft að segja upp starfsfólki á undanförnum dögum. Velta á hlutabréfamarkaði skrapp saman um nærri fimmtíu prósent á fyrri árshelmingi.
Viðsnúningur í rekstri Akta með auknum eignum í stýringu
Eftir erfiðleika í rekstri undanfarin ár samhliða verðlækkunum á mörkuðum og útflæði úr sjóðum varð töluverður viðsnúningur í afkomu Akta á fyrri árshelmingi þegar félagið skilaði yfir áttatíu milljóna hagnaði. Framkvæmdastjóri Akta og stærsti hluthafinn seldi nýlega meira en þriðjunginn af öllum hlut sínum í félaginu.
Seldu í hlutabréfasjóðum fyrir um níu milljarða á fyrri árshelmingi
Fjárfestar voru að selja í hlutabréfasjóðum í nokkuð stórum stíl á fyrri árshelmingi, eða fyrir samanlagt um níu milljarða, sem eru nokkur umskipti frá sama tíma fyrir ári þegar þeir voru að bæta við sig.
Félögin flest vanmetin á markaði sem einkennist af biðstöðu og óvissu
Lítil velta, skortur á trú meðal fjárfesta og vaxandi óvissa í alþjóðamálum heldur áfram að setja svip sinn á markaði, að sögn hlutabréfagreinenda, sem segir ekki koma á óvart að almenningur hafi nánast gefist upp á hlutabréfafjárfestingum. Mikill meirihluti skráðra félaga eru samt enn talin verulega undirverðlögð, ekki hvað síst Icelandair.