Handbolti

FH þurfti að þola annan skell í Portúgal

Sindri Sverrisson skrifar
Jón Bjarni Ólafsson skoraði fjögur mörk í Portúgal í kvöld.
Jón Bjarni Ólafsson skoraði fjögur mörk í Portúgal í kvöld. vísir/Anton

FH-ingar lentu tólf mörkum undir á fyrstu tuttugu mínútunum gegn Marítimo í Portúgal í kvöld og enduðu á að tapa með átta mörkum, 37-29, í Evrópudeild karla í handbolta.

FH veitti Bidasoa mikla keppni á Spáni í fyrsta leik keppninnar en hefur í kjölfarið tapað stórt gegn franska liðinu Limoges í Kaplakrika og svo í Portúgal í kvöld.

Marítimo komst í 18-5 og var ellefu mörkum yfir í hálfleik, 22-11. Það var því aldrei spurning hvernig færi í seinni hálfleiknum.

Jón Bjarni Ólafsson, Einar Rafn Eiðsson og Símon Michael Guðjónsson voru markahæstir FH með fjögur mörk hver en Ágúst Guðmundsson, Jakob Martin Ásgeirsson, Eiður Rafn Valsson og Ómar Darri Sigurgeirsson skoruðu þrjú mörk hver.

Í hinum leik riðilsins í kvöld vann Limoges 32-28 heimasigur gegn Bidasoa. Næsti leikur FH í keppninni er heimaleikurinn við Marítimo þriðjudagskvöldið 17. nóvember.


Tengdar fréttir

Valur - Tatabánya | Stórt Evrópuverkefni á Hlíðarenda

Hér fer fram bein textalýsing frá leik Vals og ungverska liðsins Tatabánya í 3. umferð Evrópudeildarinnar í handbolta. Flautað verður til leiks í N1-höllinni að Hlíðarenda klukkan korter í sjö.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×