„Við höldum í fjallarómantíkina“ Jakob Bjarnar skrifar 17. september 2026 20:30 Margir eiga góðar minningar úr Skagsfjörðsskála í Langadal frá því hann var reistur árið 1954. Vísir/Vilhelm Skagfjörðsskáli í Langadal í Þórsmörk hefur verið jafnaður við jörðu. Eftir 72 ára sögu hefur Ferðafélag Íslands ákveðið að blása í herlúðra og reisa nýjan þar sem ferðalangar í náttúruparadísinni geta sungið saman undir gítarspili og hallað höfði yfir nóttina. „
Já, þetta eru ansi miklar framkvæmdir,“ segir Stefán Jökull Jakobsson, yfirskálavörður Ferðafélags Íslands, en hann er yfir verkinu. Stefán Jökull segir margar minningar tengdar gamla skálanum sem nú er verið að rífa.Vísir/Vilhelm Stefán Jökull segir fyrsta hluta gamla Skagfjörðsskála hafa verið byggðan 1954 og svo hafi verið bætt við hann á áttunda áratugnum. Nú hafi hins vegar verið kominn tími til að endurnýja, enda býsna margt orðið gamalt og lúið í skálanum. Ótrúlega margir Íslendingar hafa gist í skálanum.Vísir/Vilhelm „Við sáum í hendi okkar að betra væri hreinlega að fjarlægja gamla húsið og byggja nýtt sem þó mun standa á gamla sökklinum,“ segir Stefán Jökull fjallbrattur. Hann segir að ný húsakynni muni mæta betur nútímakröfum um stærð á rúmum, betra skipulagi og betri orkunýtingu. Þau fengu rafmagn inn í Langadal fyrir fjórum árum og þá sé betra að hafa almennilega einangrun. Menn láta hendur standa fram úr ermum við að rífa gamla skálann en hluti hans var reistur 1954.Vísir/Vilhelm En eru ekki fjölmargir fjallakofarómantíkerarnir sem sjá eftir gamla húsinu? „Jú, jú, það er alltaf heilmikil tilfinning sem fylgir því þegar maður er að fjarlægja gamalt hús. En nýju húsi munu fylgja endurnýjaðar sögur. Kostnaður við endurbygginguna slagar hátt í 400 milljónir.Vísir/Vilhelm Það er gríðarlega stór hluti íslensku þjóðarinnar sem á héðan góðar minningar. Þær gleymast ekki þótt komið sé nýtt hús og nýjar minningar verða til í nýju húsi. Við náum engan veginn að fjarlægja söguna, þótt húsið sé ríkur þáttur í því. Öll stemningin sem hefur lifað hér í Þórsmörk síðan félagið byrjaði að starfa hér mun lifa áfram.“ Stefán Jökull segir að foreldrar hans hafi kynnst í Skagfjörðsskála og sjálfur hafi hann hitt sína konu þar.Vísir/Vilhelm Stefán Jökull segist hafa átt í margvíslegum rökræðum við fjölmarga um þetta efni; mismunandi tilfinningar sem fólk leggur í húsið. „Foreldrar mínir kynntust hérna í Skagfjörðsskála, ég kynntist konunni minni hér í Skagfjörðsskála, ég hef undanfarin 14 ár verið að halda þessu húsi við eins og gamalt hús leyfir og þannig má áfram telja. Margar af mínum tilfinningum tengjast þessu húsi en ég horfi til þessa verks með gleði,“ segir yfirskálavörðurinn. Margir eiga góðar minningar úr Skagsfjörðsskála í Langadal frá því hann var reistur árið 1954.Vísir/Vilhelm Við verkið verður haldið í fyrri byggingarstíl og það verður ekki stórkostleg ásýndarbreyting á skálanum í Langadal. Hann breikkar hins vegar örlítið og hækkar auk þess sem sett verður upp nýtt og stærra anddyri. Einn galli við húsið hefur verið sá að fólk hefur átt í erfiðleikum með að taka af sér blaut klæði án þess að allt verði blautt innandyra. Kostnaður við þessa aðgerð hleypur á nærri 400 milljónum króna þegar uppi verður staðið, að sögn Stefáns Jökuls. Vaskur flokkur er ekkert að tvínóna við verkið.Vísir/Vilhelm En hann vill nefna að verktakar í sveitinni og góðir félagar hafi gert Ferðafélaginu kleift að ráðast í endurbyggingu á Skagfjörðsskála. „SG hús hafa staðið þétt við bakið á okkur en húsið er byggt á Selfossi og verður flutt hingað í einingum. En uppleggið er að halda við skálastemmningunni. Við höldum í fjallarómantíkina.“ Til stendur að vígja nýtt hús 17. júní á næsta ári þegar Ferðafélag Íslands fagnar hundrað ára afmæli sínu.Vísir/Vilhelm Að sögn Stefáns Jökuls er gert ráð fyrir því að verkinu ljúki í endaðan maí. Unnið verði að endurbótum eins lengi og veður leyfi og svo fari menn kátir af stað um leið og vori. „Húsið verður að öllu óbreyttu vígt til notkunar 17. júní á næsta ári – á hundrað ára afmæli félagsins.“ Nýi skálinn verður engin nýtískusmíð heldur haldið í rómantísk element fjallaskála.Vísir/Vilhelm
Ferðalög Rangárþing eystra Þórsmörk Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Líkamsárás í miðbænum Innlent Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Erlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent Fleiri fréttir Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Sjá meira