Hafi verið beggja vegna borðsins Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 11. október 2026 15:32 Katrín Oddsdóttir lögmaður. Vísir/Arnar Deildarstjóri fiskeldisdeildar Matvælastofnunar segir fyrrverandi starfsmann Fiskeldis Austfjarða ekki hafa komið að áhættumati vegna fyrirhugaðs eldis félagsins í Seyðisfirði. Honum hafi aðeins verið beint tiltekinni spurningu um staðal fyrir eldisbúnað. Katrín Oddsdóttir lögmaður gagnrýnir að leitað hafi verið til hans þrátt fyrir reglu um að hann kæmi ekki að málinu.
Vísir hefur undir höndum tölvupósta þar sem Karl Steinar Óskarsson, deildarstjóri fiskeldisdeildar MAST, felur Kjartani Davíð Sigurðssyni að gera tillögu að svari við erindi Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnunar, HMS. Erindið varðaði hættu á slysasleppingum vegna ofanflóða við fyrirhugaðar sjókvíar í Seyðisfirði. Kjartan hafði áður starfað hjá Fiskeldi Austfjarða, nú Kaldvík, og unnið umsókn félagsins um leyfi fyrir eldinu. Hann hóf störf hjá MAST árið 2024, að sögn Karls sem segir jafnframt að sérstaklega hafi verið gætt að því að Kjartan kæmi ekki að meðferð málsins hjá stofnuninni vegna fyrri starfa sinna. Hann hafi hvorki unnið áhættumatið né lagt til efni sem nýtt hafi verið í umsögninni til HMS. Katrín Oddsdóttir lögmaður telur að skýringar stofnunarinnar breyti ekki því að farið hafi verið gegn þeirri reglu sem sett var við ráðningu Kjartans að hann kæmi hvergi nærri málum sem tengjast fyrri störfum hans fyrir Fiskeldi Austfjarða. Þetta hljómi eins og eftiráskýringar. Aðkoman hafi einskorðast við sérþekkingu HMS sendi erindið til MAST síðdegis 7. júlí síðastliðinn. Þar var óskað eftir mati á því hvort fyrirliggjandi gögn sýndu nægilega fram á öryggi eldisbúnaðar gagnvart ofanflóðum og hættu á slysasleppingum. Klukkan 08:02 morguninn eftir framsendi Karl erindið til Kjartans þannig: „Skoðaðu þetta og komdu með tillögu að svari.“ Klukkan 09:43 sendi Karl umsögn MAST til HMS, með Kjartan í afriti. Ein klukkustund og 41 mínúta leið því frá fyrirmælunum þar til umsögnin var send. Erindið til Kjartans hafi eingöngu lotið að NS 9415-staðlinum, sem gerðar séu kröfur um að eldisbúnaður hér á landi uppfylli. Kjartan búi yfir sérþekkingu á staðlinum og hafi verið beðinn um að skoða afmarkað atriði tengt honum. Frá sjókvíar við Djúpavog.Vísir/Vilhelm Karl áréttar að ekkert úr vinnu Kjartans hafi farið inn í endanlega umsögn MAST. Sérstaklega hafi verið passað upp á að hann kæmi ekki að málinu og gögn stofnunarinnar sýni það. Karl hafi ákveðið að nýta ekkert svar Kjartans við tölvupóstinum enda hafi Kjartan sjálfur verið mjög hikandi vegna málsins. Katrín telur hins vegar að með því að leita til Kjartans hafi stofnunin vikið frá reglunni um að hann kæmi ekki að málinu. Að hennar mati sé sérstaklega gagnrýnivert að stofnunin hafi gert sér grein fyrir því að fyrri störf hans gætu valdið vafa um aðkomu hans en engu að síður falið honum verkefni tengt málinu. Tölvupósturinn sem Vísir hefur undir höndum tilgreinir ekki að beiðnin til Kjartans takmarkist við staðalinn. Þar er erindi HMS framsent með beiðni um tillögu að svari. Tillaga Kjartans fylgir hins vegar ekki póstunum og af þeim einum verður því ekki ráðið hvað hann lagði til eða hvort það var nýtt. Hættan lítil að uppfylltum skilyrðum Umsögnin sem MAST sendi HMS varðaði áform um tíu þúsund tonna laxeldi í Seyðisfirði. Veðurstofan hafði metið ofanflóðahættu við fyrirhuguð eldissvæði en samkvæmt erindi HMS var mat á hönnun eldisbúnaðar og þeim stöðlum sem hann ætti að uppfylla utan sérsviðs hennar. Því leitaði HMS til MAST. Með erindinu fylgdu meðal annars hættumat fyrir Selstaðavík frá júní 2023 og Sörlastaðavík frá apríl 2025, auk tæknilegs mats búnaðarframleiðandans ScaleAQ frá júní síðastliðnum. HMS spurði hvort hætta á slysasleppingum hefði verið metin með fullnægjandi hætti og hvort þörf væri á frekari