Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Auður Ösp Guðmundsdóttir skrifar 4. október 2026 20:02 Langri vegferð Jónínu lauk í seinasta mánuði. Vísir/Anton Brink Þann 23. september síðastliðinn rættist langþráður draumur Jónínu Shipp. Þá hlaut hún loksins íslenskan ríkisborgararétt, 67 ára að aldri. Að baki lá áralöng barátta sem hafði meðal annars falið í sér umsókn til Alþingis, samskipti við Útlendingastofnun, fingrafaratöku og sakavottorð frá FBI. Jónína hafði jafnframt um árabil verið með dvalarleyfi sem gilti í fimm ár í senn og reynt að fá formlega staðfestingu á því sem hún hafði sjálf aldrei efast um: Að Ísland væri hennar heimaland.
Saga Jónínu nær þó mun lengra aftur. Hún fæddist í Reykjavík árið 1959, dóttir íslenskrar móður og bandarísks föður. Faðirinn hvarf snemma úr lífi hennar og í æsku var nær ekkert talað um hann. Tveimur áratugum síðar ákvað Jónína sjálf að hafa uppi á honum og innan nokkurra mánaða var hún flutt til Alabama. Þar bjó hún næstu 14 árin en þrátt fyrir sterk tengsl við Bandaríkin var Ísland alltaf heima. Vissi ekki að hann ætti dóttur Leiðir foreldra Jónínu lágu saman undir lok sjötta áratugarins. Móðir Jónínu var sextán ára unglingsstúlka úr Reykjavík. Faðir Jónínu var Bandaríkjamaður sem gegndi herþjónustu á Keflavíkurflugvelli en þegar meðgangan kom í ljós hafði hann verið sendur aftur vestur um haf. Hann vissi því ekki að barn væri á leiðinni. „Amma mín, sem sagt mamma mömmu, náði að koma upplýsingum til hans í gegnum sendiráðið. Mamma vissi nógu mikið um hann til þess að það væri hægt að finna hann. Ég fæddist í ágúst og þá hringdi hann í mömmu. Eins og sannur Bandaríkjamaður tók hann þetta bara alla leið og bað hennar í símanum.“ Móðir Jónínu hugðist halda til Bandaríkjanna með dóttur sína og faðir hennar flaug frá Alabama til New York til að taka á móti þeim. Þegar vélin lenti kom hins vegar engin ung íslensk móðir með smábarn út. Móðir Jónínu hafði hætt við ferðina á síðustu stundu. „Ég held að það hafi einfaldlega runnið upp fyrir mömmu út í hvað hún var að fara. Hún var bara sextán ára og varð líklega hrædd.“ Faðir Jónínu gafst þó ekki upp. Í janúar 1960 var amma Jónínu heima að passa hana þegar dyrabjöllunni var hringt. Fyrir utan stóð faðir hennar, sem hafði reynt að fá sig fluttan aftur til Íslands á vegum hersins. Hann bað móður Jónínu aftur og í þetta sinn varð svarið já. Þau gengu í hjónaband 30. janúar 1960. „Maður talaði ekkert um pabba“ Síðar sama ár fæddist bróðir Jónínu og árið 1961 flutti fjölskyldan til Alabama. Dvölin í Bandaríkjunum varð þó stutt. Eftir um tíu mánuði komu amma og afi Jónínu í heimsókn og móðir hennar ákvað að halda með þeim heim til Íslands ásamt börnunum. Öðrum var sagt að aðeins væri um heimsókn að ræða en síðar komst Jónína að því að móðir hennar hafði frá upphafi ætlað sér að vera um kyrrt. „Mamma sagði mér seinna að hún hefði aldrei ætlað sér að fara aftur út. Þetta voru ekki sælar minningar hjá henni og eftir að ég kynntist föður mínum skildi ég líka að þau hefðu líklega ekki verið gift mikið lengur þótt hún hefði orðið eftir þarna. Við komum heim í nóvember 1961 og hann reyndi að fá hana aftur í nokkur ár. Frá því ég man eftir mér var reglan síðan bara sú að maður talaði ekkert um pabba. Það var ekki minnst á hann og það boðaði ekkert gott að nefna hann.