Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Magnús Jochum Pálsson, Oddur Ævar Gunnarsson og Dóra Júlía Agnarsdóttir skrifa 30. september 2026 07:01 Það er nóg úrval af hámhorfi inn í haustið. Haustið er komið og þá er fátt betra en að fara upp í sófa, hjúfra sig undir teppi og hámhorfa yfir sig af sjónvarpsefni. Það er af nægu að taka á hinum ótal streymisveitum sem eru í boði og hefur Vísir tekið saman góðar þáttaraðir til að glápa á í haust.
Hér að neðan má sjá tuttugu þáttaraðir frá helstu streymisveitunum innanlands og utan þess: Apple TV Widow's Bay Gamanhrollvekjuserían sem allir eru að tala um og fór heim með fjórtán Emmy-verðlaun fyrr í mánuðinum. Á eyjunni Widow's Bay, eða Ekkjuflóa, lifa íbúar með aldagamalli bölvun. Bæjarstjórinn Tom Loftis, leikinn af Matthew Rhys, trúir ekki á bölvunina og þarf að eiga við hjátrúafulla eyjaskeggja, dularfulla atburði og sína eigin fjölskyldu. Slow Horses Spennuþættir sem byggja á Slough House-glæpasögum Micks Herron og fjalla um MI5-teymið Slough House sem samanstendur af mislukkuðum agentum og öðrum ólíkindatólum og er leitt af hinum aldna Jackson Lamb (Gary Oldman). Þættirnir hafa gengið í fimm þáttaraðir, notið gríðarlega vinsælda og fengið einróma lof gagnrýnenda. Sjötta þáttaröðin fór í loftið fyrr í mánuðinum og geta unnendur spæjaraþátta því dundað sér við að hámhorfa á þættina fram eftir hausti. Pluribus Dystópískir sæfæ-þættir úr smiðju Vince Gilligan, sem hefur áður gert Breaking Bad og Better Call Saul, sem fjalla um rithöfundinn Carol Sturka (Rhea Seehorn) sem einangrast þegar vírus umbreytir restinni af mannkyninu í friðsæla hjörð sem reynir að innlima henni og öðrum ónæmum einstaklingum inn í hjörðina. Fyrsta serían hóf göngu sína á Apple TV síðasta haust, rakaði að sér verðlaunum og er von á annarri þáttaröð í nálægri framtíð. Silo Þættir sem gerast í framtíð þar sem heimurinn hefur farist og eina eftirlifandi mannkynið býr í risa-, risa-, risastórum neðanjarðarbyrgjum. Rebecca Ferguson fer með aðalhlutverkið í þessum þáttum sem byggja á bókum Hugh Howey og hafa gengið í þrjár seríur. Ýmsar ráðgátur og fortíð sem kemur áhorfendum á óvart er meðal þess sem gerir Silo að skylduáhorfi. Disney+ Adults Adults eru með bestu sitcom-þáttum síðustu ára og fjalla um fimm vini af þúsaldarkynslóðinni sem búa saman og þurfa að díla við sjálfsköpuð vandræði, erfiðleika fullorðinsáranna og vandræðalegar uppákomur. Fyrsta serían hóf göngu sína vorið 2025, sló í gegn og var önnur serían frumsýnd í lok ágúst. Furious Æsispennandi, óhugnanlegir en kraftmiklir þættir um FBI-fulltrúann Alice Black sem reynir að finna dularfullan og eldkláran kvenkyns raðmorðingja. Báðar konurnar hafa réttlætið að leiðarljósi í sínum störfum en nálgast það vissulega á gjörólíkan máta. Þegar þær hittast loks verða mörkin á milli þess sem er rétt og rangt stöðugt óljósari. Þættirnir sækja meðal annars innblástur í mál Jeffrey Epstein og tækla siðlausar gjörðir hinna moldríku sem virðast komast upp með allt. The Bear Það hafa fáir þættir vakið jafn mikla athygli á síðustu árum og þessir taugatrekkjandi kokkaþættir sem gerast í Chicago og fanga vel spennuna sem fylgir störfum á veitingastöðum. The Bear hverfist um Carmen Berzatto, leikinn af Jeremy Allen White, sem snýr aftur á heimahagana til að reka samlokustað bróður síns eftir sviplegt fráfall. Þættirnir hafa sópað til sín verðlaunum og innihalda gnægð gestaleikara á borð við Jamie Lee Curtis, Olivia Colman og Bob Odenkirk. Secret Life of Mormon Wives Raunveruleikaþættirnir sem allir og amma þeirra eru að tala um. Þættirnir fylgja eftir Taylor Frankie Paul og fleiri mæðrum sem eru mormónatrúar í Utah í Bandaríkjunum. Kynlífshneyksli kom hópnum í heimsfréttirnar