Veður

Veðrið ætti ekki að spilla hrekkja­vöku eins og í fyrra

Lovísa Arnardóttir skrifar
Fjölmargir skreyta hús sín og gefa nammi á hrekkjavökunni.
Fjölmargir skreyta hús sín og gefa nammi á hrekkjavökunni. Vísir/Sigurjón

Á fimmtudaginn er spáð hvassviðri snemma morguns en veðrið á að skána seinni partinn. Djúp lægð sem hafði verið spáð fyrir lok vikunnar nær líklega ekki inn á land. Þá segir veðurfræðingur að þó svo að það geti orðið slydda og vindur á laugardag muni veðrið líklega ekki spilla hrekkjavöku eins og í fyrra.

„Það er bara svona venjulegt haustveður,“ segir Haraldur Eiríksson veðurfræðingur á Veðurstofunni.

Hann segir spána auðvitað breytast dag frá degi en að við munum sleppa „þokkalega“ frá þessari lægð. Hann segir mesta vindinn vera á suðvesturlandinu en hann verði ekki óvenjulegur.

Fer vestar og ekki inn á land

Í síðustu viku spáði Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur „snarvitlausu veðri“ næsta föstudag. Um helgina kom svo fram að útlit væri fyrir að lægðin sem hafði verið sýnileg í langtímaspám myndi koma fyrr til landsins en fyrstu spár reiknuðu með að sögn veðurfræðings.

 Haraldur segir að nú megi sjá í spám að lægðin fari vestar en spáð hafði verið.

„Þetta verður djúp lægð en vonda veðrið nær ekki inn á land.“

Í fyrra var hrekkjavöku frestað vegna slæms veðurs. Haraldur segir að það megi ekki búast við því sama í ár. Það gæti orðið slydda og suðvestanátt og þó svo að veðrið verði kannski „ekki spennandi“ verði ekkert óveður.

„Veðrið ætti allavega ekki að setja neinn strik í reikninginn á hrekkjavöku,“ segir hann og að það verði fínasta veður á laugardag á NorðurNorður- og Austurlandi.


Tengdar fréttir

Draugar og ófreskjur taka yfir Húsdýragarðinn

Alls konar vættir, draugar og ófreskjur úr íslenskum sagnaarfi munu lifna við í Húsdýragarðinum í dag. Þjóðfræðingur sem mun leiða gesti um garðinn til að hitta umrædd skrímsli segir gönguna fyrir unga sem aldna en þó sé mikilvægt að þeir sem mæta séu hugaðir.

Tók tíu klukkustundir að komast í búninginn

Líkt og ár hvert heldur fyrirsætan Heidi Klum eitt vinsælasta hrekkjavökupartýið meðal stórstjarnanna. Það sem flestir fylgjast þó með er hvernig gestgjafinn klæðir sig enda er Heidi fremst í flokki þegar kemur að hrekkjavökubúningum.

Hrekkjavökubúningar sem er best að forðast

Hrekkjavaka hefur á síðustu árum orðið gríðarvinsæl hátíð hérlendis og margir á leið í búningapartý í kvöld. Vanda þarf þó búningavalið því sumir búningar þykja óviðeigandi, ósæmilegir eða hreinlega særandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×