“ Jónína á engar skýrar minningar um föður sinn frá þessum fyrstu árum. Eftir heimkomuna bjó móðir hennar fyrst með börnin hjá fjölskyldunni í Reykjavík en síðar varð úr að Jónína yrði eftir hjá ömmu sinni og afa. Afi hennar lést þegar hún var lítil og það var því amma hennar sem annaðist uppeldi hennar að stærstum hluta. „Mamma bjó líka í Reykjavík þannig að við umgengumst alveg, en amma var alltaf í rauninni mamma mín. Þegar ég var tólf eða þrettán ára flutti mamma til Stykkishólms. Þegar ég varð fjórtán ára fannst mér miklu meira spennandi að vera þar og flutti því til hennar. Ég var þar í nokkur ár og flutti svo aftur til Reykjavíkur.“ Æska Jónínu var þannig að mestu leyti íslensk. Hún ólst upp í Reykjavík, bjó um tíma í Stykkishólmi og gekk alla sína grunnskólagöngu hér á landi. Faðir hennar var á sama tíma hinum megin við Atlantshafið og nær ekkert samband var þeirra á milli. Faðir Jónínu var farinn aftur til Bandaríkjanna þegar móðir hennar uppgötvaði að hún væri ófrísk.Vísir/Anton Brink „Þú ert bara ekki til í okkar bókum“ Árið 1977 var Jónína sautján ára og ætlaði að fara í frí til Noregs og sótti því um vegabréf. Þegar hún mætti viku síðar til að sækja það kom í ljós að eitthvað var athugavert við umsókn hennar. „Þá var mér sagt: „Heyrðu, þú ert bara ekki til í okkar bókum.“ Ég varð alveg gáttuð og konan fór að spyrja mig út í eftirnafnið mitt. Ég sagði að það væri bandarískt og hún sagði mér þá að fara í bandaríska sendiráðið. Ég gerði það og fékk vegabréf. Ég hugsaði ekkert meira um málið. Ég var komin með vegabréf og þar með var þetta afgreitt í mínum huga.“ Þarna fékk Jónína í fyrsta sinn skýra vísbendingu um að ríkisfangsstaða hennar væri ekki með þeim hætti sem hún og fjölskyldan höfðu gengið út frá. „Þetta kom móðurfjölskyldunni algjörlega í opna skjöldu. Enginn kannaðist við að hafa veitt samþykki eða upplýsingar sem hefðu átt að leiða til þess að ég missti íslenskan ríkisborgararétt. Ég var líka á íslenska vegabréfinu hennar mömmu þegar við fórum út. Ég veit það vegna þess að amma var svo dugleg að geyma allt og ég hef séð það. Þeir voru með skráningu um að eitthvað hefði átt sér stað en eftir því sem ég skildi voru ekki endilega frekari gögn til.“ Vaknaði með óbilandi þörf fyrir að finna pabba Ríkisfangsmálið fékk að liggja. Tveimur árum síðar, árið 1979, vaknaði Jónína hins vegar einn morgun með sterka tilfinningu um að hún yrði að finna föður sinn. „Ég veit ekki af hverju ég fékk þessa tilfinningu en hún lét mig ekki í friði. Ég þurfti að finna pabba minn. Ég spurði mömmu í fyrsta skipti eftir mörg ár hvar þau hefðu átt heima og hvaða önnur nöfn hún gæti gefið mér. Hún var bara með tvö nöfn því hún vissi svo lítið meira. Það var náttúrulega ekkert internet þá og ég hringdi því í upplýsingastofu fyrir útlönd. Konan þar ætlaði að reyna að hjálpa mér.