Viðskipti innlent

Verð­bólga stendur í stað

Árni Sæberg skrifar
Matvælaverð er meðal þess sem Hagstofan byggir verðbólgumælinguna á.
Matvælaverð er meðal þess sem Hagstofan byggir verðbólgumælinguna á. Vísir/Vilhelm

Verðbólga mælist nú 5,9 prósent og er óbreytt frá því í september. Vísitala neysluverðs hækkar um 0,44 prósentustig á milli mánaða. Þetta sýnir ný verðbólgumæling Hagstofu Íslands sem birt var rétt í þessu.

Greiningardeildir bæði Landsbankans höfðu spáð því að verðbólga myndi standa í stað í 5,9 prósentum. Landsbankinn spáði 0,49 prósenta hækkun vísitölunnar en Íslandsbanki 0,45 prósenta.

Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í október 2026, sé 700,4 stig og hækki um 0,44 prósent frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis sé 558,7 stig og hækki um 0,49 prósent frá september 2026.

Verð á dísel hafi hækkað um 11,2 prósent og haft 0,11 prósentustiga áhrif á vísitöluna til hækkunar og verð á bensíni hafi hækkað um 8 prósent og haft 0,16 prósentustiga áhrif á vísitöluna.

Síðastliðna tólf mánuði hafi vísitala neysluverðs hækkað um 5,9 prósent og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 5,9 prósent.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×