Enski boltinn

Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“

Valur Páll Eiríksson skrifar
Samstarf Ten Hag og Ronaldo var ekki blómlegt.
Samstarf Ten Hag og Ronaldo var ekki blómlegt. Getty

Erik Ten Hag, fyrrverandi þjálfari Manchester United, heldur því fram að Cristiano Ronaldo hafi brugðist sér og liðinu í stjóratíð Hollendingsins.

Ten Hag tók við liðinu árið 2022 en var rekinn árið 2024. Í kjölfarið tók Rúben Amorim við og svo Michael Carrick og engum hefur tekist að slá beint í gegn í Manchester.

Ronaldo sneri „heim“ til United árið 2021 eftir að hafa áður leikið með United árin 2003 til 2009. Samstarf hans við félagið hrundi rúmu ári síðar eftir opinberar deilur hans við stjórnendur félagsins, þar á meðal Ten Hag.

Ten Hag heldur því fram í viðtali við The Athletic að Ronaldo hafi ekki klárað alla þá hringi sem leikmenn United voru látnir hlaupa eftir hörmulegt 4-0 tap gegn Brentford.

„Hann brást liðinu og hann brást mér, því við gerðum ráð fyrir honum. Ég flaug til Portúgals til að ræða við hann um hvað ég stefndi að áður en ég kom til United,“ sagði Ten Hag.

„Auðvitað er hann einn sá besti í sögu fótboltans. Ég bar mikla virðingu fyrir honum. En á þeim tíma þurfti ég, sem knattspyrnustjóri, að taka skynsamlega ákvörðun og halda þeim leikmönnum inni sem ég dáist að.“

Ten Hag bætti við: „Ég ræddi þetta við hann [...] Margoft sagði ég: „Ronnie, allir vilja vinna fyrir þig til að koma þér í rétta stöðu, en ef þú kemur þér ekki inn í teiginn geturðu ekki skorað.“ Hann var ekki fær um að gera þetta.“

„Það er rangt að halda því fram að ég hafi ætlast til þess að hann pressaði, að hann hlypi úr sér lungun. En hann gat það ekki. Hann hljóp hvorki með boltann né án hans. Ástæðan var sú að hann undirbjó sig ekki,“

„Öll toppliðin verða að taka toppleikmanninum opnum örmum, en toppleikmaðurinn verður að vinna fyrir liðið,“ segir Ten Hag og bætir við:

„Hann sagði við leikmennina: „Sparið orkuna á æfingum.“ Ég skil það þegar maður er í toppformi; þá eru æfingar og maður getur sparað orkuna. En fyrst þarf maður að æfa sig til að komast í rétt líkamlegt form.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×