Skoðun

Peningaglýjuórar meiða ís­lenskan al­menning -Opið bréf til Krist­rúnar Frostadóttur for­sætis­ráð­herra

Örn Karlsson skrifar

Sárveikur grundvöllur íslenska hagskólans

Árið 2010 átti ég í ritdeilu um verðtryggingu á síðum Pressunnar við lektor við hagfræðideild Háskóla Íslands. Mín afstaða í þessari ritdeilu var að Íslendingar þyrftu að átta sig á að þegar atvik ótengd peningum leiða til hækkunar á verði stakrar vöru í vörukörfu vísitölu neysluverðs, til dæmis þegar þurrkar í Brasilíu leiða til verðhækkunar á kaffi, þá leiði slíkt til raunhækkunar verðtryggðs lánasamnings sem er bundinn vísitölu neysluverðs að lögskiptum. Að verðgildi greiðslumyntarinnar okkar krónunnar breytist ekki við slíkt atvik í Brasilíu. Krónan geti enn keypt sama magn erlendra gjaldmiðla og sama magn annarra vara en kaffis því hún sé jafnsterk eftir atvikið í Brasilíu, innra virði hennar sé óbreytt að öðru óbreyttu.

Í svargrein lektorsins, sem birtist í Pressunni 4. sept. 2010, segir orðrétt:

Að tala um að lán hækki þegar skógareldar geisa í Rússlandi eða uppskerubrestur verður í Brasilíu er einfaldlega röng orðanotkun. Lánin hækka ekki, það er gjaldmiðillinn sem rýrnar.

Það þarf að gefa sér þessa ósönnu einföldun á peningaheiminum, sem lektorinn lýsti þarna, til þess að réttlæta megi kennsluhætti hagfræðideildar Háskóla Íslands er varðar vaxta og peningamál, sömuleiðis til að réttlæta megi ákvarðanir Seðlabanka Íslands í peninga og vaxtamálum og til að réttlæta megi tilvist verðtryggingar á íslenskum neytendamarkaði.

Þessi ósanna einföldun, sem lygasögu má kalla, er því miður, enn borin uppi og varin af ráðandi hagfræðingum í stjórnkerfi Íslands.

Á grundvelli lygasögunnar eru Íslendingar m.a. vændir um ákveðna heimsku eða kvilla sem hefur fengið greiningarnafnið „peningaglýja“. Að þeir Íslendingar sem telji að verðtryggð lán þeirra hafi hækkað umfram velsæmi séu haldnir þessum kvilla. Í sjálfskipuðum flokki greinenda á íslenskum almenningi, sem komist hafa að þessari niðurstöðu, eru m.a. Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra (Vísbending 16. tbl. 2012) og Dr. Ásgeir Daníelsson fyrrum forstöðumaður hagrannsókna á peningastefnusviði Seðlabanka Íslands.

Dr. Ásgeir Daníelsson hefur nú sent inn í samráðgátt Alþingis umsögn við áform stjórnvalda um breytingar á verðtryggðum húsnæðislánasamningum. Þar hvetur Dr. Ásgeir til frekari verðtryggingar og geldur varhug við styttingu verðtryggðra lána því hagkvæmni verðtryggingar sé meiri eftir því sem lánstíminn er lengri. Ásgeir rekur óánægju almennings með verðtryggð lán til fyrrgreinds kvilla, peningaglýju og hvetur stjórnvöld til að sýna í verki að slík glýja takmarki ekki sýn þeirra á efnahagsmál.

Orðrétt segir Dr. Ásgeir í athugasemdum sínum:

Í þessu samhengi er rétt að minna á að verðtrygging fjárskuldbindinga er aðferð til að draga úr óvissu varðandi raunávöxtun og greiðslubyrði vegna ófyrirsjáanlegrar verðbólgu. Þessi óvissa er meiri ef lánstíminni er langur og þess vegna verður hagkvæmni verðtryggingar meiri eftir því sem lánstíminn er lengri.

Peningaglýja (e. money illusion) felst í því að (hag)aðilar í hagkerfinu ruglast á nafnvirði og raunvirði fjárhæða. Sumir ruglast á hækkun nafnlauna og hækkun raunlauna og sumir ruglast á nafnvöxtum og raunvöxtum þar sem búið er að draga frá verðbólguþátt nafnvaxta. Það er mikilvægt að stjórnvöld sýni í verki að slík glýja takmarkar ekki sýn þeirra á efnahagsmál.

