Erlent

Tígris­dýrið verður ekki af­lífað

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Dýragarðurinn var rýmdur í gær í viðbragðsáætlun í kjölfar atviksins. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint.
Dýragarðurinn var rýmdur í gær í viðbragðsáætlun í kjölfar atviksins. Myndin er úr safni og tengist fréttinni ekki beint. Getty

Tígrisdýrið Altai sem varð manni að bana í dýragarði eftir að hann fór inn á afgirt svæði dýrsins í gær verður ekki aflífað.

Lögreglunni í Suður-Jórvíkurskíri á Englandi barst tilkynning um að maður hefði farið inn á afgirt svæði tígrisdýrs í dýragarðinum Yorkshire Wildlife Park í gær. Tígrisdýrið hafði ráðist á manninn og var hann úrskurðaður látinn á vettvangi.

Í yfirlýsingu frá garðinum segir að tígrisdýrið Altai sé heilt á húfi og muni ekki vera aflífað vegna atviksins. Garðinum hafi verið lokað í dag og starfsfólk fengið áfallahjálp.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×