Skoðun

Ólafur, gæsin og gulleggin

Kjartan Björgvinsson skrifar

Ólafur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Birtu lífeyrissjóðs, hefur lagt til að ríkið setji 20% hlut í Landsvirkjun á markað. Meðal raka hans er að fjölga fjárfestingarkostum, efla íslenska hlutabréfamarkaðinn og laða að erlenda fjárfesta.[1]

Landsvirkjun er eitt verðmætasta fyrirtæki þjóðarinnar. Þess vegna er eðlilegt að spyrja ekki aðeins hvort hugmyndin sé góð heldur líka um árangur þess sem gefur okkur þetta viðskiptaráð.

Ólafur hefur langan feril á íslenskum fjármálamarkaði. Hann var framkvæmdastjóri Stafa lífeyrissjóðs frá stofnun hans árið 2007 og hefur verið framkvæmdastjóri Birtu frá stofnun sjóðsins árið 2016.[2]

Það væri ósanngjarnt að halda því fram að hann hafi einn tekið allar fjárfestingarákvarðanir Birtu. Þar koma fleiri að málum. En framkvæmdastjóri Birtu stjórnar daglegum rekstri sjóðsins samkvæmt lögum, reglum og fyrirmælum stjórnar.[3]

Vandinn er ekki bara að fjárfestingar fari illa

Allir fjárfestar gera mistök.

Það sem vekur meiri athygli hjá Birtu er að sjóðurinn hefur í sumum tilvikum aukið stöðu sína eftir að fjárfestingin hafði þegar þróast mjög illa.

Play er skýrasta dæmið.

Í árslok 2023 var kostnaðarverð hlutabréfa Birtu í Play um 1,27 milljarðar króna, eignarhluturinn 9,4% og langtímaraunávöxtun fjárfestingarinnar –31,8% á ári.[4]

Árið 2024 hækkaði eignarhlutur Birtu í 10,4% og kostnaðarverðið í um 1,71 milljarð króna. Við árslok var markaðsvirðið aðeins um 196 milljónir króna og langtímaraunávöxtunin komin í –76,4%.[5]

Síðan fór Play í þrot. Birta staðfesti sjálf að uppsafnað kostnaðarverð hlutafjárfjárfestingarinnar hefði verið rúmlega 1,7 milljarðar króna og að eftirstandandi eign yrði að fullu töpuð við gjaldþrotið.[6]

Það er eitt að fjárfesta í fyrirtæki sem síðar fer illa.

Það er annað að sjá fjárfestingu með –31,8% langtímaraunávöxtun og auka síðan bæði eignarhlut og kostnaðarverð.

Svipaðar spurningar vakna vegna annarra fjárfestinga Birtu. Í árslok 2024 var langtímaraunávöxtun Iceland Seafood –17,1% og Icelandair –14,2%.[5]

Meiri áhætta – en fyrir hvað?

Meðalhrein raunávöxtun samtryggingardeildar Birtu síðustu fimm ár, 2021–2025, var 1,74% á ári.[7]

Berum það saman við ríkisskuldabréfaeign Birtu sjálfrar.

Raunávöxtun hennar var 2,2% árið 2021, –3,5% árið 2022, 2,1% árið 2023, 3,3% árið 2024 og 6,2% árið 2025. Samsett yfir tímabilið jafngildir það um 2,01% raunávöxtun á ári.[8–12]

Munurinn yfir öll fimm árin er ekki stór. En niðurstaðan er samt athyglisverð: einfaldari og áhættuminni eignaflokkur skilaði aðeins betur en heildarsafn sjóðsins.

Frá 2022 verður munurinn mun skýrari. Ríkisskuldabréfin skiluðu samkvæmt sömu tölum um 1,96% raunávöxtun á ári 2022–2025, en samtryggingardeild Birtu um –0,24% á ári á sama tímabili.

Birta tók því meiri áhættu án þess að fá samsvarandi ávöxtun fyrir hana.

Og þá er Landsvirkjun

Landsvirkjun hefur á sama tíma styrkt fjárhag sinn. Arðsemi eigin fjár var 6,4% árið 2021, 7,3% árið 2022, 9,1% árið 2023 og 6,8% árið 2024. Nettóskuldir lækkuðu úr um 1,09 milljörðum Bandaríkjadala í árslok 2021 í um 667 milljónir í árslok 2024 og eiginfjárhlutfallið hækkaði úr 59,1% í 66,2%.[13]

Fyrir rekstrarárin 2021–2024 námu samþykktar arðgreiðslur Landsvirkjunar til íslenska ríkisins samtals um 703 milljónum Bandaríkjadala.[14]

Árið 2025 var kjarnarekstrarhagnaður enn um 287 milljónir dala, eiginfjárhlutfall 64,5% og lagt til að greiddar yrðu 165 milljónir dala í arð.[15]

Þetta er ekki nákvæmlega sami mælikvarði og raunávöxtun lífeyrissjóðs. Landsvirkjun er rekstrarfyrirtæki en Birta fjárfestir.

Ólafur hefur keypt margar gæsir sem hafa verpt fúleggjum. Nú vill hann fá að kaupa gæsina sem verpir gulleggjum.

Eigum við að taka viðskiptaráðum frá Ólafi?

Höfundur er framleiðslutæknifræðingur.




Skoðun

Sjá meira


×