Spánn

Spánn

Höfuðborg: Madríd. Mannfjöldi: 48,6 milljónir (2025). Flatarmál: 505.990 ferkílómetrar.


Fréttamynd

Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram

Jón Egilsson hæstaréttarlögmaður aðstoðar nú hjón sem greiddu eina milljón fyrir gistingu á vegum Sólarmegin á Spáni. Hann segir fólkið á leið til Spánar í næstu viku og þau þurfi að finna sér aðra gistingu. Hann ráðleggur fólki að kæra svikin saman, á Íslandi og á Spáni. Lögreglu á Íslandi hafa ekki borist kærur vegna málsins. 

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Að­stoðar tugi fórnar­lamba Samúels á Spáni

Guðfinnur Friðriksson segir Samúel Jón Samúelsson, eiganda ferðaþjónustufyrirtækisins Sólarmegin, hafa svikið hann eins og aðra sem hann seldi gistingu á Spáni á fölskum forsendum. Guðfinnur gerði samning við Samúel í ágúst um að kaupa innviði félagsins og halda rekstrinum áfram, án þess að taka yfir fyrri skuldbindingar hans. Þegar hann tók við félaginu hafi komið í ljós að Samúel Jón hafði ekki staðið við neinar þeirra. 

Innlent
Fréttamynd

Óttast að yfir átta­tíu hafi farist

Talið er að um 80 manns hafi týnt lífi á ferð yfir Atlantshafið frá Gambíu til Kanarí. Báturinn fannst við strendur Kanarí 27 dögum eftir að hann er talinn hafa lagt af stað með 127 farþega innbyrðis. 

Erlent
Fréttamynd

Ætla að senda alla sem brutust inn í Ceuta til baka

Utanríkisráðherra Spánar segir að allir þeir sem fóru ólöglega inn í spænsku borgina Ceuta í Marokkó verði sendir til baka. Enginn þeirra hafi komist til meginlands Spánar og engin ógn steðji að Schengen-landamærasamstarfi Evrópuríkja.

Erlent
Fréttamynd

Ríf­lega hundrað og sex­tíu ung­menni hand­tekin

Enn hefur ekki tekist að svara því hvernig skógareldar í Frakklandi sem geisuðu í sumar hófust. Margir vilja meina að eldarnir séu birtingarmynd loftslagsbreytinga en þar sem níu af hverjum tíu skógareldum sem hafa komið upp í Frakklandi eru af mannavöldum leita yfirvöld nú logandi ljósi að sökudólgi. Þarlend ríkisstjórn hefur þó sjálf verið sökuð um að hafa verið illa undirbúin fyrir eldsvoðana og gripið seint inn í.

Erlent
Fréttamynd

Spán­verjar taka upp landa­mæra­eftir­lit gagn­vart Ítalíu

Spánn hefur tekið upp landamæraeftirlit á ferðamenn sem koma til landsins frá Ítalíu í kjölfar svipaðra aðgerða Ítalíu gagnvart Spáni. Deilur á milli ríkjanna hafa harðnað eftir að tugþúsundir flóttamanna streymdu inn á spænska sjálfstjórnarsvæðið Ceuta frá Marokkó í síðustu viku.

Erlent
Fréttamynd

„Hverjir eru á bak við það?“

Dómsmálaráðherra segir komu tugþúsunda manna til spænska landsvæðisins Ceuta ekki hafa ógnað Schengen-svæðinu. Sérstakar reglur gilda um svæðið og nær allir sem komu þangað hafa snúið aftur til Marokkó. 

Erlent
Fréttamynd

Von der Leyen kallar eftir á­taki um öruggari landa­mæri

Ursula von der Leyen forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins kallar nú eftir samhentu átaki allra Evrópuríkjanna um aukið öryggi á landamærum sambandsins eftir að tugþúsundir flóttamanna streymdu inn á spænska sjálfstjórnarsvæðið Ceuta frá Marokkó.

Erlent
Fréttamynd

Ráð­herrar Evrópu halda neyðarfund á þriðju­dag

Ráðherrar dóms- og innanríkismála aðildarríkja Evrópusambandsins munu funda í gegnum fjarfundabúnað á þriðjudaginn til að ræða þann mikinn fjölda farandsfólks sem gerði tilraun til að komast til spænsku hólmlendunnar Ceuta í vikunni.

