Körfubolti

Komust í þriggja stafa tölu gegn ný­liðunum

Andri Broddason skrifar
Tindastóll þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að taka nýliðana í FJölni.
Tindastóll þurftu ekki að hafa mikið fyrir því að taka nýliðana í FJölni. Hulda/Vísir

Fjölnir tók á móti Tindastóli í annarri umferð Bónus-deildar kvenna í körfubolta. Nýliðarnir í Fjölni áttu erfitt með gestina frá Sauðárkróki og vann Tindastóll á endanum 101-67 sigur.

Byrjun FJölnis í Bónus-deildinni ætlar að reynast liðinu erfið þar sem liðið er nú búið að tapa tveimur leikjum stórt. Tindastóll byrjaði leikinn með látum og áttu Fjölniskonur engin svör við gestunum.

Tindastóll var með 40 stiga forskot í hálfleik þar sem staðan var 65-25. Gestirnir urðu aðeins rólegri í seinni hálfleik og hvíldu mikilvæga leikmenn og leyfðu yngri leikmönnum að spila. Að lokum endaði leikurinn í 101-67 stórsigri Tindastóls og hefðu gestirnir auðveldlega getað unnið leikinn stærra.

Quinzia Fulmore, leikmaður Tindastóls, var stigahæsti leikmaður leiksins með 27 stig og tók hún einnig níu fráköst. Kolbrún Ármannsdóttir var næst á eftir henni með 21 stig og ellefu fráköst en hún spilar einnig fyrir Tindastól.

Charisse Fairley var stigahæst í liði Fjölnis með 17 stig og var Arna Rún Eyþórsdóttir stutt á eftir henni með 16 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×