og í þáttunum takast vinkonurnar á við trú, hjónaband og frægð, með tilheyrandi árekstrum og dramatík. HBO DTF St. Louis Frumleg og svört kómedía um ástarþríhyrning hjóna og besta vinar þeirra sem öll eiga það sameiginlegt að vera að ganga í gegnum miðaldra-krísu. Dauðsfall, drama, hipphopp-dansar og fleira spennandi blandast inn í söguþráðinn þar sem ekki er allt sem sýnist. Hacks Margverðlaunaðir gamanþættir sem gerast að mestu leyti í Las Vegas, með dramatísku ívafi og svörtum húmor. Ólíkleg vinátta og væntumþykja myndast á milli uppistandsdrottningarinnar Doboruh Vance og grínhöfundarins Avu Daniels. Þegar glæstur ferill Deboruh virðist kominn á endastöð, allavega samkvæmt feðraveldinu, ræður hún hina kaotísku og létt hrokafullu Avu til að bjarga honum. Brösuleg byrjun breytist í marglaga, flókna og fallega vináttu og áhorfendur fylgjast með stöllunum í gegnum fimm seríur. Þættirnir hafa unnið til yfir hundrað verðlauna og þar á meðal hefur Jean Smart, sem leikur Deboruh, unnið Emmy-verðlaun fyrir hlutverk sitt í hverri einustu seríu. Þættirnir eru líka aðgengilegir á Sýn+. The Rehearsal Nathan Fielder er óborganlegur sjónvarpsmaður. Hann skaust upp á frægðarhimininn með allskonar prakkarastrikum í Nathan for You en í The Rehearsal gengur hann skrefinu lengra og lætur reyna á mörk raunveruleika og absúrdisma. Tvær seríur eru komnar út og fer Fielder með fólk í gegnum ýmsar æfingar til að undirbúa sig undir krefjandi raunveruleikann. Netflix Perfect Lie Hollenskir spennuþættir af bestu gerð um hóp miðaldra vina sem eru saman í matarklúbbi. Miklir peningar, glamúr, glæsileiki, kampavín og stöðug partý láta líf vinanna líta út fyrir að vera draumur í dós. Þegar það kviknar í húsi einna hjóna í hópnum kemur fljótt í ljós að undir glansmyndinni leynist ýmislegt óhugnanlegt. Beef 2 Eftir heiftarlegar erjur karaktera Stevens Yeun og Ali Wong í fyrstu þáttaröð Beef tekur nýr leikhópur við keflinu í annarri þáttaröðinni. Nú verður ungt kærustupar vitni að harkalegu rifrildi yfirmanns síns og eiginkonu hans, sem hrindir af stað valdabaráttu og fjárkúgun innan veggja glæsilegs einkaklúbbs. Oscar Isaac, Carey Mulligan, Charles Melton og Cailee Spaeny fara með aðalhlutverkin. Tires Grínþáttunum Tires mætti lýsa sem óþroskuðum frænda The Office (bandarísku útgáfunnar) en þeir fjalla um mann sem erfir dekkjaverkstæði föður síns og þarf að taka á honum stóra sínum til að ná utan um reksturinn. Grínistarnir Shane Gillis og Steve Gerben fara þar fremstir í flokki með fjölda góðra leikara sér til halds og trausts, svo sem Thomas Haden Church og Stavros Halkias. Lítið hefur farið fyrir þáttunum en þeir hafa notið vinsælda á Netflix, þriðja serían kom út í sumar og er þegar búið að tilkynna þá fjórðu. The Beast in Me Hvernig bregstu við þegar milljarðamæringur með vafasama fortíð flytur í hverfið þitt? Claire Danes leikur kvíðinn rithöfund sem fær nýjan nágranna sinn, leikinn af Matther Rhys, á heilann í þessum æsispennandi sálfræðilega trylli. Fyrir leik sinn í þáttunum hlaut Rhys önnur af tveimur Emmy-verðlaunum sínum í ár - hin voru auðvitað fyrir leik í Widow's Bay. Earle Meets World Raunveruleikaþættirnir Earle Meets World fylgja áhrifavaldinum Alix Earle og fjölskyldu hennar á bak við glansmynd samfélagsmiðlanna. Þar fléttast saman frægð, fjölskyldudrama og systkinasambönd. Meðal þeirra sem koma fram eru Alix, systir hennar Ashtin, foreldrar þeirra TJ og Alisa og stjúpmóðirin Ashley. Sýn+ Dagbók lögreglu Dagbók lögreglu er ný leikin gamanþáttaröð innblásin af raunverulegum fréttum úr dagbók lögreglu. Þættirnir hefja göngu sína á Sýn+ og koma margir af þekktustu leikurum landsins við sögu í ófyrirsjáanlegum útköllum. Skólinn Skólinn er ördrama frá