„Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Sögur útgáfa 30. október 2026 08:44 Rósella Mosty byrjaði árið 2019 að skrá minningar um Ester Evu, elstu dóttur sína, og veikindi hennar en Ester Eva lést úr magakrabba einungis 28 ára gömul. Rósella Mosty, skartgripahönnuður og höfundur bókarinnar Sagan mín, sagan hennar, er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið í Boston frá árinu 1995. Í bókinni segir hún frá lífi sínu og fjölskyldunnar, þar á meðal veikindum og missi dóttur sinnar, Esterar Evu. Skrifin hófust sem persónulegar minningar en urðu að frásögn sem nær yfir áratugi í lífi Rósellu.
Rósella hóf árið 2019 að skrá minningar um Ester Evu, elstu dóttur sína, og veikindi hennar en Ester Eva lést úr magakrabba einungis 28 ára gömul. Skrifin voru leið til að vinna úr missinum en verkefnið vatt upp á sig. „Upphaflega ætlaði ég einungis að skrifa um hennar veikindaferli, en við fjölskyldan höfum lent í miklum hrakningum í lífinu og oft þurft að lúta í lægra haldi. Við höfum meðal annars misst þrettán fóstur. Eiginmaður minn, Ágúst Felix Gunnarsson, greindist með flogaveiki af völdum heilaæxlis ásamt því að fá mjög slæmt hjartaáfall og var honum vart hugað líf. Ég missti föður minn af slysförum þegar ég var fimmtán ára gömul. Þetta er einungis brot af okkar lífsgöngu, þannig að það bættist alltaf við minningarnar og þegar upp var staðið voru þetta orðnar nokkur hundruð blaðsíður.“ Úr varð bókin Sagan mín, sagan hennar, sem Sögur útgáfa gefur út. Þar fjallar Rósella bæði um aðdraganda veikinda dóttur sinnar og líf fjölskyldunnar í sorg eftir andlát hennar. Hún segir mikilvægt að frásögnin nái einnig til þess tímabils. „Þetta er mjög persónuleg saga af lífi mínu og fjölskyldunnar og þeim erfiðleikum og áföllum sem við höfum þurft að takast á við. Þetta er saga um líf, ást, sorg og missi, en líka um það sem gerist eftir að maður verður fyrir áfalli og þarf einhvern veginn að halda áfram. Og sumar sögur verður maður bara að segja.“ Fjölskyldumyndataka sem fór fram í nóvember 2016. Þarna var hún komin með krabbameinið án þess að við vissum af því. „Ég held að margir geti tengt við bókina, hvort sem það er sorgin, ástin, fjölskyldan eða það að þurfa að halda áfram þegar lífið tekur óvænta stefnu. Öll þekkjum við sorg á einn eða annan hátt. Margir glíma við frjósemisvanda og þurfa að notast við tækni- eða glasafrjóvgun eins og við hjónin gengum í gegnum margsinnis. Margir hafa upplifað fósturmissi einu sinni eða oftar og það getur verið mikið áfall, en við verðum einhvern veginn að halda áfram. Ég vona svo innilega að skrifin mín geti hjálpað einhverjum sem er að ganga þrautagöngu í lífinu, að bókin rati góða leið og verði til huggunar og styrks.“ Móðurhlutverkið tók breytingum Ester Eva, dóttir Rósellu, var ung móðir í blóma lífsins þegar hún veiktist skyndilega. Veikindi kölluðu á mikla umönnun og Rósella varði með henni öllum þeim tíma sem hún gat en þurfti jafnframt að laga sig að harkalega breyttum aðstæðum. „Það er ekkert erfiðara en að horfa upp á barnið sitt alvarlega veikt og hvað þá að vita að hún ætti ekki langt eftir í þessu jarðlífi. Móðurhlutverkið breyttist í eitthvað sem ég hefði aldrei getað ímyndað mér. Ég varð að sætta mig við að ég gat ekki lagað verkina, sjúkdóminn eða lofað henni að hlutirnir myndu lagast.“ „Ég gerði mér grein fyrir því að við myndum ekki sigra þennan illvíga sjúkdóm. Ég hafði ekkert um það að segja og varð að taka því að ég gat engu breytt.