“ Um kvöldið hafði tekist að finna mann sem hugsanlega tengdist fjölskyldunni. Hann var ekki heima en móðir hans var þar og Jónínu bauðst að taka símtalið. Hún kynnti sig sem Josie, gælunafnið sem faðir hennar hafði notað um hana. Konan reyndist vera amma Jónínu. „Hún talaði og talaði og mér tókst að fá heimilisfang hjá henni. Þegar ég lagði á áttaði ég mig svo á því að ég hafði ekki spurt eina einustu spurningu um pabba. Hún hafði heldur ekki nefnt hann á nafn. Ég skrifaði henni því bréf og sendi myndir. Mjög stuttu síðar, mig minnir um viku, fékk ég símtal að utan. Þá var það pabbi.“ Amman hafði haft samband við föður Jónínu og sagt honum að „Josie“ hefði hringt. Fyrstu viðbrögð hans voru: „Josie who?“ Eftir það sem hafði gerst á Íslandi hafði hann bannað fjölskyldunni að ræða börnin sem hann átti hér, en enginn annar í fjölskyldunni gekk undir þessu nafni. Flutningar til Alabama Feðginin náðu sambandi í mars 1979 og þremur mánuðum síðar voru Jónína og eiginmaður hennar flutt til Alabama. Þau höfðu gifst áður en þau fóru út. „Við fórum út með opnum huga. Við vissum ekki hvort við værum bara að fara í mánaðarfrí eða hvort eitthvað meira yrði úr því. Við komum út í júní, maðurinn minn var farinn að vinna í júlí og ég í ágúst. Í október vorum við að kaupa hús. Við bjuggum fyrst í Prattville, um 20 mínútur frá Montgomery þar sem pabbi bjó. Seinna fluttum við sjálf til Montgomery,“ segir Jónína. „Mamma var mjög spennt fyrir þessu og ég held að flest gömul mál hafi þá verið komin til grafar. Við vorum orðin fullorðin og réðum okkur sjálf. Pabbi var hins vegar mjög stressaður í fyrsta skipti sem amma kom út til okkar því hún var kona sem fyrirgaf seint. En það fór allt mjög vel. Eftir að við fluttum heim komu pabbi og konan hans hingað í heimsókn og það gekk líka mjög vel.“ Börnin með tvöfalt ríkisfang en ekki hún Jónína og eiginmaður hennar bjuggu í Bandaríkjunum í 14 ár og fluttu aftur til Íslands árið 1993. Við heimkomuna þurfti fjölskyldan að tilkynna sig hjá Hagstofunni. Þar kom ríkisfangsmálið aftur upp. „Ég spurði: „En hvað með mig?“ og konan sagði að ég væri það örugglega líka. Svo fékk ég bréf í póstinum þar sem kom fram að svo væri ekki. Ég geymdi því miður ekki bréfið og man ekki nákvæmlega hvernig þetta var orðað. Ég man að það stóð eitthvað um fæðingarár og hverjir væru með tvöfalt ríkisfang. Mér fannst þetta bara svo fíflalegt.“ Ísland heimilaði almennt tvöfalt ríkisfang 1. júlí 2003. Á Ísland.is kemur fram að einstaklingur sem missti íslenskt ríkisfang við töku erlends ríkisfangs fyrir þann tíma geti, að uppfylltum skilyrðum, óskað eftir endurveitingu. Þegar Jónína var sautján ára og ætlaði í ferð til Noregs komst hún að því að hún gat ekki fengið íslenskt vegabréf eins og hún hafði gert ráð fyrir.Vísir/Anton Brink Jónína lét málið þó áfram liggja. Það breyttist árið 2017 þegar hún fór að lenda í vandræðum við heimkomu eftir utanlandsferðir og var ítrekað spurð hvort hún væri með leyfi. „Ég spurði: „Leyfi fyrir hverju?“ Þá var mér sagt: „Til þess að vera á Íslandi.“ Ég svaraði: „Ég er fædd hérna á Íslandi.“ Þá var ég spurð hvort ég ætti íslenskt vegabréf og ég sagði nei. Í kjölfarið hafði ég samband við Útlendingastofnun og spurði einfaldlega: „Af hverju er ég ekki íslenskur ríkisborgari?