Golf

Sparkaði golfboltanum aftur inn á flötina

Andri Broddason skrifar
Corey Conners lenti í skrautlegu atviki þegar áhorfandi sparkaði golfboltanum hans inn á flötina.
Corey Conners lenti í skrautlegu atviki þegar áhorfandi sparkaði golfboltanum hans inn á flötina. Brian Spurlock/Getty Images

Kylfingurinn Corey Conners lenti í ótrúlegu atviki í Forsetabikarnum í golfi þegar hann skaut boltanum út af vellinum og í átt að áhorfendum. Einum áhorfendanna brá og endaði á því að sparka boltanum aftur inn á brautina.

Áhorfendur voru búnir að raða sér meðfram girðingu sem aðskildi mörk vallarins en kylfingar mega ekki leika boltum sem fara hinum megin við girðinguna. Boltinn hans Conners endaði þá inni á gríni eftir spark áhorfandans og þurfti því að fletta upp í reglubókum hvort Conners ætti að taka víti.

Eftir sparkið endaði boltinn aðeins fjórum metrum frá holunni og því væri hentugt fyrir Conners að fá að leika boltanum þaðan. Samkvæmt reglum í golfi þá hefði Conners mátt leika boltanum ef boltinn hefði farið óvart í áhorfanda. En vegna þess að áhorfandinn sparkaði viljandi í boltann þá þarf Conners að taka högg í víti þar sem boltinn endaði utan vallar.

Conners var þá að spila með Nick Taylor í liði gegn Bandaríkjamönnunum Russell Henley og Jacob Bridgeman. Þeir enduðu á því að fá skolla á holunni og töpuðu henni og var útlitið ekki gott fyrir Taylor og Conners í viðureigninni. Þeir náðu þó að koma til baka og unnu viðureignina og skiluðu mikilvægu stigi fyrir sitt lið.

Atvikið má sjá í spilaranum hér að ofan




Fleiri fréttir

Sjá meira


×