Erlent

Sleit sam­bandi við föður sinn í ljósi á­sakana

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Thomas Markle hætti við að mæta í konunglegt brúðkaup dóttur sinnar Meghan Markle árið 2018 og bar fyrir sig heilsubrest.
Thomas Markle hætti við að mæta í konunglegt brúðkaup dóttur sinnar Meghan Markle árið 2018 og bar fyrir sig heilsubrest. AP

Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex og eiginkona Harry Bretaprins, sleit sambandi við föður sinn í fyrra og greindi honum frá því bæði hún og yfirvöld bæru vitneskju um að hann hefði misnotað ungar stúlkur. Hann fengi aldrei að umgangast banabörn sín framar. 

The Sun og BBC greina frá. BBC hefur eftir heimildarmönnum sínum sem nákomnir væru Meghan að hún hefði tjáð föður sínum að samskiptum þeirra á milli væri endanlega lokið og að hann myndi aldrei hitta barnabörn sín. Meghan og Harry Bretaprins eiga tvö börn, Archie prins og Lillibet prinsessu. 

Greint hefur verið frá því að Thomas Markle eldri hafi verið sakaður um vörslu barnaníðsefnis af syni sínum, Thomas Markle yngri, sem er hálfbróðir hertogaynjunnar. Sonurinn hafi uppgötvað efnið á heimili föðurins á Filippseyjum og tilkynnt það bæði til lögreglunnar og Alríkislögreglu Bandaríkjanna.

Talið sé að bréfið hafi borist Thomas Markle, 82 ára föður hertogaynjunnar, er hann lá á sjúkrahúsi í Filippseyjum í fyrra. Meghan hafi ekki verið í sambandi við föður sinn frá árinu 2018 en téð bréf hafi endanlega markað endalok þeirra sambands.

Lögðu hald á tölvu föðurins

Meghan Markle, leikkona, hertogaynja af Sussex og eiginkona Harrys Bretaprins, brást við fréttaflutningnum með yfirlýsingu þar sem hún sagðist hafa frétt af ásökununum árið 2018.

Þá hefur lögreglan í Lundúnum staðfest að hafa fengið bréf árið 2019 sem innihélt „ýmsar ásakanir“ á hendur Thomas Markle og að hertogahjónin hafi fengið að sjá bréfin en ekki aðrar lögreglustofnanir.

Filippseysk yfirvöld hafa staðfest að þau rannsaki ásakanirnar á hendur föður Meghan og sögðu BBC á föstudag að sérstakur starfshópur gegn mansali og kynferðisofbeldi gegn börnum hefði málið til rannsóknar. Jafnframt hefði lögreglan lagt hald á tölvu Thomas Markle eldri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×