Sketsagerðinni sem fjallar um nemendur í íslenskum framhaldsskóla. Þættirnir eru þeir fyrstu sinnar tegundar hérlendis, hver á bilinu ein til þrjár mínútur að lengd, hófu göngu sína 15. september og verða sýndir yfir þrjátíu daga tímabil. Það verður auðvelt að hámhorfa á Skólann í beit, enda serían sirka klukkutími að lengd. All Her Fault All Her Fault er spennuþáttaröð um móður sem mætir að sækja son sinn á heimili vinar þar sem hann er í heimsókn. Konan sem opnar dyrnar hefur hinsvegar aldrei heyrt um hann. Æsispennandi og dularfullir þættir, með óvæntri atburðarás. Með helstu hlutverk fara Sarah Snook, Dakota Fanning, Jake Lacy og Michael Peña. Sjónvarp Símans Boltamömmur Boltamömmur eru nýir gamanþættir sem hófu göngu sína í september og segja frá nýfráskilinni konu sem hellir sér af lífi og sál í heim yngri flokka fótbolta. Þættirnir eru hugarfóstur Lilju Nætur Þórarinsdóttur sem byggir þá á eigin reynslu og koma ýmsar brjálaðar boltamömmur við sögu. Elma Spennuþættirnir Elma byggja á glæpasögunni Marrið í stiganum eftir Evu Björgu Ægisdóttur og hefja göngu sína á Sjónvarpi Símans um miðjan október. Þættirnir segja frá rannsóknarlögreglukonunni Elmu Jónsdóttur sem snýr aftur á æskuslóðir sínar á Akranesi eftir mikið áfall í Reykjavík og dregst þar inn í rannsókn á morðmáli sem tengist fortíð bæjarins. Ríkisútvarpið This is Not a Murder Mystery Listrænir og spennandi þættir sem gerast á fjórða áratugi síðustu aldar og spila heimsfrægir súrrealískir listamenn lykilhlutverk. Ungur Salvador Dali og René Magritte hittast ásamt fleiri listamönnum á glæsilegu sveitasetri þar sem ekki er allt sem sýnist. Dularfullur raðmorðingi gengur laus og morðin eru eins konar eftirlíkingar á sögufrægum listaverkum þeirra. The Marlow Murder Club Fornleifafræðingur sem er komin á eftirlaun eignast tvær vinkonur í litla þorpinu Marlow. Þegar morð er framið í bænum finnst konunum lögreglan ekki fara rétt að rannsókninni og taka málin í eigin hendur. Hugljúfir og samtímis spennandi þættir sem gerast í fallegri breskri sveit.
Bíó og sjónvarp Hollywood Sýn Síminn (Ásar) Netflix Disney Mest lesið Misstu þrettán ára dóttur sína Lífið Kemur unnustanum til varnar: „Hann er búinn að standa sig ekkert eðlilega vel“ Lífið Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Bíó og sjónvarp Karl Th. Birgisson borinn til grafar Lífið Staðráðnar í að koma sterkari til baka Tíska og hönnun Hætt við tónleika Kanye í Rússlandi Lífið Minningar um mömmu það allra verðmætasta Tíska og hönnun Kristín og Kolbeinn eiga von á janúarbarni Lífið Vilhjálmur sagður upplifa sig illa svikinn Lífið Bein útsending: Skarsgård fyrir fullu Háskólabíói Lífið Fleiri fréttir Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Gömul leyndarmál koma upp á yfirborðið Streymisveitan Apple TV loksins á Íslandi Hinsta ferð Johns Snorra á hvíta tjaldið Sjónvarp Símans opnar veitu helgaða bresku sjónvarpsefni Sögulegur tvöfaldur sigur á Emmy-verðlaunum Af TikTok á skjáinn Carla Jeffery látin 33 ára að aldri Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Jörðin undir fótum okkar framlag Íslands til Óskarsverðlauna Alexander Skarsgård heiðraður á RIFF Klaufskar löggur, kvartanir yfir kynlífi og kúkur á húddi Stjörnurnar syngja inn haustið Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Rödd Eyrnaslapa og Optimusar Prime er öll Tim Curry er látinn Hasarmyndahjón heiðursgestir á RIFF Áhrifamikil rómantísk gamanmynd fær framhald Harington tekur við af uppteknum Hoult Ástin sem eftir er tilnefnd til kvikmyndaverðlauna Norðurlandaráðs Meghan snýr aftur á skjáinn Etur kappi við Obama og Reynolds Bautista hleypur í skarðið Depp í viðræðum um endurkomu sem Jack Sparrow Bestu hlutverk Hayden Panettiere Sjá meira