Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina Aron Guðmundsson skrifar 9. október 2026 20:07 Khaldoon Al Mubarak með Pep Guardiola, þáverandi knattspyrnustjóra Manchester City eftir að félagið hafði tryggt sér Englandsmeistaratitilinn í fótbolta árið 2024. Vísir/Getty Tilraun Manchester City til að ná sátt við ensku úrvalsdeildina, í máli sem deildin höfðaði gegn félaginu fyrir umfangsmikil brot á fjárhagsreglum, fór út um þúfur.
Það er Bloomberg sem greinir frá og er þetta í fyrsta sinn sem í ljós kemur að Manchester City hafi átt í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina. Á þetta að hafa gerst fyrir einhverju síðan. Samkvæmt Bloomberg var þetta leið Manchester City til að reyna milda þær þungu refsingar sem félagið gæti átt yfir höfði sér. Viðræðurnar fóru þó út um þúfur áður en samkomulag náðist. Viðræðurnar eru sagðar hafa farið fram áður en félagið varð fyrir verulegu bakslagi í málinu en nú hefur sekt Manchester City í 114 ákærum af 115 verið staðfest. Samningaviðræðurnar, sem ekki hefur verði greint frá áður, sigldu fljótt í strand og Manchester City heldur enn fram sakleysi sínu og hefur áfrýjað dómnum en ljóst þykir að félagið geti átt yfir höfði sér afar þunga refsingu. Brot Manchester City á fjármálareglum ensku úrvalsdeildarinnar voru ýmis konar. Óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar komst að því að Manchester City hafi á níu ára tímabili frá 2009/10 til 2017/18: Gert „sýndarsamninga“ (e. sham agreements) (sem gáfu ranga mynd af raunverulegu samkomulagi milli aðila) við fjölda viðskiptafélaga sinna, auk þess að reiða sig á „sýndarsamninga“ við aðra, til að blása upp tekjur félagsins á fölskum forsendum og draga úr kostnaði þess. Félagið skilaði inn röngum reikningum og leyndi raunverulegri fjárhagsstöðu sinni fyrir endurskoðendum sínum og eftirlitsaðilum knattspyrnunnar. Það braut verulega gegn eyðslumörkum bæði ensku úrvalsdeildarinnar og UEFA. Við rannsókn ensku úrvalsdeildarinnar braut Manchester City ítrekað gegn skyldum sínum um samvinnu og fyllsta trúnað gagnvart deildinni (þrjú af fjórum meintum brotum voru staðfest). Manchester City spilar sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni eftir að dómur var kveðinn upp á Anfield á sunnudaginn þegar liðið heimsækir Liverpool.
Enski boltinn Manchester City Fjármál Manchester City til rannsóknar Mest lesið Ronaldo í bann hjá Portúgal Fótbolti Viktor Gísli varð fárveikur á HM Handbolti Uppgjörið: Króatía - Ísland 0-4 | Systur á skotskónum í sannfærandi sigri Fótbolti Uppgjörið Grindavík - KR 80-91 | KR jók hraðann í seinni hálfleik og innbyrti sigur Körfubolti 16 ára hetja Vals: „Bara sofa vel og skólinn á morgun“ Körfubolti Leik lokið: Njarðvík - Tindastóll 77-85 | Vinna í deildum Evrópu og hér heima Fótbolti Leikmenn landsliðsins sekir um agabrot Fótbolti Arnar ætlar ekki að tjá sig og Laddar Liverpool-borgar eru í yfirvinnu Sport Reikna með Kane en vita ekki hvenær Körfubolti Mótherji Eriku kastaði dós í hana Sport Fleiri fréttir Áttu í sáttaviðræðum við ensku úrvalsdeildina „Hvernig dirfast þeir að skemma eitthvað sem er hluti af DNA þessa lands“ Gakpo og Isak missa af stórleiknum Setja félagið á sölu tveimur árum eftir kaup Haaland rýfur þögnina: „Verðum öll að standa saman“ Xhaka sekur um að falsa Covid-19 vottorð Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Arteta framlengir við Arsenal Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Sjá meira