Fótbolti

Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum

Sindri Sverrisson skrifar
Lazio-menn fagna einu af sex mörkum sínum gegn Sassuolo í kvöld.
Lazio-menn fagna einu af sex mörkum sínum gegn Sassuolo í kvöld. Getty/Marco Rosi

Þrátt fyrir að vera án Alberts Guðmundssonar og fleiri leikmanna vegna meiðsla gefur Lazio ekkert eftir og er nú með þriggja stiga forskot á toppi ítölsku A-deildarinnar í fótbolta.

Lazio vann sinn fimmta deildarleik í röð í kvöld þegar liðið lagði tíu leikmenn Sassuolo að velli, 6-2 á útivelli.

Hinn 23 ára gamli Romano Floriani Mussolini skoraði sitt fyrsta mark í ítölsku A-deildinni, nánast nákvæmlega 104 árum áður en langafi hans, fasistaleiðtoginn Benito Mussolini, komst til valda á Ítalíu.

Mussolini kom Lazio í 3-1 strax á 16. mínútu og hagur Lazio vænkaðist enn þegar Kristian Thorstvedt var rekinn af velli á 31. mínútu fyrir skelfilega tæklingu.

Sassuolo náði engu að síður að minnka muninn í 3-2, rétt áður en Mattia Zaccagni skoraði fjórða mark gestanna í lok fyrri hálfleiks. Tijjani Noslin skoraði svo tvennu í seinni hálfleik og innsiglaði sigurinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×