“ Það ýtti við mér að fara loksins almennilega af stað með þetta mál. Ég hugsaði bara: „Ókei, ég tek þetta svo ég hafi tíma til að koma málunum mínum í gang og geti haldið áfram með lífið.“ Það endaði á því að ég fékk dvalarleyfi en það var til fimm ára í senn og háð hjúskap. Ég þurfti alltaf að fara og endurnýja það. Ef ég og maðurinn minn hefðum skilið þá hefði ég líklega ekkert afturkvæmt á Íslandi. Næsta ár hefði ég þurft að fara í gegnum þetta aftur.“ „Hver er formúlan?“ Í febrúar 2025 sótti Jónína um íslenskan ríkisborgararétt til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis. Hún var ekki meðal þeirra 50 einstaklinga sem Alþingi samþykkti að veita ríkisborgararétt 14. júlí sama ár. Á meðal þeirra voru átta íþróttamenn, sjö körfuboltamenn og einn handboltamaður. „Ég las svarið eiginlega þannig að ég væri ekki landsliðsefni. Þá fór ég að velta þessu fyrir mér: Hvað hafa þeir sem fá ríkisborgararétt fram yfir mig sem er fædd á Íslandi, á íslenska móður og gekk alla mína grunnskólagöngu hér? Hver er formúlan? Fólk áttar sig ekki alltaf á því hvað það skiptir mig miklu máli að hafa íslenskan ríkisborgararétt. Ég tel mig vera íslenska, ég hafði bara ekki pappír yfir það. Þegar ég bjó í Bandaríkjunum og fór til Íslands var ég alltaf að fara heim í heimsókn,“ sagði Jónína í samtali við RÚV á sínum tíma. Málið vakti athygli eftir umfjöllun RÚV. Í samtali við Mannlíf nokkrum dögum síðar kvaðst Jónína hafa fengið mikinn stuðning frá almenningi en engin viðbrögð frá stjórnvöldum. Hún tók jafnframt fram að lögfræðiaðstoð væri kostnaðarsöm og að henni fyndist hún ekki eiga að þurfa lögfræðing til að fá úr því skorið hver staða hennar væri. Fingraför til FBI Jónína hélt málinu áfram og fékk Vigdísi Ó. Hässler lögfræðing til liðs við sig. Sótt var um ríkisborgararétt hjá Útlendingastofnun eftir almennri leið og þurfti Jónína að leggja fram umfangsmikil gögn. „Ég vil ekki vera of neikvæð því margt af fólkinu þarna vildi hjálpa. En þetta varð mikið mál að berjast fyrir. Ég þurfti að fara í fingrafaratöku, senda fingraförin til FBI og fá sakavottorð þaðan. Allt þetta þurfti ég að gera til þess að öðlast ríkisborgararétt. Þetta fannst mér með ólíkindum. En maður gerði auðvitað bara það sem þurfti.“ „Þegar maður las um endurveitinguna virtist þetta eiga að vera mjög einfalt mál. Frænka vinkonu minnar, sem er lögfræðingur hjá Útlendingastofnun en ekki í ríkisborgaradeildinni, kannaði þetta og fékk þau skilaboð að þetta væri besta leiðin. Ég óskaði því eftir því að umsóknin yrði færð yfir en fékk nei. Ég fékk engin greinileg rök fyrir því hvers vegna það væri ekki hægt. Seinna sendi lögfræðingurinn minn sjálf inn beiðni um endurveitingu.“ „Við fylltum allt út svo þau gætu ekki komið aftur og beðið um fleiri upplýsingar. Samt kom svo fyrirspurn um hvernig ég hefði orðið bandarískur ríkisborgari. Ég sendi Vigdísi skilaboð og sagði í raun: „En þið sögðuð mér sjálf að ég væri bandarískur ríkisborgari út af þessu.“ Það var hægt að leysa það með samskiptum innanhúss og ég þurfti ekkert að gera. En svona var þetta endalaust. Það kom alltaf eitthvað nýtt.