Innlent

Tveir á vinnupalli sem féll

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Unnið er að því að taka vinnupallinn við Þingholtsstræti niður.
Unnið er að því að taka vinnupallinn við Þingholtsstræti niður. vísir/Anton

Tilkynnt var um vinnuslys í Þingholtsstræti í miðbæ Reykjavíkur upp úr hádegi í dag. Samkvæmt lögreglu féll vinnupallur við hús.

Ríkisútvarpið greindi fyrst frá en Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn, segir í samtali við fréttastofu að tveir hafi verið á vinnupallinum þegar hann féll. 

Vinnupallurinn við Þingholtsstræti.vísir/Anton

Samkvæmt slökkviliði féllu mennirnir um fjóra til sex metra. Þeir voru fluttir á slysadeild til aðhlynningar en eru með minniháttar áverka. 





Fleiri fréttir

Sjá meira


×