Talinn hafa geymt lík foreldra sinna í frysti í þrjátíu ár Kjartan Kjartansson skrifar 14. september 2026 09:58 Frystikisturnar tvær sem maðurinn notaði til þess að geyma lík foreldra sinna í Turku í Finnlandi. Lögreglan í Suðvestur-Finnlandi. Rúmlega áttræður karlmaður í Turku í Finnlandi sætir ákæru fyrir að hafa geymt lík foreldra sinna í frystikistum í rúmlega þrjátíu ár. Maðurinn sagðist hafa gert það til þess að virða ósk föður síns.
Málið kom fyrst upp þegar starfsmenn í kirkjugarði í Turku, hafnarborg á suðvesturströnd Finnlands, tóku eftir manninum og yngri bróður hans þar sem þeir grófu upp gröf fjölskyldunnar um hábjartan dag. Bræðurnir sögðust aðeins hafa verið að snyrta grafirnar til og að rétta út legsteinunum. Í kjölfarið fundu lögreglumenn lík foreldra þeirra í tveimur frystikistum. Talið er að foreldrarnir hafi látist af náttúrulegum sökum árið 1994 og 1995, að því er segir í frétt finnska ríkisútvarpsins. Réttarhöld yfir eldri bróðurnum hófust á föstudag. Hann er ákærður fyrir að spilla gröfum. Maðurinn er menntaður í læknir og skráður stjórnandi fyrirtækis sem sinnir útfararþjónustu. Fyrirtækið virðist þó ekki hafa verið starfandi. Líkin fundust í húsnæði fyrirtækisins. Slökkt var á öðrum frystinum þegar lögregla gerði húsleit. Lögreglan sagði þá að ekki væri ljóst hversu lengi slökkt hefði verið á frystinum. Hann heldur því fram að enginn glæpur hafi verið framinn enda hafi hann aðeins orðið við óskum föður síns. Hann hefði þurrfryst lík foreldranna með aðferð sem finnska ríkisútvarpið lýsir sem tilraunakenndri. Hún gengur út á að lík manns skuli fryst með fljótandi köfnunarefni. Það sé svo brotið niður í lífrænt duft sem hægt sé að nota sem áburð.
Finnland Erlend sakamál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Erlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira