„Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 11. október 2026 12:25 Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir deilur við Sólveigu Önnu einstefnugötu. Vísir/Anton Brink Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að svo virðist vera sem Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar hafi hana á heilanum. Hún segir ósætti þeirra á milli algjöra einstefnugötu, ekkert sé til í því að forsætisráðherra hafi sagt ósatt um vaxtabótaauka sem til hafi komið eftir samningaviðræður VR og Samtaka atvinnulífsins.
Þetta kom fram í Sprengisandi á Bylgjunni í morgun. Sólveig Anna hefur farið mikinn eftir að viðræður VR og SA lauk eftir að breiðfylkingin hafði þegar skrifað undir samninga. Sagði hún meðal annars í gær að tillaga Höllu og VR um að fækka varaforsetum ASÍ fæli í sér tilraunir þeirra til að sölsa undir sig sambandið. Vilhjálmur Birgisson formaður Starfsgreinasambandsins sagðist hafa áhyggjur af stöðu ASÍ. Sólveig Anna heldur því fram að forsætisráðherra hafi beinlínis sagt ósatt um tilkomu þessa vaxtabótaauka til þess að þetta liti betur út fyrir þig, hvað hefurðu um það að segja? „Ég vil bara segja það að Sólveig Anna Jónsdóttir virðist vera með mig algjörlega á heilanum. Ég er ekki með hana á heilanum. Ég er að sinna mínu starfi gagnvart mínu félagi og þetta sem stundum er einhvern veginn svona útmálað sem deilur okkar á milli er algjör einstefnugata. Ég fæ stundum á tilfinninguna að hugmyndin sé bara að reyna að henda eins mikilli drullu á mig og mögulegt er og vona að eitthvað festist. Og það er þreytandi. Ég svara allajafna ekki nema þegar verið er að fara með rangfærslur og hafa uppi einhvern róg um mig, mín störf, mitt félag. Ég hef stundum þurft að verja félagið gagnvart yfirgengilegum afskiptum. Ég mun gera það áfram en ég ætla ekki að vera að eyða mörgum orðum í einhverja svona yfirlýsingar. Við vorum að vinna okkar starf. Af hverju er hún með þig á heilanum? „Þú verður að spyrja hana að því.“ Hefurðu skilning á því að fólk utan frá sem horfir inn, segir: Bíddu hvernig er með þetta fólk þarna í verkalýðshreyfingunni? Getur það ekki talað saman? Getur það ekki komið sameiginlega fram gagnvart atvinnuveitendum og viðsemjendum, þarf það endilega að eyða öllu þessu púðri í deilurnar innbyrðis? „Ég hef mjög mikinn skilning á því því það er auðvitað hræðilegt að þetta skuli koma svona fram. En mig langar líka að segja að átök hafa í gegnum tíðina verið innbyggð í verkalýðshreyfinguna. Það er auðvitað verið að takast á um hagsmuni og leiðir og það eru persónur og leikendur sem geta haft áhrif og þrátt fyrir það hefur þessi hreyfing náð gríðarlega góðum og miklum árangri. Margt funkerar ekki innan Alþýðusambandsins út af þessu, en það er mjög margt sem funkerar mjög vel. Ég leiði til dæmis efnahags- og skattanefnd Alþýðusambandsins. Þar er í rauninni gríðarlega góð vinna. Þar er hægt að eiga bara mjög yfirvegaðar og eðlilegar samræður um allt frá bara Seðlabankanum til evru eða hvað það er sem skiptir launafólk máli.“ Halla nefnir samstarf sitt við fagfélögin sem einkennist af trausti og virðingu. Þrátt fyrir að málin spilist svona út í fjölmiðlum sé líka gríðarlega mikil samvinna í hagsmunagæslu fyrir almenning á landinu. Hún segir allan gang vera á því hve mikið samstarf sé innan Alþýðusambandsins. Það fari fyrir verkalýðsfélögum í sameiginlegum málum. „En þegar kemur að kjarasamningunum þá heldur hvert og eitt félag á sínu umboði og stundum sameinast þau og stundum ekki. Breiðfylkingin gerði það síðast, var reyndar talsvert breiðari þegar VR var þar inni og ekki svo breið þegar VR fór út. En og nú erum við saman, VR, LÍV og fagfélögin, og það að það séu einhvers konar tvær blokkir sem sömdu í sitthvoru lagi síðast og muni kannski gera það aftur næst það er bara frekar eðlilegt sko. Það er ekkert óeðlilegt og getur þess vegna bara skilað betri niðurstöðu heldur en að reyna að miðstýra þessu. Ég vil nefna Sólveigu Jónsdóttur aftur til sögunnar, hún hefur gefið því undir fótinn og beinlínis sagt það að það geti vel farið svo að Alþýðusambandið klofni og að Efling segi sig frá Alþýðusambandinu. Heldurðu að það sé líklegt og hvaða áhrif myndi það hafa? „Ja sko, það er náttúrulega bara ákvörðun sem félagsfólk Eflingar þarf að taka. Slíkt þarf að fara í gegnum svona allsherjaratkvæðagreiðslu í félagi og hérna og 2/3 þurfa að samþykkja það. Svona umræður koma alltaf upp reglulega. Það hefur oft verið talað um að VR vilji ganga út úr ASÍ af því að félagið leggur mjög mikla fjármuni þarna inn og stundum finnst okkur við ekki fá nægilega áheyrn eða eða eitthvað slíkt en mér finnst til mikils að vinna að félög bara haldi sig þarna inni. Þetta er gríðarlega mikilvægur vettvangur, sem hefur skipt miklu máli í gegnum söguna. En ef félagsfólk Eflingar metur það sem svo að þeirra hagsmunum sé betur borgið þarna fyrir utan þá er það bara ákvörðun sem þau þurfa að taka og lífið heldur áfram.“
Kjaramál Sprengisandur Stéttarfélög Vinnumarkaður Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira