Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Magnús Jochum Pálsson skrifar 30. október 2026 15:30 Fjórar af þeim þrettán hrollvekjum sem Páll Óskar mælir með fyrir hrekkjavökuna. Vísir/Vilhelm Hrekkjavakan er handan við hornið og því leitaði Vísir til helsta hrollvekjusérfræðings landsins, Páls Óskars Hjálmtýssonar, eftir meðmælum. Páll Óskar á kvikmyndasafn sem telur þúsundir titla, segir hrollvekjuna óhreina barn Evu í bransanum og mælir með þrettán góðum hrollvekjum.
Fyrir átta árum leitaði Vísir til Páls Óskar eftir hrollvekjumeðmælum. Hann mælti þar með fimm hrollvekjum sem væru skylduáhorf og svo fimm til viðbótar sem væru í sérlegu uppáhaldi. Sjá einnig: Hryllingsfíkillinn sýnir skuggalega safnið sitt Sígilda skylduáhorfið innihélt myndirnar Psycho (1960) eftir Hitchcock, The Shining (1980) eftir Kubrick, The Exorcist (1973) eftir Friedkin, The Thing (1982) eftir Carpenter og The Evil Dead (1981) eftir Raimi. Uppáhaldshrollvekjur Palla voru hins vegar Carrie (1976) eftir De Palma, Suspiria (1977) eftir Argento, The Gore Gore Girls (1972) eftir Herschell Gordon Lewis, Creepshow (1982) eftir George A. Romero og The Wicker Man: The Final Cut (1973) eftir Robin Hardy. Palli segir að hann gæti eflaust gefið sömu meðmæli og fyrir átta árum, áttundi áratugurinn sé enn sterkasta hrollvekjutímabilið. Síðustu ár hafi engin mynd sannað sig sem tímalaus klassík en hrollvekjurnar Hereditary og Obsession gætu fest sig í sessi. „Hafandi sagt það er búið að vera ógeðslega gaman að vera hrollvekjuaðdáandi síðustu tíu-fimmtán árin. Ég held að síðustu tveir áratugir stefni í að innihalda besta stöffið fyrir utan áttunda áratuginn,“ segir Palli. Hrollvekjur séu alltaf eitthvað sem fólk sækist í. „Ég held að ein helsta skýringin á því sé sú að hrollvekjur eru óhreina barnið hennar Evu í kvikmyndabransanum. En það gefur þeim um leið ákveðið frelsi til þess að tala um samtímavandamál með ákveðnum spegli eða stækkunargleri sem aðrir myndir geta ekki gert eða eiga erfiðara með,“ segir hann. „Hrollvekjan er aldrei raunsæ. Ef við ætlum að segja sögu Obsession og tökum út ævintýraþáttinn með óskabeinið þá er hún orðið sænskt vandamálaleikrit. Við getum sagt ofboðslega harða hluti í hrollvekjum sem aðrar myndir kæmust ekki upp með. Þess vegna lifir hrollvekjan.“ Styrkur hrollvekjunnar er að geta ögrað og vakið ólíkar skoðanir fólks á innihaldinu, líkt og sást á viðbrögðum við Obsession sem fólk túlkaði á æði ólíkan hátt. „Omen frá 1976 er um andkrist en er að vara okkur við Donald Trump. Videodrome eftir Cronenberg er spádómur um internetið, samfélagsmiðla og hvernig við lokum okkur inni í tækninni. Við erum með nefið ofan í snjallsímanum okkar allan daginn, eitthvað sem var ekki til 1983, en Videdrome spáir þessu, við erum límd fyrir framan skjá og vitum ekki muninn á raunveruleika og ímyndun,“ segir Páll Óskar. „Þetta er ástæðan fyrir því að ég elska hrollvekjur og mér finnst hann alltaf besti skíturinn.“ Palli ákvað að halda í sömu flokka og fyrir átta árum, týpískar hrollvekjur og hrollvekjur í uppáhaldi, en uppfæra báða lista sem telja alls þrettán myndir: Fimm týpískar hrollvekjur Halloween (1978) eftir John Carpenter Hereditary (2023) eftir Ari Aster Carrie (1976) eftir Brian De Palma Texas Chainsaw Massacre (1974) eftir Tobe Hopper Nightmare on Elm Street (1984) eftir Wes Craven Fimm hrollvekjur í uppáhaldi The Living Dead at Manchester Morgue (1974) „Það er ein sjaldséð zombie-mynd sem mér þykir alveg geggjuð og hún heitir The Living Dead at Manchester Morgue eftir Jorge Grau. Hún er spænsk en þau skjóta