Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa 7. október 2026 08:08 Halla Gunnarsdóttir er formaður VR. Vísir/Anton Brink Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segir að samkomulag Starfsgreinasambandsins, Eflingar og Samiðnar við Samtök atvinnulífsins, hafi ekki áhrif á viðræður VR. Hún vonast eftir lausnamiðuðu samtali þar sem fulltrúar SA hafi ítrekað látið sig hverfa þegar einhver lending næst.
Í gærkvöldi undirrituðu áðurnefnd stéttarfélög samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga út næsta ár. Þau fengu kynningu á aðgerðapakka stjórnvalda og sé hann mjög álitlegur. Halla sótti einnig fund stjórnvalda og telur hún forsætisráðherra vera að gera sitt besta til að leysa hnúta. „Kjarasamningar á almennum markaði voru í grunninn gerðir í þrennu lagi í síðustu atrennu og þarna er bara einn hópurinn sem gerði kjarasamninga búinn að ná einhverri lendingu sem þau telja ásættanlega,“ segir Halla í samtali við fréttastofu. „Þau eru auðvitað að einhverju leyti með aðra hópa sem þau eru að semja fyrir og bara þeirra mat á stöðunni er annað en okkar. Það er alveg eðlilegt að stéttarfélög í svona öflugri verkalýðshreyfingu séu ekki öll með nákvæmlega sama matið.“ VR sé hins vegar á öðrum stað. Þau telja mikilvægt að koma til móts við þá hópa sem hafa orðið fyrir launalækkunum undir gildandi kjarasamningum. Á mánudagskvöld fékk VR heimild frá sínum trúnaðarmönnum og samninganefndum til að segja upp kjarasamningum. Í gærmorgun fundaði VR með fulltrúum SA og lagði þar fram tillögur að lausnum. Vonir stóðu til að funda aftur eftir hádegi en ekkert sást þá til fulltrúa SA. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri SA, sagði í samtali við Vísi að hann væri að bíða eftir viðbrögðum stjórnvalda. Halla segir gærdaginn hafa farið í súginn en það væri helsta skylda allra að reyna að ná samkomulagi. Ákvörðun að hleypa öllu í bál og brand Halla segir að ef ekki verði settar einhverjar varnir inn fyrir launafólk geti það orðið fyrir enn frekari launalækkunum. Næsti fundur VR og SA hefst klukkan 9:15. „Nú þarf maður að koma sér niður í húsnæði ríkissáttasemjara. Þar eigum við von á að Samtök atvinnulífsins komi í hús og ég vona svo sannarlega að þau komi af heilum hug inn í þetta samtal vegna þess að við erum búin frá því í lok ágúst að leggja fyrir þau tillögur eftir tillögur að lausnum án þess að þau hafi í rauninni verið tilbúin til þess að ljúka samtali við okkur,“ segir hún. Þegar einhver lending náist séu fulltrúar SA yfirleitt stungnir af. Það sé ákvörðun um að hleypa öllu í bál og brand á vinnumarkaði. „Í hvert einasta skipti sem ég hef talið að samtalið sé að nálgast einhvern merkingarbæran stað þá hafa þau látið sig hverfa og nú höfum við ekki nema rétt rúman sólarhring til stefnu.“ Forsenduákvæði kjarasamninganna brast við verðbólgumælinguna í ágúst og hefur VR því þar til á morgun til að segja upp kjarasamningunum. Fyrr í vikunni taldi Halla að meiri líkur en minni væru á að samningum yrði sagt upp en segir hún núna að það sveiflist til og frá. „Þegar að ekki er samtal í gangi og ekki koma fram einhver viðbrögð við því sem við höfum fram að færa dögum og jafnvel vikum saman þá auðvitað missir maður svolítið trúna. Við höfum stuttan tíma til stefnu.“
Kjaramál Stéttarfélög Vinnumarkaður Verðlag Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira