Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Sunna Sæmundsdóttir skrifar 12. október 2026 11:43 Hér má sjá ferðamenn við Hörpu í einu óveðrinu. Stormi er spáð á miðvikudag og veðurfræðingur segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. Vísir/Vilhelm Viðvaranir verða gefnar út á landinu öllu vegna óvenju djúprar lægðar sem á að ganga yfir landið á miðvikudag. Veðurfræðingur telur líklegt að flug raskist og segir að fólk eigi ekki að gera ráð fyrir að komast ferða sinna. „
Á miðvikudaginn nálgast úr suðri mjög kröpp og mjög djúp lægð og miðjan ætlar að fara yfir austurhluta landsins. Þannig það stefnir í óveður á öllu landinu,“ segir Teitur Arason, vakthafandi veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands. Hann segir óveðrið tvískipt. Fyrri hluta dagsins megi búast við austanstormi með rigningu á láglendi og snjókomu til fjalla. Seinna um kvöldið sé hins vegar reiknað með snjókomu, hríðaveðri og norðanstormi á Vestfjörðum og Norðurlandi. „Austanveðrið er í hámarki fyrir hádegi en það versta í þessu verður sennilega norðanáttin með hríðinni. Það verður verst á Vestfjörðum seinni partinn.“ Einhverjar breytingar gætu þó orðið á spánni þar sem óvíst sé hvar lægðamiðjan lendir. „Inni í lægðarmiðjunni er logn, eða svikalogn eins og við getum kallað það. Þannig að fólk getur verið viðbúið því að ef smávægileg breyting verður á ferli lægðarinnar, að það geti gjörbreytt veðrinu í viðkomandi landshluta. En heilt yfir má búast við óveðri á miðvikudaginn.“ Á höfuðborgarsvæðinu verði líklega ausandi rigning fyrripartinn, hvassviðri og slydda um kvöldið. Gular og appelsínugular viðvaranir verða gefnar út í dag og búast má við samgöngutruflunum. „Mér finnst líklegt að flug raskist. Það er ansi hvasst í háloftunum með þessari lægð,“ segir Teitur. Ganga frá lausamunum Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur segir mögulegt að lægðin verði sú dýpsta í októbermánuði hér á landi í sextíu ár. Teitur tekur undir að hún sé óvenjulega djúp. Hann biður fólk um að undirbúa sig. „Það á að vera fínasta veður í dag og á morgun og það má taka inn lausamuni og kannski að hliðra til plönum og vera minna á ferðinni. Fólk á ekki að gera ráð fyrir því að komast ferða sinna á miðvikudaginn.“
Veður Flug Samgöngumál Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ Innlent Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Fleiri fréttir Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Sjá meira