“ Uppáhalds módelmynd okkar allra af Ester Evu, tekin 2015. Ester Eva starfaði sem módel í mörg ár meðfram námi og vinnu eða alveg þangað til hún greindist með krabbamein. Ester Eva greindist í janúar 2017 og lést í júní sama ár. Rósella segir daglega samveru hafa skipt miklu máli og það sem hægt var að gera hverju sinni réðst af líðan Esterar Evu og kröftum hennar. „Ég notaði vel allan þann tíma sem ég hafði með dóttur minni. Ég lærði að litlu hlutirnir geta gefið mikið. Fallegur blómvöndur gat gefið okkur lit og góðan ilm inn í daginn, eða bara að halda í höndina á henni, strjúka henni um vangann, syngja lagið okkar, Sofðu unga ástin mín, þegar verkirnir voru miklir. Eða bara það að sitja þögul við hlið hennar og horfa á hana og sýna henni alla þá ást og umhyggju sem ég gat. Ég lærði líka að sem móðir er allt í lagi að vera hrædd, uppgefin og brotin. Við fengum líka mjög góða og persónulega þjónustu í bæði heimahjúkrun og á Mt. Auburn-spítalanum og það finnst mér skipta miklu máli. Margir læknar og hjúkrunarfólk urðu góðir vinir okkar á þessum tímum og ég er ennþá í sambandi við sumt af þessu frábæra starfsfólki.“ Umönnunin hafði einnig áhrif á samband þeirra og hlutverk Rósellu þegar Ester Eva var heima. „Hún þarfnaðist mikillar umönnunar og oftar en ekki varð móðurhlutverkið að víkja. Ég var ekki bara móðir hennar heldur líka hjúkrunarfræðingur þegar hún var heima. Ég varð að stíga inn í það hlutverk oftar en ég hefði viljað.“ Skrifin voru bæði sársaukafull og viss léttir Rósella segir sig hafa lagt áherslu á að lýsa eigin viðbrögðum af hreinskilni. Í frásögninni dregur hún ekki úr því hversu erfitt tímabilið var. „Ég er mjög hreinskilin og opinská varðandi veikindi og missi dóttur minnar og er ekkert að fegra hlutina sem gerast á þessum tíma. Ég segi á hispurslausan hátt frá minni líðan. Við mæðgur gengum upp Úlfarsfellið 2. júní sl. til minningar um Ester Evu sem lést á þessum degi árið 2017. Það var mjög erfitt og sársaukafullt að rifja ýmsa atburði upp og það kom oft fyrir að ég þurfti að leggja frá mér pennann. Það tók mig rúm sjö ár að skrifa, með góðum hléum. En á sama tíma var einnig viss léttir í því að koma þessu frá mér.“ Yngri dætur Rósellu og Ágústs voru sextán og þrettán ára þegar Ester Eva lést. Synir Esterar Evu voru þá aðeins þriggja ára og tíu mánaða. „Eitt af því sem hefur hjálpað okkur í gegnum allt þetta er hvað við erum sterk og samheldin fjölskylda. Það er mikill samgangur á milli okkar og Spencers, eiginmanns Esterar Evu, og drengjanna þeirra. Þeir búa um fjörutíu mínútum frá okkur og koma reglulega í heimsókn og gista þá oftast yfir helgi. Fjölskyldutengsl eru ómetanleg á svona tímum. Þar erum við svo sannarlega rík.“ Dagleg verkefni og húmor hjálpuðu Fjölskyldan og vinirnir voru helsti stuðningur Rósellu í daglegu lífi. Eftir útgáfu bókarinnar hefur hún jafnframt áttað sig betur á því hversu margir studdu hana. „Það sem hjálpaði mér mest í mínu daglega lífi við að komast í gegnum erfiðustu stundirnar voru fyrst og fremst fjölskyldan mín og vinir. Eftir að bókin kom út uppgötvaði ég að vinahópurinn minn er miklu stærri en ég hafði gert mér grein fyrir og fyrir það er ég þakklát. Það er gaman að segja frá því að eftir útgáfu bókarinnar hafa margir verið í sambandi við mig, þar á meðal gamlir skólafélagar og vinir sem ég hafði ekki heyrt frá í mörg ár. Þarna urðu mörg vinasambönd endurvakin, sem mér þykir auðvitað mjög vænt um.“ Hún fann sér líka verkefni á heimilinu og segist hafa lagt mikla vinnu í að mála og gera upp. „Öll málningarvinna kom líka sterkt inn, en ég réðst á allt það sem ég gat málað, hvort sem það voru veggir, loft, hurðir eða gólflistar. Og ekki má gleyma fræga forláta skápnum sem ég hirti upp af gangstétt í hverfinu okkar og gerði upp á einhverjum mánuðum, eitthvað sem ég tel að Ester Eva hafi vísað mér á.