Setjum nú til samhengis þá birtingarmynd sem blasir við skuldara verðtryggðs láns í dag. Frá árinu 2020 hefur gengi Íslensku krónunnar gagnvart Evru haldist óbreytt í meginatriðum, það var 140 kr. í júní 2020 og er svipað í dag. Vísitala neysluverðs sem ákveður lögskiptin í verðtryggðum lánasamningum hefur á sama tíma hækkað um 45%. Daði Már og Ásgeir Daníelsson vilja meina að fólk sem telur að verðtryggðu láninn hafi hækkað meira en sem nemur rýrnun krónunnar á tímabilinu sé ekki tengt raunveruleikanum, kvillinn peningaglýja villi því sýn.

Hvað er rétt, hver fer með rétt mál? Eru það Daði Már Kristófersson og Dr. Ásgeir Daníelsson eða almenningur sem finnur á eigin skinni að vitlaust er gefið? (Þegar þjóðin hefur verið spurð í könnunum þessa öldina hefur um 80% viljað afnám verðtryggingar.)

Raunveruleikinn

Almenningur hefur rétt fyrir sér. Raunveruleiki Daða Más og Ásgeirs Daníelssonar er ímyndaður. Íslenskur almenningur býr ekki í hinum ímyndaða heimi íslenska hagskólans, hann býr og lifir í þeim veruleika hvar raunhnykkir eiga sér stað, t.d. að olía geti hækkað vegna rósturs og að íbúðarverð geti hækkað vegna skorts, algerlega óháð verðgildi greiðslumynta. Almenningur lifir í þeim heimi hvar stakar vörur geta hækkað að raunvirði vegna atvika í umhverfi þeirra, óháðra peningum og verðgildi þeirra.

Rétt er að benda á á þessu stigi að markmið Ólafslaga með verðtryggingu var að jafna stöðu skuldara og lánveitanda í eignalegu tilliti. Í núgildandi lögum er markmiðið það sama, talað er um að mæta rýrnun greiðslumyntarinnar (sparifjárins).

Banki sem lánaði verðtryggt í krónum talið ígildi einnar milljónar Evra árið 2020 á í dag milljónina sem hann lánaði og að auki ígildi fjögurhundruð og fimmtíu þúsund Evra í gegnum verðtrygginguna auk allra vaxtanna á tímabilinu. Er bankinn jafnsettur í eignalegu tilliti eða hefur bankanum verið hyglað? Hefur framkvæmd verðtryggingarinnar verið í samræmi við markmið laganna um verðtryggingu? Ef svarið er nei, hvað þýðir það þá í lagalegu tilliti?

Hagfræðibyltingin sem náði ekki til Íslands

Draumaheimur Daða Más, Dr. Ásgeirs og seðlabankans hrundi á 10 áratug síðustu aldar. Í ljós kom að lífið átti ekki samleið með hugarburði þeirra og þorra hagfræðinga. Það virðist hins vegar sem enginn hafi sagt Íslendingum frá stórtíðindunum og því lifum við enn inni í gömlu lygasögunni hvar verðgildi greiðslumyntarinnar okkar (innra virði hennar) breytist í fullkomnum takti við vísitölu neysluverðs. Og þess vegna, af því að við stjórnum peningamálum okkar í samræmi við lygasögu en ekki í samræmi við veruleikann sem við lifum í er hér allt í einni klessu. Já bara hreinlega allt sem tengist peningamálum!

Á 10. áratug síðustu aldar kepptust peningahagfræðingar frjálsra hagkerfa beggja vegna Atlantsála við að greina hvað fór úrskeiðis í olíukreppunum á áttunda áratug síðustu aldar. Sérstaklega var það áleitin spurning hvað það var sem varð til þess að kreppuverðbólga braust út?

Fyrstan skal nefna Ben Bernanke, sem ásamt Mark Gertler, og Mark Watson fundu út í rannsókna sinni „Systematic Monetary Policy and the Effects of Oil Price Shocks" að olíukreppurnar á áttunda áratug síðustu aldar orsökuðust af hertri peningastefnu en ekki olíuverðshækkuninni sjálfri. Að hækkun stýrivaxta sem viðbragð við hækkaðri vísitölu neysluverðs stafandi frá raunhækkun olíuverðsins hafi verið ástæðan fyrir kreppuverðbólgunni sem birtist í kjölfarið en ekki sjálf olíuverðshækkunin.

