SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar 24. september 2026 09:00 Mér þykir mjög vænt um SÁÁ og þá starfsemi sem samtökin hafa byggt upp og leitt í gegnum áratugina, íslensku samfélagi til mikilla heilla. Ég ber mikla virðingu fyrir öllu því fólki sem hefur lagt þar hönd á plóg starfsfólki, stjórnendum, félagsmönnum, sjálfboðaliðum og almenningi sem hefur stutt starfsemina. Það er einmitt þess vegna sem mér þykir ástandið sem nú hefur skapast svo sorglegt. Ágreiningur milli lækna og annarra starfsmanna annars vegar og stjórnar og stjórnenda hins vegar hefur færst út fyrir veggi samtakanna og inn í fjölmiðla. Þegar um jafn viðkvæma starfsemi er að ræða og þá sem SÁÁ sinnir er það afar óheppilegt. Hér á gamla máltækið sérstaklega vel við: „Aðgát skal höfð í nærveru sálar.“ Í allri þessari umræðu má ekki gleymast hvað SÁÁ er. SÁÁ er ekki einstakir starfsmenn og SÁÁ er ekki stjórn samtakanna hverju sinni. SÁÁ eru samtökin sjálf, hugsjónin sem þau voru stofnuð utan um og sú mikilvæga þjónusta sem byggð hefur verið upp fyrir fólk sem glímir við fíkn og fjölskyldur þess. Enginn einstakur starfsmaður getur verið stærri en stofnunin sem hann starfar hjá. Á sama hátt getur engin stjórn eða einstakur stjórnarmaður verið stærri en samtökin sem honum hefur verið falið að þjóna. Starfsmenn koma og fara, stjórnir koma og fara, en SÁÁ verður að standa áfram. Það þarf einnig að halda því skýrt til haga að SÁÁ eru frjáls félagasamtök en ekki ríkisstofnun. Ríkið leggur vissulega verulegt fjármagn til þeirrar heilbrigðisþjónustu sem SÁÁ veitir og því fylgja eðlilegar kröfur um fagmennsku, eftirlit og ráðstöfun opinbers fjár. En SÁÁ var ekki byggt upp af ríkinu. Krafturinn hefur komið frá samfélaginu sjálfu félagsmönnum, sjálfboðaliðum, fyrirtækjum og almenningi. Álfasalan er kannski sýnilegasta dæmið um það sérstaka samband sem hefur verið milli SÁÁ og þjóðarinnar í gegnum árin. Þess vegna er mikilvægt að greina á milli starfsmannamála, faglegra álitaefna og stjórnunarlegra ákvarðana. Læknar og annað heilbrigðisstarfsfólk verða að njóta faglegs sjálfstæðis og geta komið áhyggjum sínum á framfæri telji þau öryggi sjúklinga eða faglega starfsemi í hættu. En faglegt sjálfstæði getur ekki þýtt að einstakir starfsmenn séu hafnir yfir eðlilega stjórnun stofnunarinnar. Á sama hátt verður stjórn að virða faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfsfólks og gæta þess að fara ekki inn á svið sem henni ber ekki að stýra. Einstök ráðningar-, uppsagnar- og önnur starfsmannamál eiga sína lögbundnu farvegi. Þau eiga ekki sjálfkrafa að verða að opinberri deilu um framtíð SÁÁ. Ég hef ekki áhuga á að gagnrýna fjölmiðla fyrir að fjalla um málið. Þeir eiga að spyrja erfiðra spurninga og upplýsa almenning. En mér finnst engu að síður ástæða til að staldra við þá umfjöllun sem birst hefur, meðal annars í Kastljósi. Þegar hvert viðtalið rekur annað og alvarlegar fullyrðingar eru settar fram um að stjórn SÁÁ hafi farið yfir mörk gagnvart heilbrigðisstarfseminni, þá verður að mínu mati að fylgja því eftir með mjög skýrum spurningum. Hvað nákvæmlega á stjórn SÁÁ að hafa gert? Hvaða faglegu mörk á hún að hafa farið yfir og í hvaða tilvikum? Þar finnst mér ekki nóg að vísa almennt til þess að mörk hafi verið brotin. Ef Sjúkratryggingar Íslands eða embætti landlæknis telja að stjórn SÁÁ hafi farið inn á svið faglegrar starfsemi þarf að liggja skýrt fyrir í hverju það felst. Að öðrum kosti er almenningi gert nánast ómögulegt að leggja sjálfstætt mat á málið. Mér hefur á köflum fundist umfjöllunin draga vagn annars sjónarmiðsins án þess að þessara skýru svara sé krafist. Þetta leiðir að kjarnaspurningunni: Hvar liggja mörkin milli faglegs sjálfstæðis lækna og stjórnunarlegrar ábyrgðar stjórnar og framkvæmdastjórnar? Þau mörk verða að vera skýr. Þar tel ég að heilbrigðisráðherra geti lagt sitt af mörkum án þess að taka yfir starfsemi SÁÁ. Í samstarfi við samtökin mætti setja á fót óháðan starfshóp, til dæmis með tveimur fulltrúum tilnefndum af SÁÁ, tveimur af ráðherra og óháðum formanni með þekkingu á heilbrigðisrétti. Verkefnið væri ekki að fjalla um einstök starfsmannamál heldur að skilgreina þessi mörk og skapa skýran farveg þegar faglegur ágreiningur kemur upp. Það er alveg skýrt í mínum huga að sjálfstæði SÁÁ hefur verið einn helsti styrkleiki samtakanna. Hefði SÁÁ ekki staðið utan hins almenna ríkisrekna heilbrigðiskerfis og þeirrar pólitísku umgjarðar sem því fylgir tel ég að þjónusta við fólk með fíknisjúkdóma, fræðsla og baráttan gegn afleiðingum fíknar væri ekki komin jafn langt og raun ber vitni hér á landi. Þess vegna mega viðbrögðin við þeirri deilu sem nú stendur yfir ekki verða þau að veikja sjálfstæði SÁÁ eða auka pólitísk afskipti af starfseminni. Ríkið á að tryggja eðlilegt eftirlit með opinberu fé og gæðum heilbrigðisþjónustunnar, en að öðru leyti á að mínu mati að virða sjálfstæði samtakanna eins og gert hefur verið í gegnum tíðina. Tugir þúsunda Íslendinga hafa notið þjónustu SÁÁ og enn fleiri fjölskyldur hafa fundið fyrir áhrifum starfsins. Við megum ekki láta deilur einstaklinga, hversu alvarlegar sem þær kunna að vera, stefna þessu áratugalanga starfi í hættu. Enginn læknir, enginn framkvæmdastjóri, enginn formaður og engin stjórn er stærri en SÁÁ. SÁÁ hefur staðið vaktina í áratugi, án þess að vera rekið af ríkinu, fyrir fólk og fjölskyldur sem þurfa á þessari þjónustu að halda. Það starf eigum við að varðveita og efla, ekki veikja. SÁÁ og sjúklingarnir verða að koma fyrst. Höfundur er framkvæmdarstjóri. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein SÁÁ Mest lesið 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Innleiðing nýs einkunnakerfis – Sjaldan verður flýtiverk til fagnaðar skrifar Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Sjá meira
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun