Hægt hefði verið koma í veg fyrir dauðsföll barna á sjúkrahúsi Letby Kjartan Kjartansson skrifar 15. september 2026 13:41 Skýrsla Thirlwall dómara er harðorð í garð stjórnenda sjúkrahússins í Liverpool þar sem börn létust á nýburadeild. AP/Eleanor Barlow/PA Niðurstaða dómara sem rannsakaði aðstæður á sjúkrahúsi þar sem hjúkrunarfræðingur var sakfelldur fyrir að myrða ungbörn er að hægt hefði verið að koma í veg fyrir nokkur dauðsfallanna. Stjórnendur sjúkrahússins hafi brugðist algerlega.
Opinber rannsókn á dauðsföllum barna á Sjúkrahúsinu greifynjunnar af Chester á Norðvestur-Englandi var leidd af Thirlwall dómara. Niðurstaða hennar er að sjúkrahúsið hafi brugðist algerlega í að vernda börn á nýburadeild. Lucy Letby, hjúkrunarfræðingur á nýburadeildinni, var sakfelld fyrir að valda dauða sjö nýbura og reyna að drepa sjö til viðbótar frá 2015 til 2026. Í skýrslu dómarans segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir dauða þriggja barna ef Letby hefði verið vikið frá störfum fyrr. „Skýrslan mín lýsir vanvirkum stjórnendnum og stjórn, gjá á milli leiðtoga sjúkrahússins og klínískra starfsmanna [...],“ sagði Thirlwall þegar hún kynnti skýrsluna í Liverpool í dag. Stjórnendur sjúkrahússins hefðu ekki virst hafa skilið að þeir þyrftu að grípa til varúðarráðstafana þegar starfsmaður lá undir grun um að skaða börn vísvitanda. Ekki þyrfti að liggja fyrir fullvisa um sekt hans áður en gripið væri til aðgerða, að því er segir í frétt The Guardian um skýrsluna. Fékk ekki að taka þátt í rannsókninni Letby hefur alla tíð haldið fram sakleysi sínu. Sönnunargögnin sem voru notuð til þess að sakfella hana voru óbein. Til dæmis studdist lögregla við greiningu á vaktaáætlun starfsmanna nýburadeildarinnar til þess að sýna fylgni á milli dauðsfallanna og hvenær Letby væri á vakt. Tölfræðingar hafa gert alvarlegar athugasemdir við þá nálgun. Þá hafa sérfræðingar gert athugasemdir við hvernig dánarorsök barnanna var ákvörðuð. David Davis, hátt settur þingmaður Íhaldsflokksins og fyrrverandi ráðherra, hefur lýst máli Letby sem „augljósu réttarmorði“. Lögmaður Letby gagnrýnir að henni hafi ekki verið boðið að taka þátt í rannsókn dómarans. Þess vegna hefði skýrsluhöfundur lagt upp á röngum forsendum og að það litaði niðurstöðurnar. Sagðist hann taka undir tillögur dómarans um að nauðsynlegt væri að koma upp öryggismyndavélum á öllum nýburadeildum og við vöggur barna. „Þetta hefði haft veruleg áhrif á niðurstöður réttarhaldanna og við værum ekki hér í dag með saklausa konu á bak við lás og slá fyrir glæpi sem hún framdi ekki,“ sagði Mark McDonald, lögmaður Letby, sem freistar þess að fá mál hennar tekið upp á ný. Álit sérfræðinga sem verjendur Letby fékk til að skoða málið var að ekkert benti til þess að börnin hefðu verið myrt. Þau hefðu þess í stað látist af náttúrulegum orsökum eða vegna vanrækslu á sjúkrahúsinu. Thirlwall sagðist sjálf ekki hafa tekið tillit til efasemda um sekt Letby vegna þess að áfrýjunardómstóll hefði hafnað áfrýjun hennar á afgerandi hátt. Allt tal um slíkt yki aðeins á þjáningar foreldra barnanna sem hefðu mátt reyna nóg að mati dómarans.
Mál Lucy Letby Bretland Erlend sakamál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Innlent „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Bein útsending: Hildur svarar fyrir uppsagnir Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent Fleiri fréttir Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Sjá meira