Þessi niðurstaða hefur í dag almennt gildi við peningastjórn og þá er gjarnan vísað til„The Bernanke consensus“

Okkar seðlabankastjóri, Ásgeir Jónsson, hefur viðurkennt, á skjön við „The Bernanke consensus“, að hafa hækkað stýrivexti til svars hækkunar vísitölu neysluverðs vegna raunhækkunar húsnæðisverðs og vegna raunhækkunar olíuverðs. Hann viðurkennir að hann hækki stýrivexti í takti við og 3% upp fyrir vísitölu neysluverðs sama hvort rætur hækkunarinnar megi rekja til atvika óháðra peningum eða ekki. Með þessu framferði hefur seðlabankinn kallað yfir okkur misgengi og kreppuverðbólgu í samræmi við hvað ætla mætti út frá rannsóknum Bernanke og félaga. Vegna uppeldis síns við íslenska hagskólann gerir Ásgeir engan greinarmun á atvikatengdum verðhækkunum, óháðum verðgildi peninga og peningatengdum verðhækkunum, sem leiða af rýrnun innra virðis greiðslumyntarinnar. Hann er ennþá fastur í klisjunni þeirri að öll hækkun vísitölu neysluverðs sé peningatengd og sem seðlabankinn verði þá að tækla með þeim afleiðingum sem við nú upplifum. Til marks um hversu fastur hann er í gömlu hugmyndafræðinni talar hann nánast í sífellu um raunvexti. Hans raunvextir eru þeir vextir sem birtast þegar breyting vísitölu neysluverðs hefur verið dregin frá nafnvöxtum. Hann lifir í lygasögunni fyrrnefndu, þeirri að allar breytingar vísitölu neysluverðs leiði beint frá breytingum innra virðis greiðslumyntarinnar. Í veruleikanum sem almenningur lifir í eru raunvextir hins vegar nafnvextir að frádreginni breytingu á verðgildi krónunnar, eða innra virði hennar. Þarna er reginmunur á að minnsta kosti þennan áratuginn þegar atvikatengdar verðhækkanir hafa komið í síbylju og verið upptaktur og meginstofn hækkunar vísitölu neysluverðs. Seðlabankastjóri hefur því vanmetið raunvexti meira og minna allan þennan áratug og haldið stýrivöxtum hærri sem nemur vanmati sínu. Endalaust þvaður um raunvexti byggt á lygasögunni góðu er séríslenskt fyrirbrigði við peningastjórn og leiðir til hærri vaxta, ósjálfbærs gengis, misgengis í efnahagslífinu, þrálátrar verðbólgu, aukinnar misskiptingar og hefur því meiðandi verkun á íslenskan almenning.

Á sama tíma og Bernanke og félagar komu fram með sínar hugmyndir glímdi ungur hagfræðingur, Carsten K. Folkerstma, við sama verkefni hinu megin Atlantsála. Á tímabilinu frá 1996 til aldamóta sökkti hann sér í greiningu á verðbólgu, sér í lagi hvernig nálgast megi þann þátt hennar sem tengist rýrnun peninga. Árið 1997 birti Hollenski Seðlabankinn rannsóknarritgerð Folkertsma og M. M. G. Fase „Measuring inflation: an attempt to operationalize Carl Menger's concept of the inner value of money“ og árið 2000 birti Hollenski seðlabankinn rannsóknarritgerð Folkertsma og Kirstin Hubrich „Performance of Core Inflation Measures“. Ritgerðin var einnig birt síðla árs 2001 í tímaritinu De Economist.

Það er skemmst frá að segja að Folkertsma og félagar tættu í sig og sundurlimuðu söguna sem gengið hefur sem kennisetning meðal íslenskra hagfræðinga og er grundvöllur helst allra peningamála Íslands, söguna um að innra virði krónunnar breytist í fullkomnum takti við breytingar á vísitölu neysluverðs. Merkja má af tilvísuðum rannsóknum þeirra félaga að innra virði greiðslumyntar breytist ekki í takti við vísitölu neysluverðs, og sér í lagi ekki þegar atvik ótengd peningum hafa áhrif á raunverð einstakara vara (real shocks). Þannig er á rannsóknum byggt hægt að fullyrða að sagan fyrrnefnda er lygasaga.

Það er af Folkertsma að frétta að verk hans sem miða að brúarsmíð milli klassískra kennisetninga til framkvæmdar á peningastefnusviði hafa átt upp á pallborðið í evrópskri peningastjórn. Hann hefur gegnt embætti aðalhagfræðings Seðlabanka Evrópu og gegnir nú ráðgjafahlutverki á peningastefnusviði hjá BIS (Bank of International Settlements).

Forsætisráðherra og afnám verðtryggingar

Það er sumpart tilefni þessara skrifa að forsætisráðherra sendi mér sneið, eða að minnsta kosti sneið sem ég tók til mín vegna þessarar greinar minnar á Vísi og fleiri um ólögmæti verðtryggingar. Í viðtali í ágætum þætti Sprengisands þann 13. september síðastliðinn sagði forsætisráðherra:

Það eru einhverjir þarna úti búnir að selja afnám verðtryggingar sem það að allt í einu færðu bara verðtryggðu vextina þína á nafnvöxtum, skilurðu, þú ert bara með 5% óverðtryggða vexti. Það verður augljóslega ekki þannig.