rannsóknum eða mótvægisaðgerðum. Einnig var spurt um krapa sem gæti borist að kvíum þótt flóðið sjálft næði ekki til þeirra. Í svari MAST voru líkur á slysasleppingum metnar mjög litlar yfir gildistíma leyfisins, að uppfylltum tilteknum forsendum. Meðal þeirra var að fallið yrði frá tveimur innstu kvíunum í Sörlastaðavík. Þær væru innan B-hættusvæðis og uppfylltu ekki viðmið um ofanflóðahættu fyrir vinnustaði. Þá þyrftu endanleg hnit kvía, fóðurpramma og festinga að samræmast uppfærðum hönnunargögnum og búnaður að uppfylla viðeigandi kröfur. MAST tók fram að stofnunin hefði ekki sjálf metið ofanflóðalíkön eða legu hættumarka. Niðurstaðan byggðist á fyrirliggjandi hættumati og forsendum um staðsetningu, hönnun og eftirlit með búnaðinum. Karl segir að áður en eldi hefjist fari MAST í úttekt þar sem bæði búnaður og staðsetning séu skoðuð. Mega ekki taka tillit til álits íbúa Leyfisveitingar vegna eldisins eiga sér langa forsögu. Samkvæmt samantekt málsgögnum kom Kjartan fram fyrir hönd Fiskeldis Austfjarða á árunum 2018 til 2020. Meðal þeirra er rekstrarleyfisumsókn sem barst MAST í ágúst 2018 sem hann skrifar undir og sendir sjálfur. Þá var umhverfismati framkvæmdarinnar enn ólokið. Í áliti Skipulagsstofnunar frá árslokum 2021 var bent á óvissu um áhrif náttúruvár á eldisbúnað. Skemmdir gætu valdið slysasleppingum og stofnunin taldi að viðbragðsáætlun vegna náttúruvár þyrfti að liggja fyrir áður en rekstrarleyfi yrði veitt. Ofanflóð valda reglulega tjóni í firðinum.Aðsend Strandsvæðisskipulag Austfjarða var staðfest í mars 2023. Frá febrúar 2024 gerði HMS síðan kröfu um byggingarleyfi fyrir nýjar byggingarleyfisskyldar sjókvíar utan netlaga. Til viðbótar við rekstrarleyfi MAST og starfsleyfi vegna mengunarvarna þurfti því sérstakt leyfi fyrir mannvirkjunum. Fyrirspurn HMS síðastliðið sumar var liður í því ferli. Karl bendir á að margar stofnanir komi að undirbúningnum. Þar sé meðal annars fjallað um umfang eldis, umhverfisáhrif, skipulag, siglingaöryggi og nálægð við sæstreng. Hlutverk MAST sé að rannsaka hvort fyrirtækið uppfylli þau skilyrði sem sett séu fyrir rekstrarleyfi. Afstaða íbúa í Seyðisfirði til hugsanlegs eldis geti ekki ráðið þeirri niðurstöðu. „Við getum ekki tekið tillit til almenningsálits, við megum það ekki,“ segir Karl. Langt, strangt og flókið ferli Tillögur að rekstrar- og starfsleyfum voru auglýstar í desember 2024 en afgreiðsla þeirra dróst. Í úrskurði frá desember 2025 kemur fram að meðal óútkljáðra atriða hafi verið ofanflóðahætta, afmörkun netlaga sjávarjarða og gildi strandsvæðisskipulagsins. Kaldvík vann þá að breyttri afmörkun eldissvæða. Félagið fékk loks rekstrar- og starfsleyfi 11. september síðastliðinn. Þau heimila samtals tíu þúsund tonna eldi, þar af að hámarki 6.500 tonn af frjóum laxi. Vidar Aspehaug, forstjóri Kaldvíkur, sagði þá að mikilvægum áfanga væri náð og eldi í Seyðisfirði myndi auka sveigjanleika í rekstri félagsins. Upphaf eldis væri þó háð eftirstandandi leyfisferlum og ákvörðunum um framleiðslu og fjárhagslega forgangsröðun. Leyfisveitingarnar hafa mætt harðri gagnrýni. Í viðtali við Vísi 20. september lýsti Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, formaður Vár, félags um verndun fjarðar, þeim sem áfalli. Hún gagnrýndi að haldið væri áfram þrátt fyrir andstöðu heimamanna og athugasemdir sem félagið hefði komið á framfæri við stjórnvöld. Á föstudag, 9. október, felldi úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála öðru sinni úr gildi ákvörðun HMS um að synja landeigendum um aðild að byggingarleyfismálinu. Fyrri synjun hafði verið felld úr gildi í maí. HMS synjaði þeim aftur 9. júlí, daginn eftir að umsögn MAST um ofanflóðahættuna var send. Ekki reyndist unnt að ná sambandi við Kjartan Davíð við vinnslu fréttarinnar.
Sjókvíaeldi Kaldvík Múlaþing Umhverfismál Fiskeldi Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira