Orkumál

Fréttamynd

Smíði nýrrar brúar yfir Þjórs­á boðin út

Smíði nýrrar brúar yfir Þjórsá á móts við þorpið Árnes hefur verið boðin út ásamt nýbyggingu Búðafossvegar. Brúarsmíðin og vegarlagningin boða einhverja mestu samgöngubyltingu í uppsveitum Suðurlands um áratugaskeið. Dæmi eru um að leiðir milli einstakra byggða í Árnes- og Rangárþingi styttist um yfir fimmtíu kílómetra.

Innlent
Fréttamynd

Þýska lands­liðið spegli land stöðnunar

Þýskaland er úr leik á HM eftir tap gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni. Fallið er stórt áfall fyrir fjórfalda heimsmeistara en í Þýskalandi hefur umræðan ekki aðeins snúist um vítaspyrnur, leikskipulag eða framtíð Julian Nagelsmann. Sumir þýskir miðlar hafa gert ósigurinn að stærri spurningu: hvort landsliðið endurspegli ástand lands sem glímir við stöðnun, slitna innviði og þrýsting á gamla efnahagsmódelið.

Erlent
Fréttamynd

Ardian veðjar á nor­ræn gagna­ver með mörg hundruð milljarða fjár­festingu

Franski sjóðastýringarisinn Ardian hyggst fjárfesta fyrir meira en þrjá milljarða evra í gagnaverum og stafrænni innviðauppbyggingu á Norðurlöndum á næstu árum, en undir merkjum Verne Global stendur félagið nú meðal annars að stórum fjárfestingum í gagnaveri sínu á Íslandi. Fjárfestingafélagið veðjar á að samkeppnishæf endurnýjanleg orka, nægt landrými og náttúruleg kæling á Norðurlöndum muni gegna lykilhlutverki til að mæta sívaxandi orkuþörf gervigreindar.

Innherji
Fréttamynd

Meira afl fyrir orkuna

Líkur eru á að raforkuþörf samfélagsins verði ekki uppfyllt á allra næstu árum. Þetta eru ekki ný sannindi, þau hafa endurspeglast í umræðum um orkuöryggi og í spám Orkustofnunar og Landsnets.

Skoðun
Fréttamynd

Sér Blöndu­ós eflast með byggðalínu og virkjunum

Oddviti Húnabyggðar vonast til að orka Blönduvirkjunar muni í vaxandi mæli nýtast til atvinnuuppbyggingar á Blönduósi með nýrri byggðalínu. Hann hvetur jafnframt til þess að meira verði virkjað á Blöndusvæðinu sem fyrst.

Innlent
Fréttamynd

„Planið“ sé byrjað að virka

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra er gestur Íslands í dag á Sýn í kvöld þar sem hún sest niður með Elísabetu Ingu Sigurðardóttur fréttamanni og fer meðal annars yfir störf þingsins á liðnum vetri, efnahagsmálin og þjóðaratkvæðagreiðsluna í lok ágúst.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varm­á

Athuganir óháðra sérfræðinga í Varmá eru að engar vísbendingar hafi komið fram um fiskdauða eða annað umfangsmikið tjón á lífríki árinnar. Þá er jafnframt ekkert sem bendir til fækkunar fugla. Veitur stöðvuðu við lok síðasta mánaðar borframkvæmdir í Skammadal. Árfarvegurinn í Varmá var orðinn gruggugur og íbúar höfðu miklar áhyggjur af dýralífi. Óháðir sérfræðingar hafa tekið út áhrifin síðustu vikur. Ræða á aðgerðir Veitna og leitina á íbúafundi á morgun.

Innlent
Fréttamynd

„Ljóst að deilunni er ekki lokið“

Náttúruverndarsamtök furða sig á niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur sem gaf í gær grænt ljós á virkjunarleyfi Landsvirkjunar vegna Hvammsvirkjunar. Dóminum verði að öllum líkindum áfrýjað.

Innlent
Fréttamynd

Fram­kvæmdir við Hvammsvirkjun í vari út árið

Lögmaður Landsvirkjunar í máli sem landeigendur við Þjórsá höfðuðu til að stöðva framkvæmdir við Hvammsvirkjun segir framkvæmdirnar í vari út árið, hvað sem líður mögulegri áfrýjun landeigendanna.

Innlent
Fréttamynd

Ari missti af fyrsta fundinum

Ari Edwald, oddviti Miðflokksins í Reykjavík, var fjarverandi á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar í dag þar sem hann var erlendis. Hann segist eiga eftir að ákveða hvort hann þiggi boð nýs borgarstjórnarmeirihluta um að gerast stjórnarformaður í Orkuveitu Reykjavíkur, en hann væntir þess að taka þá ákvörðun í næstu viku, þegar búið verður að tilnefna í stjórn.

Innlent
Fréttamynd

Kári beislaður við Vaðöldu

Framkvæmdir eru nú hafnar við vindorkuver Landsvirkjunar á Vaðöldu. Þetta er stórframkvæmd í orkuöflun með umtalsverð áhrif. Framleiðslugeta vindorku er meira á veturna en á sumrin sem er einmitt öfugt við vatnsaflsvirkjanir. Kerfislega vinna því vatn og vindur vel saman. Á Vaðöldu er verið að reisa 28 vindmyllur sem er ætlað að framleiða raforku, en hvað þýðir það nákvæmlega?

Skoðun
Fréttamynd

Jarð­hiti sem samkeppnisforskot

Hvar er best að byggja upp starfsemi sem byggir á orku? Í heimi þar sem samkeppni um hreina orku, innviði og hæft starfsfólk fer vaxandi skiptir staðsetning sífellt meira máli.

Skoðun
Fréttamynd

Ari Edwald enn undir feldi

Ari Edwald oddviti Miðflokksins í borginni hefur ekki enn gert upp hug sinn varðandi tillögu Hildar Björnsdóttur, verðandi borgarstjóra og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um að hann taki að sér stjórnarformennsku í Orkuveitunni.

Innlent
Fréttamynd

Bora eftir jarð­hita á Tenerife

Reykjavík Geothermal, í samstarfi við stjórnvöld og orkufyrirtæki á Tenerife, hefur hafið jarðhitaboranir til raforkuframleiðslu á Kanaríeyjum. Verkefnið er sagt marka stór tímamót í vegferð eyjanna í átt að hreinni, öruggari og staðbundinni orkuframleiðslu.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Líta stöðuna í Varm­á mjög al­var­legum augum

Umhverfis- og orkustofnun, UOS, lítur það mjög alvarlegum augum að set frá jarðborun Veitna í Skammadal hafi borist í Varmá. Stofnunin telur að Veitur hefðu mátt koma í veg fyrir þetta með betri og faglegri undirbúningi áður en framkvæmdin hófst en segir Veitur hafa fylgt öllum leiðbeiningum um úrbætur. UOS sinnir eftirliti vegna borana Veitna við Varmá.

Innlent