Enski boltinn

Gaf leik­mönnum Man United frí­dag eftir út­reiðina í Como

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Michael Carrick, stjóri Manchester United, ræðir málin við fyrirliðann Bruno Fernandes.
Michael Carrick, stjóri Manchester United, ræðir málin við fyrirliðann Bruno Fernandes. EPA/ADAM VAUGHAN

Vandræðaleg frammistaða leikmanna Manchester United í Meistaradeildinni á miðvikudagskvöldið þætti mörgum full ástæða til harðra viðbragða þjálfarateymisins en aðallið Manchester United fékk frí í dag í kjölfar niðurlægjandi 4-1 taps gegn Como.

Skellurinn á móti ítalska liðinu var stærsta tap United í Meistaradeildinni síðan liðið tapaði 4-0 gegn Barcelona í nóvember 1994, og lið Michaels Carrick situr nú í 21. sæti í töflu deildarkeppninnar eftir einn sigur og tvö töp í fyrstu þremur leikjum sínum í keppninni.

Þrátt fyrir umfang tapsins gegn liði Cesc Fàbregas, sem varð til þess að fyrirliðinn Bruno Fernandes gagnrýndi leikaðferð liðsins og Carrick svaraði með því að setja spurningarmerki við „hlaup“ leikmanna sinna, herma heimildir ESPN að leikmennirnir taki fyrir fram ákveðinn frídag sinn í dag áður en þeir hefja á föstudag undirbúning fyrir heimaleikinn gegn Bournemouth í ensku úrvalsdeildinni á sunnudag.

Flug United frá Ítalíu lenti í Manchester klukkan 00.20 aðfaranótt fimmtudags og samkvæmt heimildum var ákvörðunin um að gefa leikmönnum frí byggð á endurheimt fyrir leikinn um helgina gegn Bournemouth, sem mætir AC Milan í Evrópudeildinni á fimmtudag.

United hefur ekki unnið í síðustu sjö leikjum sínum í öllum keppnum og tapað fjórum þeirra, gegn Manchester City, Brighton, Atlético Madrid og Como.

Liðið fer inn í leikinn gegn Bournemouth í 13. sæti úrvalsdeildarinnar eftir að hafa aðeins unnið einn deildarleik á tímabilinu og óvissa ríkir um leikform nokkurra leikmanna, þar á meðal Luke Shaw, Marcus Rashford, Kobbie Mainoo, Lisandro Martínez, Ayden Heaven og Benjamin Sesko.

„Ég er pirraður, meira en pirraður. Ég er satt að segja virkilega reiður,“ sagði Michael Carrick eftir leikinn á fimmtudag.

„En maður verður að halda áfram, maður verður að takast á við það sem fram undan er og sjá hvernig það lítur út. Eins og staðan er núna er mikið verk að vinna fyrir næsta leik, til að gera liðið tilbúið, því þetta var erfitt kvöld fyrir alla,“ sagði Carrick.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×