Sport

„Erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur“

Stefán Marteinn Ólafsson skrifar
Sigtryggur Arnar átti flottan leik fyrir Tindastól í kvöld
Sigtryggur Arnar átti flottan leik fyrir Tindastól í kvöld Vísir/Jón Gautur

Tindastóll vann góðan átta stiga sigur 77-85 á Njarðvík í fyrstu umferð Bónus deild karla sem lauk í kvöld. Sigtryggur Arnar Björnsson ræddi við Vísi eftir leik.

„Þetta var bara mjög erfiður leikur og við þurfum að hafa vel fyrir þessum og við erum bara ánægðir“ sagði Sigtryggur Arnar Björnsson leikmaður Tindastóls eftir sigurinn í kvöld.

„Þegar svona leikur koma að ná að enda þá með sigri þá er það bara stórt og tvö stig. Það er erfitt að koma í þetta hús og sækja sigur svo við erum sáttir“

Leikurinn var mjög jafn þegar leið á hann en Tindastóll fór að lokum með góðan sigur.

„Við erum bara með góð gæði. Við erum með tíu manns sem eru góðir leikmenn og við getum róterað hratt og skipt vel mínútum þannig við vorum ferskir allan tímann. Ég held að það hafi bara skipt máli í lokin, ferskleikinn okkar“

Tindastóll byrjaði af miklum krafti og leit út fyrir að ætla að hlaupa með þennan leik en það reyndist þó ekki vera raunin.

„Við missum bara einhvern takt þarna og það gerist. Þetta er leikur áhlaupa. Þeir ná sínu áhlaupi og koma til baka og gera þetta að leik en síðan náðum við að slíta þá aftur frá okkur og klárum þetta bara fagmannlega“

Það gerðist svo leiðindaratvik í upphafi seinni hálfleiks þegar Adomas Drungilas fór meiddur af velli en hann lenti illa eftir að hafa stokkið upp í skot undir körfunni.

„Hann er farinn upp á sjúkrahús þannig ég hef ekkert heyrt í honum en ég var upp við þetta og þetta leit alls ekki vel út þannig ég á ekki von á góðum fréttum allavega“

Sigtryggur Arnar er spenntur fyrir því að spila næsta leik á heimavelli og horfir bjartsýnn fram á veginn.

„Ég hlakka bara til að spila fyrsta heimaleikinn og er bara orðin spenntur“ sagði Sigtryggur Arnar Björnsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×