Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Birgir Olgeirsson skrifar 9. október 2026 14:01 Kristín Benediktsdóttir, umboðsmaður Alþingis, hefur óskað upplýsinga frá heilbrigðisráðuneytinu í kjölfar kvörtunar föður sem missti dóttur sína á sjúkrahúsi erlendis. Hulda Margrét Óladóttir Maður sem missti dóttur sína á sjúkrahúsi erlendis vildi að Sjúkratryggingar Íslands tækju að sér samskipti við erlend stjórnvöld vegna andlátsins. Hann taldi aðstoðina ófullnægjandi og kvartaði til umboðsmanns Alþingis eftir að heilbrigðisráðuneytið hafnaði athugasemdum hans. Dótturinni hafði verið vísað til meðferðar á sjúkrahúsinu og Sjúkratryggingar greitt fyrir hana. Faðirinn taldi eftirliti íslenskra yfirvalda með meðferðinni hafa verið ábótavant og að aðstandendur hefðu ekki fengið nægar upplýsingar um áhættu og önnur úrræði. Í bréfi umboðsmanns sem birt er í dag kemur ekki fram hvað olli andláti dótturinnar eða hvaða meðferð hún fékk. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér, nafnlaust eða undir nafni. Fullum trúnaði er heitið. Faðirinn þurfti sjálfur að fylgja málinu eftir Sjúkratryggingar höfðu haft samband við sjúkrahúsið, aflað upplýsinga um tilkynningu málsins til erlends eftirlitsaðila og sent föðurnum þær. Heilbrigðisráðuneytið taldi stofnunina hafa veitt þá aðstoð sem henni bar. Þótt Sjúkratryggingar hefðu greitt fyrir meðferðina bæri föðurnum sjálfum að koma kvörtun til erlendra eftirlitsstjórnvalda og fylgja henni eftir. Umboðsmaður gerði ekki athugasemd við þá niðurstöðu og lauk kvörtunarmálinu 30. september. Hann tók ekki afstöðu til mögulegrar bótaábyrgðar íslenska ríkisins, heldur taldi eðlilegra að dómstólar leystu úr því. Vill vita hvaða leiðbeiningar aðstandendur fá Kvörtun föðurins varð þó tilefni til þess að umboðsmaður skrifaði heilbrigðisráðherra og spurði hvernig upplýsingagjöf til sjúklinga og aðstandenda væri háttað þegar íslenskar heilbrigðisstofnanir senda fólk í meðferð erlendis. Hann vill meðal annars vita hvaða leiðbeiningar fólkið fær um réttindi sín. Ráðuneytið hefur frest til 16. október til að svara. Þá ákveður umboðsmaður hvort hann taki upplýsingagjöfina til frekari athugunar. Umboðsmaður Alþingis Sjúkratryggingar Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira
Dótturinni hafði verið vísað til meðferðar á sjúkrahúsinu og Sjúkratryggingar greitt fyrir hana. Faðirinn taldi eftirliti íslenskra yfirvalda með meðferðinni hafa verið ábótavant og að aðstandendur hefðu ekki fengið nægar upplýsingar um áhættu og önnur úrræði. Í bréfi umboðsmanns sem birt er í dag kemur ekki fram hvað olli andláti dótturinnar eða hvaða meðferð hún fékk. Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér, nafnlaust eða undir nafni. Fullum trúnaði er heitið. Faðirinn þurfti sjálfur að fylgja málinu eftir Sjúkratryggingar höfðu haft samband við sjúkrahúsið, aflað upplýsinga um tilkynningu málsins til erlends eftirlitsaðila og sent föðurnum þær. Heilbrigðisráðuneytið taldi stofnunina hafa veitt þá aðstoð sem henni bar. Þótt Sjúkratryggingar hefðu greitt fyrir meðferðina bæri föðurnum sjálfum að koma kvörtun til erlendra eftirlitsstjórnvalda og fylgja henni eftir. Umboðsmaður gerði ekki athugasemd við þá niðurstöðu og lauk kvörtunarmálinu 30. september. Hann tók ekki afstöðu til mögulegrar bótaábyrgðar íslenska ríkisins, heldur taldi eðlilegra að dómstólar leystu úr því. Vill vita hvaða leiðbeiningar aðstandendur fá Kvörtun föðurins varð þó tilefni til þess að umboðsmaður skrifaði heilbrigðisráðherra og spurði hvernig upplýsingagjöf til sjúklinga og aðstandenda væri háttað þegar íslenskar heilbrigðisstofnanir senda fólk í meðferð erlendis. Hann vill meðal annars vita hvaða leiðbeiningar fólkið fær um réttindi sín. Ráðuneytið hefur frest til 16. október til að svara. Þá ákveður umboðsmaður hvort hann taki upplýsingagjöfina til frekari athugunar.
Veistu meira um málið? Sendu okkur fréttaskot hér, nafnlaust eða undir nafni. Fullum trúnaði er heitið.
Umboðsmaður Alþingis Sjúkratryggingar Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira