Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Samúel Karl Ólason skrifar 29. október 2026 15:14 Fremstu vagnar annarrar lestarinnar og öfutstu vagnar hinnar skemmdust mikið í slysinu. AP/Manu Fernandez Lestarslysið á Spáni í gær hefur leitt til spurninga um stöðu lestarkerfisins þar. Þetta er annað mannskæða lestarslysið á Spáni á einungis níu mánuðum. Að minnsta kosti 69 eru látnir eftir slysið í gær og fimmtíu eru á sjúkrahúsi.
Lestarkerfið á Spáni er mjög umfangsmikið og hefur lengi verið talið eitt af krúnudjásnum landsins. Það er næststærsta lestarkerfi heims, á eftir Kína, en í fyrra ferðuðust rúmlega 45 milljónir manna með því. Þar til fyrr á þessu ári hafði mannskætt slys ekki átt sér stað í rúma þrjá áratugi. Rúmlega fimm hundruð manns voru um borð í lestunum en önnur þeirra var kyrrstæð eftir að hafa verið stöðvuð vegna tölvubilunar. Hinni var ekið á þá kyrrstæðu á miklum hraða. Báðar lestir voru á leið frá höfuðborginni Madrid suður til Sevilla í Andalúsíu. Sjá einnig: Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Í janúar dóu 46 þegar ein lest fór af teinunum og lenti utan í annarri sem var að koma úr mótstæðri átt. Pedro Sánchez forsætisráðherra hefur heitið því að slysið verði rannsakað til hlítar. Þá segir hann þörf á aðgerðum og endurbótum til að bæta fyrir það traust almennings á lestarkerfinu sem hefur tapast. „Það er ljóst að við þurfum að bæta öryggi lestarkerfis okkar til að endurbyggja traust til þess. Það er óásættanlegt að land eins og Spánn upplifi tvö háhraðalestarslys á sama árinu.“ Bæði slysin áttu sér stað á sömu línunni milli Madrídar og Sevilla en línan var tekin í notkun árið 1992. Í báðum tilfellum var önnur lestin rekin af ríkisrekna fyrirtækinu RENFE og hin af einkafyrirtækinu IRYO, eins og fram kemur í grein AP-fréttaveitunnar. Krefjast afsagnar og verkföll boðuð Rannsóknin á slysinu snýr meðal annars að því af hverju RENFE-lestinni var leyft að halda áfram, þrátt fyrir áðurnefnda tölvubilun í kerfinu öllu. Sex lestir voru stöðvaðar vegna bilunarinnar. Grafík sem sýnir hvernig slysið varð.AP IRYO-lestin var sú kyrrstæða og lenti RENFE-lestin aftan á henni. Nokkrir vagnar beggja lesta urðu fyrir gífurlegum skemmdum. CCOO, eitt stærsta verkalýðsfélag Spánar, hefur kallað eftir því að Óskar Puente samgönguráðherra segi af sér. Í yfirlýsingu frá verkalýðsfélaginu, sem vísað er í í frétt El País, segir að það hvernig Puente hafi kennt starfsmönnum um slysið á meðan rannsókn standi enn yfir sé óviðeigandi og óábyrgt af ráðherra að gera slíkt. Sjá einnig: Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Verkalýðsfélag lestarstjórnenda hefur boðað verkföll meðal starfsmanna RENFE. Þeir ætla að krefjast endurbóta á kerfinu og bætts öryggis, svo hægt verði að koma í veg fyrir slys sem áðurnefnd tvö slys.
Spánn Mest lesið Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Fleiri fréttir Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Sjá meira