Lífið

Theo­dór Elmar og Móheiður ást­fangin

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Móheiður og Theodór birtu mynd af sér saman á miðlunum um helgina og hafa sést saman á almannafæri.
Móheiður og Theodór birtu mynd af sér saman á miðlunum um helgina og hafa sést saman á almannafæri.

Theodór Elmar Bjarnason, stuðningsfulltrúi og fyrrverandi knattspyrnumaður, og Móheiður Guðmundsdóttir, leik- og söngkona, eru ástfangin upp fyrir haus og birtu filmumyndir af sér saman á samfélagsmiðlum um helgina.

Theodór og Móheiður hafa verið að slá sér upp undanfarna mánuði, mættu saman á sýningaropnun í Hannesarholti í ágúst og hafa sést saman í Vesturbæjarlauginni. Parið er á svipuðu reki, Theodór er fæddur 1987 en Móheiður árið 1993.

Theodór Elmar fór ungur að árum út til Celtic og spilaði í sautján ár erlendis með liðum á borð við Lyn, IFK Göteborg, Randers og AGF. Hann endaði ferilinn í Vesturbænum, var aðstoðarþjálfari KR eftir að hann lagði skóna á hilluna og fór svo að vinna sem stuðningsfulltrúi í Hagaskóla. Hann var í sambandi með tískubloggaranum Pöttru Sriyanonge í sextán ár og á með henni tvö börn.

Sjá einnig: Pattra og Brynjar slá sér upp

Móheiður Guðmundsdóttir er sviðs- og tónlistarkona sem hefur unnið að skipulagningu Airwaves og starfað náið með Björk Guðmundsdóttur, samið dans- og sviðshreyfingar og leikið í sýningunum Jónsmessunæturdraumur í Tjarnarbíói og Kæra náttúra, ertu að reyna að drepa mig? í Afturámóti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.