Treble tryggir tvo milljarða í fjármögnun Samúel Karl Ólason skrifar 17. september 2026 08:31 Finnur Pind, annar stofnanda Treble. Nýsköpunarfyrirtækið Treble Technologies hefur tryggt sér um tvo milljarða króna í fjármögun fyrir þróun hugbúnaðar á sviði hljóðhermunar fyrir gervigreind og snjalltæki. Það er í einföldu máli sagt tækni sem gerir tækjum kleift að heyra, að skynja og skilja hljóð. Til stendur að nota fjármagnið til frekari vaxtar í Bandaríkjunum.
Fjármögnunarlotan var leidd af bandaríska fjárfestingarsjóðnum Paladin Capital Group, með þátttöku KOMPAS VC, Frumtak Ventures og Evrópska nýsköpunarsjóðsins, EIC Fund. Í tilkynningu frá Treble segir að með þessari fjármögnun hafi fjárfestar alls lagt um fimm milljarða króna í Treble frá því fyrirtækið var stofnað af þeim Finni Pind og Jesper Pedersen. Þar segir einnig að fjármögnunin komi í kjölfar vaxandi eftirspurnar frá tækni- og gervgreindarfyrirtækjum eftir lausnum sem geti skilið og nýtt tal og hljóð við raunverulegar aðstæður. „Treble er vel í stakk búið til að nýta þá hröðu þróun sem nú á sér stað í gervigreind, þar sem tal og hljóð gegna sífellt stærra hlutverki. Það á bæði við um snjalltæki og annan búnað, en einnig um gervigreindarlíkön og hugbúnað sem þarf að geta skilið tal og önnur hljóð í umhverfinu,“ segir í tilkynningunni. „Hingað til hefur þróun slíkra lausna að stórum hluta beinst að sjón og snertingu. Eftir því sem tal og hljóð verða mikilvægari þurfa gervigreindarlíkön og tæki hins vegar einnig að geta greint og skilið tal og önnur hljóð við fjölbreyttar og krefjandi aðstæður, meðal annars í bakgrunnshávaða, í rýmum með mismunandi hljóðvist og þegar tæki eru á hreyfingu.“ Fyrirtæki eins og Amazon og Logitech eru að nota tækni Treble. Haft er eftir starfsmanni Amazon að tæknin sé meðal annars notuð við þróun Alexu og Treble geri starfsmönnum tæknirisans kleift að herma eftir ólíkum umhverfum með mikilli nákvæmni. Starfsmenn Treble. „Hljóð og tal eru að verða eitt af grundvallarviðmótum næstu kynslóðar tækja og gervigreindar, en venjulegar aðstæður geta verið mjög krefjandi þegar kemur að hljóði,“ segir dr. Finnur Pind, stofnandi og framkvæmdastjóri Treble Technologies. „Gervigreindarlíkön og tæki sem virka vel á rannsóknarstofu geta átt í erfiðleikum þegar þau mæta bergmáli, bakgrunnshávaða eða ókunnu umhverfi. Treble gerir þróunarteymum kleift að herma slíkar aðstæður og prófa hvernig vörurnar virka við raunverulegar aðstæður.“ Treble Technologies er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem þróar hljóðhermunartækni fyrir vöruþróun og gervigreind. Tækni Treble gerir fyrirtækjum kleift að endurskapa raunverulegar hljóðaðstæður stafrænt, prófa hvernig vörur og gervigreindarlíkön virka við ólíkar aðstæður og búa til gögn fyrir þróun gervigreindar. Félagið var stofnað í Reykjavík af Finni Pind, Jesper Pedersen, Gunnari Pétri Haukssyni og Ingimari Andersen.
Tækni Gervigreind Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira