Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Árni Sæberg skrifar 29. september 2026 12:08 Einar Örn Ólafsson var forstjóri Play. Vísir/Einar Skiptastjórar þrotabús flugfélagsins Play hafa höfðað mál á hendur flugvélaleigusala félagsins fallna og Einari Erni Ólafssyni, fyrrverandi forstjóra og eins eigenda félagsins. Þess er krafist að greiðslum til flugvélaleigunnar verði rift og þrotabúinu verði dæmdar skaðabætur vegna þeirra.
Þetta kemur fram í skriflegu svari þeirra Arnars Þórs Stefánssonar og Unnar Lilju Hermannsdóttur, skiptastjóra þrotabúsins, við fyrirspurn Vísis. „Skiptastjórar geta staðfest að mál hafi verið höfðuð á hendur flugvélaleigusölum hins fallna félags og fyrrum forstjóra vegna greiðslna til flugvélaleigusala í aðdraganda gjaldþrots. Farið er fram á riftun greiðslnanna og skaðabætur. Málin voru þingfest í héraðsdómi í dag, 29. september,“ segir í svarinu en hvorki er tekið fram hversu mikið Play greiddi flugvélaleigunni með hinum umdeildu greiðslum né hversu hárra skaðabóta er krafist. Vinnunni miðar ágætlega en langt er í land Í svarinu segir að vinnu við skipti þrotabúsins miði ágætlega. Skiptastjórar hafi lokið við að taka afstöðu til þeirra krafna sem lúta sérstökum forgangi og unnið sé að úrlausn þeirra ágreiningsmála sem hafa komið upp vegna þeirra. Arnar Þór Stefánsson og Unnur Lilja Hermannsdóttir, skiptastjórar þrotabús Play.Vísir Fyrir utan málin á hendur Einar Erni og flugvélaleigunnu séu nú rekin þrjú riftunarmál fyrir dómstólum en þess skuli getið að slík mál hafi þurft að höfða í byrjun ágúst síðastliðins vegna málshöfðunarfresta í lögum. „Fyrirséð er að málarekstur kunni að taka einhvern tíma. Þá hafa skiptastjórar ýmis önnur verkefni með höndum sem heyra undir skipti af þessari stærðargráðu.“ Vilja hálfan milljarð frá Isavia Einnig sé ágreiningsmál rekið fyrir héraðsdómi milli þrotabúsins og APA ehf. vegna veðsetningar á varahlutalager þrotabúsins. Önnur riftunarmál sem ekki hefur verið samið í séu gegn Rea ehf., Isavia ohf. og APA ehf. vegna greiðslu skulda vegna þjónustu í aðdraganda gjaldþrotsins. Innherji greindi frá því í byrjun mánaðar að þrotabúið hefði stefnt APA ehf, eða Airport Associates, og tengdum félögum og krafist riftunar á greiðslum upp á samtals um 470 milljónir sem voru inntar af hendi í aðdraganda falls flugfélagsins. Rea er móðurfélag Airport Associates og er í eigu fyrrverandi stjórnarformanns Play og eins stærsta flugfélagsins, meðal annarra. Þá kom fram í árshlutareikningi Isavia á dögunum að þrotabúið krefði hlutafélagið opinbera riftunar á greiðslum að fjárhæð 485 milljónum króna ásamt vöxtum og dráttarvöxtum, sem flugfélagið hafi greitt Isavia í aðdraganda gjaldþrots þess. Ekki náðist í Einar Örn við vinnslu fréttarinnar.
Dómsmál Gjaldþrot Gjaldþrot Play Flug Mest lesið Högnuðust um milljarð Viðskipti innlent Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Viðskipti innlent Verðbólga ekki meiri í tvö ár Viðskipti innlent Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Viðskipti innlent OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Viðskipti erlent Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki Viðskipti erlent Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Viðskipti innlent Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Viðskipti innlent Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Viðskipti innlent Uppsagnir í Arion banka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Atvinnulausum Íslendingum fjölgaði um 700 á einu ári Verulegur samdráttur hjá Isavia 50skills tryggir 729 milljónir í fjármögnun Mikill munur á afkomu almannatengla Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Sjá meira