hana í Bretlandi af einhverjum ástæðum og þetta er falinn demantur í zombíelandi,“ segir Palli um fyrstu myndina. The Fog (1980) „Rosaflott draugamynd eftir John Carpenter. Ofsaklassísk draugasaga, góð skemmtun og stemming á hrekkjavökukvöldi,“ segir Palli um annað valið. Tenebrae (1982) „Giallo er í eðli sínu hver-er-morðinginn-mynd og gæti verið Derrick-þáttur. En þetta er eins og ítölsk tískusýning með blóði,“ segir hann um þriðja valið sem er eftir ítalska hrollvekjumeistarann Dario Argento. X (2022), Pearl (2022) og Maxxxine (2024) „Ég ætla að setja þrjár myndir í eina, þetta er tiltölulega nýlegur þríleikur, X, Pearl og Maxxxine, og ef þú horfir á allar þrjár einu er þetta eins og að horfa á sjónvarpsseríu,“ segir hann um þriðja valið. „Pearl er sérstaklega flott og einstaklega fallega gerð. X gerist á áttunda áratugnum, Pearl árið 1918 og Maxxxine á níunda áratugnum og hann passar sig á því að skjóta þær á viðeigandi hátt. Hann skýtur X á 35mm filmu eins og var gert í denn en Pearl er síðan Technicolor eins og Galdrakarlinn í Oz,“ bætir hann við. At Midnight I'll Take Your Soul (1964) og This Night I'll Possess your Corpse (1967) „Ég veit ekki hvar þú getur náð í síðustu myndina en það var brasilískur kvikmyndagerðarmaður sem hét José Mojica Marins, bjó til og lék karakterinn Coffin Joe og gerði hryllingsmyndir á sjöunda og áttunda áratugnum,“ segir Palli um síðasta valið. „Þessar myndir er stórkostlegar, klikkaðar og eins hrekkjavökulegar og frekast er unnt. Fyrstu tvær myndirnar sem hann gerði heita: At Midnight I'll Take Your Soul (1964) og This Night I'll Possess your Corpse (1967),“ bætir hann við. „Þessi gaur er klikkuð blanda af sjálfstæðu pönkbíói og brasilískum þjóðsagnararfi og hann bullar þennan óheillavænlega karakter Coffin Joe, útfararstjóra með mjög annarlegar hvatir. Þetta er í alvörunni uppáhalds.“
Bíó og sjónvarp Hrekkjavaka Mest lesið Nablinn hættur á leikskóla Lífið Hvað veistu um... Með allt á hreinu? Lífið Fjórðungur ekki með bókasafnskort Menning Stefnir Eiði vegna meðlagsskuldar Lífið Keppast um að minnast Stewarts Lífið Hvar eru Píratarnir sem fóru með himinskautum? Lífið Spesíur Elenoru: Jólaklassík sem tekur aðeins 30 mínútur Lífið samstarf „Ég hef þurft að læra að lifa með því sem ekki verður breytt“ Lífið samstarf Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Bíó og sjónvarp Skemmtileg leið til að halda minningunni á lífi Menning Fleiri fréttir Hrollvekjur til að horfa á yfir hrekkjavökuna Andlát Panettiere úrskurðað sem slys Enn og aftur dæmdur í fangelsi Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar White Lotus-stjarna bætist í leikhópinn Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Kempa leikstýrir tálbeitutrylli Ólafs Darra Glee snýr aftur Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Hleypur í skarðið vegna persónulegra mála Reeves Stelpurnar snúa aftur Horfa fram á sögulegt tap Diggers Kynlíf miðaldra kvenna í brennidepli Elma seld til útlanda Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Hrútar orðnir að kóreskum kálfum La Gradiva hlaut Gullna lundann „Þetta eru verstu fréttir sem ég hef fengið á ævi minni“ Gengst loksins við fjörutíu ára gömlu ástarævintýri með Turner Leikur í myndinni en skilur ekki nokkurn skapaðan hlut Bransafólk í blússandi fíling Hasar, húmor og hryllingur til að hámhorfa í haust Hjónin David Leitch og Kelly McCormick hlutu heiðursverðlaun RIFF Hlaut óvænt heiðursverðlaun RIFF Gugga í gúmmíbát handtekin á frumsýningu „Þetta snýst um líf og dauða“ Níu bíómyndir sem berjast um heitustu verðlaunin Sjá meira