“ Loksins íslenskur ríkisborgari Þann 23. september kom loks símtalið sem Jónína hafði beðið eftir. Hún var í vinnunni í Hlíðasmára þegar Vigdís hafði samband og tilkynnti henni að hún hefði fengið íslenskan ríkisborgararétt. „Ég varð svo stressuð að ég vissi eiginlega ekki hvað ég átti að segja. Það tók eiginlega heilan dag að átta sig á þessu. Ég var svo fljót á mér að ég labbaði strax til sýslumanns og ætlaði að sækja um vegabréf. Þá var kerfið ekki einu sinni búið að uppfæra sig og ég var enn ekki íslenskur ríkisborgari í þeirra bókum. Ég var svo bara grátandi inn á milli allan daginn þegar ég hugsaði um þetta. Þetta var svona „closure“, eins og að geta loksins lokað þessum kafla.“ Árið 2025 reyndi Jónína að fá ríkisborgararétt í gegnum Alþingi en var ekki meðal þeirra sem fengu samþykki. Vísir/Anton Brink Fyrir Jónínu snýst ríkisborgararétturinn ekki aðeins um vegabréf eða skráningu í opinberu kerfi. Árin án hans höfðu einnig áhrif á réttindi hennar. Erlendir ríkisborgarar geta að uppfylltum skilyrðum kosið í sveitarstjórnarkosningum en kosningaréttur til Alþingis, forseta og í þjóðaratkvæðagreiðslum er almennt bundinn íslenskum ríkisborgararétti. „Ég hefði gjarnan viljað vera komin með þetta fyrr, til dæmis þegar forsetakosningar voru. Ég mátti kjósa í sveitarstjórnarkosningum en ekki til Alþingis eða forseta. Það eru alls konar svona hlutir sem maður hugsar kannski ekki mikið út í. Við höfum líka oft hugsað um hvað Íslendingar fara mikið til Spánar og geta einfaldlega farið þangað og verið. Ég gat það ekki með sama hætti. Þetta eru gríðarleg forréttindi og þetta er bara eitthvað sem ég átti að hafa.“
Bandaríkin Ríkisborgararéttur Helgarviðtal Mest lesið Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Lífið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Lífið Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Lífið Skemmtilega söguhornið: Allir geta orðið eins og skólatöskur í framan! Áskorun Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Lífið Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Lífið Fundu hvor aðra í prjónaskapnum Tíska og hönnun „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Lífið Haustbingó Blökastsins í beinni Lífið Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Lífið Fleiri fréttir Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París „Hún byrjaði alla daga á því að fara í kirkjugarðinn í Fossvogi“ Fréttatía vikunnar: Jesus, Haaland og Prettyboitjokkó Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey Ice Spice fór á klósettið á OTO „Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ Auglýsing fyrir Bleiku slaufuna frumsýnd á Vísi og Sýn Minnkaði áfengisneysluna og kílóin fylgdu með Nálgunarbann á hendur Berry eftir ásakanir um að taka soninn hálstaki Útkall vegna heimilisofbeldis reyndist vera kynlífslæti Hvað veistu um... Mean Girls? Norðmenn gerðu símaat í Trévirki: „Ég er ingen kúnna um þetta“ Eiður auglýsir tyrkneska hárígræðsluklíník Leiðir skilja hjá Hrafnhildi Helgu og Árna Þorsteinn Víglunds selur Kjartanshöll í Garðabænum Lil Wayne trúlofaður 03-módeli Matthías Már með krabbamein Risastór tappakollur í fallegri íbúð Stöðvaði Skarsgård á leið í kvöldverð með Björk Þessu máttu alls ekki sleppa ef þú vilt lifa lengi Sjá meira