Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Henry Birgir Gunnarsson skrifar 16. september 2026 11:19 Kjartan Atli verður aftur mættur á hliðarlínuna hjá Álftnesingum í vetur. vísir/Anton Kjartan Atli Kjartansson er gestur dagsins í Besta sætinu en hann er kominn aftur til körfuboltaliðs Álftaness en nú í nýju hlutverki.
Kjartan Atli tók við Álftaness í 1. deildinni árið 2022 og fór beint upp með liðið. Á næstu tveimur árum komst Álftanes í undanúrslit í bikar og svo í undanúrslit í Íslandsmótinu. Það gaf á bátinn á síðasta tímabili og Kjartan steig frá borði rétt fyrir jól. Hann var þó ekki lengi frá liðinu því Kjartan er kominn aftur á Nesið og að þessu sinni sem aðstoðarþjálfari Baldurs Ragnarssonar sem tók við liðinu í sumar. „Baldur bara bað mig um að vera með sér. Ég var ekkert hissa er ég fékk símtalið,“ segir Kjartan Atli. „Það verður oft vinskapur og félagsskapur milli þjálfara í deildinni. Það skilur enginn hvað þjálfarar ganga í gegnum nema aðrir þjálfarar. Ég á mikinn vinskap við fólkið í baklandinu og í kringum félagið. Leikmannahópurinn er skemmtilegur og þetta er bara skemmtilegt. Mér fannst þetta vera góð hugmynd.“ Ég vildi vera á hliðarlínunni Kjartan hefur ekki mikla reynslu af því að vera aðstoðarþjálfari en það hentar honum ágætlega í dag. „Ég var aðstoðarþjálfari hjá Hrafni Kristjánssyni með Stjörnuna árið 2014-15. Svo er ég með Körfuboltakvöld í átta ár áður en ég tek við Álftanesi. Ég vildi vera á hliðarlínunni. Er maður þjálfar í deildinni byggir maður upp ákveðna sérþekkingu. Ég vildi vera einhvers staðar til hliðar. Mín aðalvinna er hjá Sýn og svo er ég orðinn bæjarfulltrúi í Garðabæ. Ég hafði því hvorki tíma né þrek til að vera aðalþjálfari,“ segir Kjartan en er ekkert skrítið, eða erfitt, að fara úr því að vera aðalþjálfari liðs í að vera aðstoðarþjálfari þess? „Það hefur ekki verið vesen. Ég er líka í algjöru aukahlutverki. Ég er til hliðar og hjálpa þegar þarf. Þetta er bara skemmtilegt.“ Kjartan ræðir þessa endurkomu sína á Álftanesið ítarlegar í spjallinu og hann ræðir einnig íslenska boltann þar sem hann er eðli málsins samkvæmt vel inn í öllum málum. Besta sætið er hlaðvarp íþróttadeildar Sýnar og er aðgengilegt á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Besta sætið Körfubolti Bónus-deild karla UMF Álftanes Mest lesið Strákarnir á Saga Class en stelpurnar aftar í vélinni Sport Biðjast afsökunar eftir að keppandi kúkaði á sig Sport Markvörður KR fór ítrekað fram: „Alveg stjörnubilað að horfa á þetta“ Íslenski boltinn Auknar líkur á að Ísland endi í neðstu deild Fótbolti Mbappé og Vinicius vildu ekki sýna Ceuta stuðning Fótbolti Arnar kynnti nýjasta hópinn og mætti í spjall Fótbolti Íslendingaliðið vann bikarinn með tvo ólöglega Handbolti Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Körfubolti Sjáðu svakalega sleggju Szoboszlai Enski boltinn „Í raun og veru ætti ég ekki að þola hann“ Fótbolti Fleiri fréttir Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Óíþróttamannslega villan heyrir sögunni til og KKÍ auglýsir eftir nöfnum á nýju villurnar Berglind Katla fer í skóla í New York Löng bönn, risa sektir og bannaðir frá nýliðavalinu Sindri fær sænskan landsliðsmann Ísland - Tyrkland 73-110 | Tyrkirnir reyndust of stór biti fyrir strákana okkar Uppgjörið: Serbía - Ísland 102-73 | Mættu með læti en máttu sín lítils undir lokin „Ég vona að ég þurfi ekki að dekka hann“ „Ef enginn í NBA-deildinni getur stöðvað hann þá efast ég um að við vefjumst fyrir honum“ Jón Arnór byrjar að þjálfa Grindavík mokar inn verðlaunum Stólarnir gáfust upp á Adaway og semja við Murkey Svali hættur sem formaður en stutt í val á arftaka „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Sjá meira