Innherji

Van­rækti að rann­saka raun­veru­legan kostnað keppi­nauta Lands­virkjunar

Hörður Ægisson skrifar
Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Í ítarlegum úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála er í veigamiklum atriðum tekið undir gagnrýni Landsvirkjunar á rannsókn eftirlitsins.
Hörður Arnarson, fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar, og Páll Gunnar Pálsson, forstjóri Samkeppniseftirlitsins. Í ítarlegum úrskurði áfrýjunarnefndar samkeppnismála er í veigamiklum atriðum tekið undir gagnrýni Landsvirkjunar á rannsókn eftirlitsins.

Áfrýjunarnefnd samkeppnismála taldi rannsókn Samkeppniseftirlitsins gegn Landsvirkjun haldna verulegum annmörkum á grundvallaratriðum málsins, meðal annars við skilgreiningu markaða og mat á samkeppnishamlandi áhrifum verðlagningar orkufyrirtækisins, og er niðurstaðan sögð hafa „verulega þýðingu fyrir íslenskt atvinnulíf.“ Eftirlitið aflaði ekki upplýsinga um raunverulegan innkaupakostnað keppinauta Landsvirkjunar áður en það komst að þeirri niðurstöðu að orkufyrirtækið hefði með ólögmætum verðþrýstingi gert þeim ómögulegt að keppa við sig án þess að tapa á viðskiptunum.


Tengdar fréttir

Hörður hættir sem for­stjóri Lands­virkjunar

Hörður Arnarson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Landsvirkjunar. Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar, mun taka tímabundið við starfi forstjóra frá 1. nóvember, þar til nýr forstjóri verður ráðinn.

Rafnar fylgir Herði og segir upp

Rafnar Lárusson hefur ákveðið að láta af störfum sem fjármálastjóri Landsvirkjunar. Hann hafi ákveðið fyrir nokkrum árum að fylgja forstjóranum eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×