Þegar það liggur fyrir að sagan, sem sögð hefur verið í áratugi meðal íslenskra hagfræðinga er ósönn, um að verðgildi eða innra virði krónunnar breytist í fullkomnum takti við vísitölu neysluverðs, þá þegar liggur jafnframt fyrir að framkvæmd verðtryggingar á Íslandi stangast á við markmið laga um verðtryggingu. Lögin eru því lögleysa. Lögin eru reyndar ólögleg af fleiri ástæðum sem ég hef áður rakið í greinum hér á Vísi.

En skýrum betur þessa tilteknu ástæðu fyrir ólögmæti verðtryggingar á neytendasviði eins og hún er framkvæmd. Eins og rakið er hér ofar er markmiðið með lögum um verðtryggingu að jafna stöðu skuldara og lánveitanda í eignalegu tilliti. Sem þýðir að leiðrétta á fyrir rýrnun verðgildis krónunnar. Vísitala neysluverðs er vissulega mögulega bær til einhvers mats á rýrnun krónunnar ef horft er til verulega langs tíma (áratuga) og jafnvel til skemmri tíma ef ekkert gerist í umhverfi einstakra vara í körfu hennar sem áhrif hefur á hlutfallslegt verð þeirra í samanburði við rest. En í veröldinni sem almenningur lifir í gerist slíkt nánast ekki eða í mjög stuttan tíma í senn. Þennan áratuginn eru sífelld atvik að spretta upp og uppákomur ótengdar peningum sem hafa haft veruleg áhrif á raunverð einstakra vara í körfu vísitölunnar. Vísitalan hefur því skoppað, aðallega upp, án þess að verðgildi krónunnar hafi breyst. Vísitalan hefur því í lögskiptum verðtryggðra lánasamninga fært lánveitendum leiðréttingu langt umfram rýrnun greiðslumyntarinnar. Ólögleg eignaupptaka í stórum stíl hefur verið af þessum sökum frá skuldugum með verðtryggð húsnæðislán til lánastofnana allan þennan áratug, þar með talið allan valdatíma forsætisráðherra.

Til þess að draumur forsætisráðherra og loforð um hallalaus fjárlög, lága verðbólgu og lága vexti verði að veruleika þarf fyrst að leiðrétta lygasöguna fyrrnefndu í gegnum allt stjórnkerfið. Eitt verkefnið á þeirri vegferð er að afnema verðtryggingu neytendalána. Og jú, besta niðurstaðan fyrir samfélagið allt er að verðtryggingin verði þurrkuð út með einu pennastriki á öllum neytendalánánum. Þá standa þeir sem skulda verðtryggt með vextina sem skrifaðir eru í skuldabréfin, hvort sem þeir eru 5% eða eitthvað annað. Fyrirhugaðar smáskammtalækningar stjórnvalda sem kallaðar hafa verið fyrsta skref til afnáms verðtryggingar eru sýndarmennska sem engu breyta. Lögleysan og eignaupptakan verða óbreytt eftir sem áður. Hvað veldur verkleysi stjórnvalda í þessu mikilvæga máli, sem hefur stuðning þorra þjóðarinnar? Er það verkkvíði eða hagsmunabarátta á bak við tjöldin eða þvælist lygasagan ennþá fyrir, jafnvel innan ríkisstjórnarinnar?

Sterkur leikur í enduruppbyggingu peningamála Íslands er að leita ráðgjafar utan landssteina hjá virtum atvinnumanni sem er ótengdur íslenska hagskólanum og ótengdur íslenskum hagsmunum. Fyrsti valkostur að mínu mati er Carsten Folkertsma. Fleiri koma auðvitað til greina, áðurnefnd Kirstin Hubrich hefur t.d. verið í því hlutverki hjá seðlabönkum beggja vegna Atlantsála.

Allt að einu þarf að höggva á viðvarandi ranghugmynd íslenskra hagfræðinga um vísitölu neysluverðs, þá að hún endurspegli rýrnun innra virðis greiðslumyntarinnar sem gefi þá möguleika á að nýta hana til útreiknings raunvaxta, lögskipta í verðtryggðum lánasamningum, sem viðmið um stýrivexti og til grundvallar mati á því hvort fólk sé haldið brenglun eða heimsku sem kennd er við peningaglýju.

Þegar fólk finnur á eigin skinni að verðtryggð lán þess hafa hækkað óeðlilega og meira en sem nemur rýrnun verðgildis krónunnar t.d. vegna áhrifa raunhækkunar húsnæðisverðs eða raunhækkunar olíuverðs á vísitölu neysluverðs er engin ástæða til að uppnefna það og festa á það merkimiða peningaglýju. Fólkið er næmt og skynjun þess kórrétt.

Höfundur er vélaverkfræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×