“ Við Ester Eva á keppninni um Ungfrú Ísland sem hún tók þátt í árið 2008. Húmorinn hefur einnig verið áberandi í lífi fjölskyldunnar, þrátt fyrir erfiðleikana. „Gleði og bara það að hlæja hressilega endrum og eins er auðvitað besta meðalið, en það hefur bjargað okkur hjónum og dætrum í gegnum árin. Við reynum að sjá spaugilegu hliðina á hlutunum og það hefur stundum komið okkur í ýmsan vanda á ólíklegum stöðum.“ Mikilvægt að halda áfram að hafa samband Aðspurð um stuðning við fólk í sorg segir Rósella mestu skipta að gefa sér tíma til að hlusta. Sjálf hafi hún þurft að tala mikið um Ester Evu og sú þörf sé enn til staðar. „Að eiga góða að, vera til staðar fyrir syrgjendur og kannski það allra mikilvægasta – að hlusta. Að vera góður hlustandi skiptir sköpum. Ég þurfti mikið á því að halda að tala um Ester Evu mína og geri enn þann dag í dag. Þá er gott að eiga sanna vini og fjölskyldu sem gefa sér tíma í að hlusta.“ Hún telur jafnframt mikilvægt að fólk haldi áfram að sýna áhuga og umhyggju þegar tími er liðinn frá andláti. „Ekki gleyma syrgjandanum, því þó svo að jarðarförinni eða minningarathöfninni sé lokið er sorgarferlið kannski bara rétt að hefjast. Sorgin ristir svo djúpt og getur verið til staðar í mörg ár á eftir eða jafnvel ævilangt. Hringdu í viðkomandi, kíktu í heimsókn, sýndu hlýhug. Þó að syrgjandinn sé ekki tilbúinn að tala við þig akkúrat núna máttu ekki gefast upp.“ Rósella bendir jafnframt á að sjálfsagt sé að hafa samband við hana ef þörf er fyrir hendi í gegnum Facebook/Messenger. Rósella segir þó ekki alltaf hafa verið augljóst hvernig henni leið. Hún hafi lengi reynt að leyna sorginni fyrir sínum nánustu. „Ég faldi sorgina mína í mörg ár og setti upp leikrit fyrir mína nánustu. En ég var einstaklega heppin að eiga skilningsríka mömmu og góða vinkonu sem sáu í gegnum leikþáttinn hjá mér og gagnvart þeim gat ég verið ég sjálf. Ég gat grátið að vild, verið reið eða óþolinmóð, en þær hlustuðu á mig þegar ég þurfti á því að halda. Það er engin ein regla þegar kemur að sorg eða sorgarferli. Við erum öll ólík og tökumst á við hlutina á mismunandi vegu.“ Þrjár sögur í einni bók Rósella lýsir bókinni sem þrískiptri frásögn. Hún segir sína sögu, sögu Esterar Evu og loks sameiginlega sögu fjölskyldunnar. „Hún er hluti af minni sögu og ég varð hluti af hennar, en Ester Eva á sína eigin rödd í þessari bók. Lesandinn fær innsýn í líf Esterar Evu og hvernig hún upplifði sín veikindi, með miklu æðruleysi, trú og vilja til að lifa.“ Meðal þess sem Ester Eva vildi láta verða af var að giftast æskuástinni sinni og föður drengjanna þeirra. Brúðkaupið fór fram á sjúkrahúsinu þremur dögum fyrir andlát hennar. Bókin fylgir síðan fjölskyldunni áfram. „Ég segi frá erfiðleikum sem við mættum í framhaldi af andláti hennar. Endalausum flótta, og ýmsum hindrunum sem urðu á okkar vegi í mörg ár á eftir. Þetta er saga um það hvernig fólk heldur áfram að lifa eftir missi, að finna aftur fótfestuna í lífinu og tilganginn að halda áfram.“ Við foreldrarnir og Spencer að lokinni Ungfrú Reykjavík keppninni sem Ester Eva tók þátt í árið 2008. Hún vonar að bókin geti gagnast fólki með ólíka reynslu, meðal annars þeim sem hafa glímt við frjósemisvanda og fósturmissi. „Ég held að margir geti tengt við bókina, hvort sem það er sorgin, ástin, fjölskyldan eða það að þurfa að halda áfram þegar lífið tekur óvænta stefnu. Ég vona svo innilega að skrifin mín geti hjálpað einhverjum sem er að ganga svona þrautagöngu í lífinu eins og við fjölskyldan og að bókin verði einhverjum til huggunar og styrks.