Erlent
Fréttamynd

Kallað eftir skyndifundi innan­ríkis­ráð­herra ESB

Forsætisráðherra Spánar, Pedro Sanchez, hefur óskað eftir því að boðað verði í skyndi til fundar innanríkisráðherraráðs ESB. Tugþúsundir manna hafa á síðustu dögum synt af stað frá Marokkó yfir í hólmlenduna Ceuta sem er hluti Spánar en staðsett á meginlandi Afríku.

Erlent
Fréttamynd

Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta

Ströndin við víggirt landamæri Marokkó og spænsku hólmlendunnar Ceuta er þakin stökum skóm, yfirgefnum flíkum og hringkútum eftir að hátt í sextíu þúsund manns komust yfir þau á einum sólarhring.

Erlent
Fréttamynd

Tæp­lega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólar­hring

Stjórnvöld á Spáni hafa ákveðið að senda lögreglu og hermenn til borgarinnar Ceuta eftir að 49 þúsundir einstaklingar syntu þangað frá Marokkó á einum sólahring. Samkvæmt erlendum miðlum er aðallega um að ræða fullorðna karlmenn en talið er að um 7.000 séu undir lögaldri.

Erlent
Fréttamynd

Önnur hita­bylgja nálgast Spán

Ný hitabylgja er sögð nema land á Spáni á miðvikudag, en þar eiga viðbragðsaðilar í fullu fangi við að ráða niðurlögum skógarelda sem logað hafa frá því í síðustu viku.

Erlent
Fréttamynd

Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð

Skógareldar sem geisað hafa vestur af Madrídarborg á Spáni hafa brennt um 750 ferkílómetra svæði í Sierra Oeste-fjallgarðinum. Tugum þúsunda hefur verið gert að yfirgefa heimili sín, þeirra á meðal Hildur Kolbrún Andrésdóttir sem hefur varið helginni á fjöldahjálparstöð.

Innlent
Fréttamynd

Renni­braut vélarinnar hafi virkjast á flug­hlaði

Nítíu og þrír, eða helmingur farþega vélar Icelandair urðu eftir á flugvelli í Alicante á Spáni í dag eftir að hún var rýmd vegna bilunar í neyðarútgangi vélarinnar. Flestir þurftu að fljúga heim í fleiri en einum fluglegg. Flogið var til Íslands með hinn helming farþega vélar Icelandair eftir einhverja seinkun en barnafjölskyldur voru settar í forgang. 

Innlent
Fréttamynd

„Eins og ein­hverjir fá­vitar á gólfinu, korter í að grenja“

„Það kom enginn að tala við okkur. Það voru engar upplýsingar. Við stóðum og sátum eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja, allar geðveikt pirraðar og búnar á því. Klukkan var svo seint um nóttina. Síðan horfum við í kringum okkur og sjáum bara einhverjar fjölskyldur og krakka sofandi í ferðatösku. Það var líka einhver eldgömul kona að rífa kjaft við alla.“ 

Innlent
Fréttamynd

Fjöl­skyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt

Tugir Íslendinga, þar á meðal fjölskyldur með ung börn, voru skildir eftir á flugvellinum í Alicante á Spáni í nótt vegna bilunar sem kom upp í flugvél Icelandair. Allir farþegarnir voru komnir um borð í flugvélina þegar bilun á neyðarútgangi hennar varð til þess að hún var rýmd af farþegum og farangri og einungis helmingur farþega fékk að fara aftur um borð.

Innlent
Fréttamynd

Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fal­legt, fjallið er allt brunnið“

Íslensk-spænsk hjón sem eru búsett á Spáni þurftu að flýja heimili sitt í San Martín de Valdeiglesias í fyrradag vegna gróðurelda. Ragnar Bragason hefur verið búsettur á Spáni, ásamt eiginkonu sinni Mayte Santa Ceciliu, í um fjörutíu ár og segist ýmsu vanur. Gróðureldar séu hluti af daglegu lífi Spánverja á sumrin en þau hafi þó aldrei upplifað eins stóran eld á svæðinu. 

Innlent