Innlent

Synjað um heimilis­upp­bót vegna sam­eigin­legrar þvotta­vélar og snyrtingar

Birgir Olgeirsson skrifar
Konu sem bjó ein í hjólhýsi á Sævarhöfða var synjað um heimilisuppbót vegna ókeypis aðgangs að sameiginlegri þvottavél og snyrtingu. Umboðsmaður Alþingis gerði ekki athugasemd við synjunina.
Konu sem bjó ein í hjólhýsi á Sævarhöfða var synjað um heimilisuppbót vegna ókeypis aðgangs að sameiginlegri þvottavél og snyrtingu. Umboðsmaður Alþingis gerði ekki athugasemd við synjunina. Vísir/Anton Brink

Konu sem bjó ein í hjólhýsi á Sævarhöfða var synjað um heimilisuppbót vegna ókeypis aðgangs að sameiginlegri þvottavél og snyrtingu. Eigið salerni og eldunaraðstaða í hjólhýsinu breyttu ekki niðurstöðunni. Umboðsmaður Alþingis hefur lokið athugun á kvörtun hennar án athugasemda við synjunina.

Heimilisuppbót er viðbót við lífeyrisgreiðslur fyrir fólk sem er eitt um heimilisrekstur. Rétturinn ræðst einnig af því hvort viðkomandi hafi fjárhagslegt hagræði af því að deila húsnæðisaðstöðu eða fæðiskostnaði með öðrum.

TR taldi konuna njóta slíks hagræðis. Hún bjó endurgjaldslaust í hjólhýsi sonar síns og samkvæmt upplýsingum Reykjavíkurborgar greiddu íbúar svæðisins fyrir rafmagn samkvæmt mæli en ekki fyrir aðstöðuna að öðru leyti.

Benti á þvottahús í fjölbýli

Konan mótmælti því að aðgangur að sameiginlegri aðstöðu útilokaði uppbótina. Félagsráðgjafi hafði staðfest að hún byggi ein og væri ein um heimilisreksturinn.

Hún benti á að sameiginleg þvottahús væru í fjölmörgum fjölbýlishúsum án þess að hún kannaðist við að þau girtu fyrir heimilisuppbót. TR hefði horft til þess eins að aðstaðan stæði henni til boða í stað þess að meta raunverulegan fjárhag hennar og heimilishald. Framfærsluvandi hefði einmitt orðið til þess að hún byggi í hjólhýsi fremur en á húsnæðismarkaði.

Bágbornar aðstæður dugðu ekki

Í bréfi umboðsmanns eru einnig raktar skýringar úrskurðarnefndar velferðarmála vegna sambærilegrar kvörtunar annars hjólhýsabúa. Nefndin viðurkenndi bágbornar aðstæður á Sævarhöfða en taldi ókeypis aðgang að snyrtingu og þvottavél engu að síður fela í sér fjárhagslegt hagræði.

Umboðsmaður afmarkaði athugun sína við það hvort synjunin samræmdist lögum. Hann taldi sameiginlegu aðstöðuna fela í sér slíkt hagræði, þótt konan hefði eigið salerni og eldunaraðstöðu.

Konan sótti um í september 2024, TR synjaði í desember og úrskurðarnefnd staðfesti synjunina í apríl 2025. Umboðsmaður lauk kvörtuninni 28. september síðastliðinn og bréfið var birt 8. október. Synjunin stendur því óbreytt eftir afgreiðslu hans.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×