“ Sköpunin sameiginlegt áhugamál Rósella hóf skartgripahönnun árið 2016 og segir Ester Evu hafa verið sinn dyggasta stuðningsmann. Hönnunin var sett til hliðar í veikindunum en ári eftir andlát dótturinnar tók hún aftur til við hana. „Hún hvatti mig eindregið áfram, og ég hannaði mikið þangað til hún veiktist. Einu ári eftir að hún lést tók ég upp þráðinn aftur og hannaði armband til minningar um hana. Það kom ekkert annað til greina en að hanna armband í hennar anda og það seldist gríðarlega vel.“ Þær mæðgur deildu áhuga á hönnun og handverki. Ester Eva var iðnhönnuður að mennt og Rósella segir hana alltaf hafa verið að hanna eða búa eitthvað til. „Ég held að við mæðgur höfum átt þetta sameiginlegt. Þessi sköpun gerði mikið fyrir okkur meðan Ester Eva lifði og hefur gert mjög mikið fyrir mig í mínu sorgarferli, en það er mikill lækningamáttur í því að að skapa eitthvað. Það má segja að öll hönnun og skrif hafi bjargað mér á svo margan hátt í lífinu.“ „Ég vona svo innilega að skrifin mín geti hjálpað einhverjum sem er að ganga svona þrautagöngu í lífinu eins og við fjölskyldan og að bókin verði einhverjum til huggunar og styrks.“ Rósella velur alltaf lífið Séra Vigfús Bjarni Albertsson ritar formála bókarinnar og segir sögu Rósellu ekki aðeins áhrifamikla heldur geti hún einnig veitt öðrum von og hjálpað þeim að takast á við eigin áföll. „Rósella kemur með mikið hugrekki í þennan heim, líklega er það hugrekki bæði vöggugjöf og afleiðing lífsreynslu hennar,“ skrifar hann og bætir við: „Rósella velur alltaf lífið.“ Hann segir að fólk sem hafi lifað af erfið áföll geti veitt öðrum von með sögu sinni. „Saga Rósellu ljær okkur von og heilun. Þetta er frásögn konu og fjölskyldu sem kallar fram hugleiðingar og tilfinningar. Þessi lífssaga gefur okkur þá gjöf að fara inn á við og heimsækja okkar eigin tilfinningar og lífssögu.“
Menning Bókaútgáfa Bókmenntir Mest lesið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Stundum gott að fara öruggu leiðina Tíska og hönnun Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf Patrick Stewart látinn Lífið Erna Mist og Þorleifur selja Lífið Fleiri fréttir „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur „Hörður Grímsson er orðinn lúxusvandamál“ Jólahlaðborð og jólabröns á verði sem kemur á óvart Halldóra Geirharðs og Nikko taka að sér fararstjórn á skíðum í Madonna á Ítalíu Kaffi Flauel er nýtt kaffihús í Árbæ Hræðilegir dagar í Partylandi Miðbær Nashville kemur til Reykjavíkur og Akureyrar Prótein á að vera í forgangi Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Fjarstætt að hugsa til þess að þetta myndi enda svona Haribo-kastalar og hrekkjavökugleði í Bónus Ég er full af lífsþrótti og vil eiga fullt af árum í viðbót Ef ég hefði komið einu til tveimur árum seinna hefðum við ekki verið að eiga sama samtal Nýja Garmin Fenix 9 sameinar allt það besta í einu úri Ég vissi sjálf að það var ekki í lagi Ég upplifði mjög sterkt að ég væri að bregðast Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Boney M og Herbert Guðmundsson stíga saman á svið á öðruvísi jólatónleikum Svansvottaðar gæðaíbúðir þar sem hugsað er fyrir hverju smáatriði Er bíllinn klár fyrir veturinn? Kíktu á vetrartékklista Bílanausts Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Rafha fagnar 90 árum með pönnukökum, afmælistilboðum og fjöri Smáralind breytist í tímavél um helgina Tennis, tónlist og samfélag: Happdrætti Blindrafélagsins skiptir máli Siglingar, safarí og suðrænar strendur meðal spennandi sérferða Húsgagnadagar hafnir í JYSK með allt að 40% afslætti Sjá meira