Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Bjarki Sigurðsson skrifa 8. október 2026 08:04 Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, mun slíta kjarasamningunum eftir hádegi. Vísir „Það hefur alltaf legið fyrir af okkar hálfu að við værum ekki tilbúin til þess að festa okkar fólk inni í áframhaldandi launalækkunum.“ Þetta segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sem hyggst slíta kjarasamningum í dag.
VR fundaði með Samtökum atvinnulífsins í gærmorgun en segir Halla viðbrögð þeirra og vilja til að koma til móts við þau lítinn sem engan. Í gærkvöldi fundaði stjórn VR og tók þá ákvörðun að slíta kjarasamningunum í dag en frestur til þess rennur út klukkan fjögur. Félagið hafi ítrekað óskað eftir lausnamiðuðu samtali við Samtök atvinnulífsins en það hafi verið mjög einhliða. „Við erum búin að teygja okkur svo langt til þess að koma til móts við þau en þau hafa ekki fært sig eina litla tommu til að koma til móts við okkur og þannig virka ekki samningar,“ segir Halla. „Við sitjum bara eftir með ekkert frá Samtökum atvinnulífsins og sjáum þá ekki annað í stöðunni en að slíta kjarasamningum.“ Nú taki við fundarhald með fagfélögunum og Landssambandi íslenskra verslunarmanna, pappírsvinna og loks eftir hádegi heldur Halla upp á skrifstofur Samtaka atvinnulífsins og segir samningnum formlega upp. Aðrir skoða að fylgja eftir Forsenduákvæði kjarasamninganna brast í ágúst eftir að verðbólgan mældist 5,6 prósent. Þeir sem komu að samningunum fengu þá heimild til klukkan fjögur í dag til að segja upp kjarasamningunum. Í kjölfar þess að þau segja upp samningunum verður lögð fram kröfugerð sem miðar að því að rétta hlut félagsmanna þeirra. „Við höfum alltaf sagt að eina tækið sem við höfum til þess að tryggja okkar fólk eru kjarasamningar og við höfum verið mjög samstarfsfús um að reyna að fara aðrar leiðir til þess að ná utan um þetta ástand en það hefur ekki gengið eftir og þá verðum við að fara þessa leið,“ segir Halla. Starfsgreinasamband Íslands, Efling, Samiðn og Byggiðn gerðu samkomulag við Samtök atvinnulífsins um að framlengja kjarasamninga út næsta ár. Halla segir að um helmingur almenna markaðsins sé búinn að ganga frá samkomulagi en opinberu stéttarfélögin hafi forsenduákvæði sem geta virkjast við það að samningnum sé slitið. „Þau munu þurfa að taka ákvörðun um hvort þau fylgi því eftir. Ég veit að mörg þeirra eru að skoða það eins og sakir standa.“ Áðurnefnd stéttarfélög ákváðu að undirrita samkomulagið eftir að hafa sótt fund stjórnvalda þar sem áætlanir þeirra voru reifaðar. Halla sótti einnig fundinn og segir pakkann sem forseti Alþýðusambandsins fékk vera mjög góðan. „Síðan er það tilboðið sem forsætisráðherra hefur komið með sem varðar vaxtabætur og eru líka afar góðar aðgerðir en það breytir því ekki að við erum með hópa sem hafa verið að ganga í gegnum launalækkanir,“ segir Halla. „Áhættan af þessu efnahagsástandi getur ekki bara verið á einum hópi samfélagsins.“
Vinnumarkaður Stéttarfélög Kjaramál Atvinnurekendur Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Segir í tísku að setja „alþjóðasamfélagið“ ofar eigin þjóð Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Fleiri fréttir Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sjá meira