Sport

Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni út­sendingu

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Gunnar Lárus hefur mest hlaupið 39 hringi.
Gunnar Lárus hefur mest hlaupið 39 hringi.

Vísir stendur fyrir Bakgarðsáskoruninni þar sem lesendum gefst tækifæri á að kynnast landsliðsfólki í Bakgarðshlaupi. Gunnar Lárus Karlsson er einn hlauparanna.

Gunnar Lárus er 47 ára landsliðsmaður í Bakgarðshlaupi. Hann tekur þátt í landsliðakeppninni sem fer fram þann 17. október. Oddur Máni hefur mest farið 39 hringi en hlaupið gengur út á að hlaupa 6,7 kílómetra á klukkustund, eins oft og hægt er.

Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi hefst 17. október og verður í beinni útsendingu á Vísi.

Hvenær byrjaðir þú að hlaupa? 

Fyrir um það bil 19 árum með hléum en fyrir rúmum 6 árum byrjaði ég að hlaupa svona markvisst. Þá var covid nýbyrjað og konan mín ein inni á fæðingardeild. Ég hljóp þá og hljóp til að láta tímann líða.

Af hverju ákvaðst þú að taka þátt í Bakgarðshlaupinu? 

Ég var bara forvitinn um hvað ég kæmist langt.

Hvað hefur þú tekið oft þátt? 

Tvisvar í Reykjavík og 4 sinnum á Reyðarfirði

Gunnar Lárus er forsvarsmaður Bakgarður730 sem fer fram á Reyðarfirði.

Hvern er best að spjalla við í hringnum? 

Ég hef bara ekki spjallað við marga í landsliðinu! Það var gaman að hlusta á Guðjón en það var nú aðallega annar að tala við hann haha

Hvað er best að borða þegar þú tekur þátt í Bakgarðinum? 

Vínarbrauð

Hvaða liðsmaður er með besta nestið? 

Ég hef bara ekki hugmynd.

Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að hlaupa?

Ég er með fjölskyldunni, í vinnunni og í skólanum.

Gunnar Lárus og fjölskyldan í fríi í Frakklandi.

Hvað ætlar þú þér að fara marga hringi í október? 

Eins marga og ég kemst 😃 best að vera ekkert að ákveða eitthvað fyrirfram

Hvað er það vandræðalegasta sem þú hefur lent í í Bakgarðshlaupinu? 

Þegar ég sofnaði svo fast strax eftir síðasta hringinn minn 2025 að hroturnar heyrðust í beinni útsendingu.

Hver er uppáhalds Bakgarðsbrautin þín og af hverju? 

Bakgarður730, það einfaldur hringur en samt svo fjölbreyttur og fallegt umhverfi.

Hvaða liðsmaður kemur mest á óvart í hlaupinu? 

Guðmundur Lúther

Hver er þinn stærsti styrkleiki í Bakgarðshlaupi? En veikleiki?

Ég held haus lengi og er pottþétt góður að sofa á milli hringja þegar ég fæ tíma. 

Stífir ökklar.

Hvað er það skrítnasta sem þú hefur gert til að halda þér gangandi í hlaupi? 

Ég man nú ekki eftir neinu ákveðnu, ég bara hleyp.

Hver er duglegastur í liðinu við að hvetja aðra áfram? 

Giska á að það væri Tommi🤔

Ef þú mættir bara hlusta á eitt lag allan tímann, hvaða lag væri það? 

Niðrá Strönd með Prins Póló

Hvernig myndir þú lýsa þér fyrir einhverjum sem þekkir þig ekki? 

Bara frekar venjulegur! Hlédrægur og rólegur.

Hvað er best að gera eftir Bakgarðshlaup? 

Fara í sturtu, það er svona gott/vont, borða, drekka og sofa😴

Hver er líklegastur til að byrja að syngja á hlaupum? 

Allavega ekki ég, það yrði mjög seint í hlaupinu

Ef þú ættir að lýsa liðinu með þremur orðum, hvaða orð myndirðu velja? 

Fjölbreytni, lífsgleði og keppnisskap




Fleiri fréttir

Sjá meira


×