Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar 30. október 2026 10:17 Ég vil óska Runólfi Pálssyni innilega til hamingju með áframhaldandi ráðningu sem forstjóri Landspítala. Ég kynntist honum fyrst þegar ég var læknanemi og seinna sem sérnámslæknir. Við unnum aftur saman þegar ég kom heim sem nýr sérfræðingur í almennum lyflækningum. Ég hvatti hann eindregið til að sækja um stöðu forstjóra á sínum tíma og var ánægður þegar hann varð fyrir valinu. Ég hafði miklar væntingar til hans starfa og finnst hann hafa gert margt vel, en þó misvel. Í leiðara í glæsilegu októberhefti Spítalapúlsins talar Runólfur um framtíðina: Stöðnun er ekki valkostur. Þar er ég honum innilega sammála. Við verðum að tryggja fjármögnun Landspítala til að geta staðið undir launakostnaði, framþróun í þágu sjúklinga og starfseminnar, kennslu og vísinda. Runólfur segir spítalann vanfjármagnaðan. Fjárheimildir til spítalans hafa þó aukist jafnt og þétt á liðnum árum, líkt og kemur fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar frá árinu 2024 (6-13% á verðlagi hvers árs 2019-2024). Á sama tíma hefur legurýmum fækkað og starfsfólki fjölgað. Þá virðast legudagar, innlagnafjöldi og fjöldi aðgerða næstum hafa staðið í stað í áratug. Dagdeildum hefur þó fjölgað og starfsemi á göngudeildum virðist hafa aukist, þó vandasamt sé að rýna í þær tölur. Runólfur segir jafnframt að ekki sé gert ráð fyrir raunvexti umfram fast verðlag á næsta ári, sem hann segir að dugi ekki til. Í leiðaranum velur Runólfur að benda sérstaklega á samning við sjálfstætt starfandi lækna. Samningurinn kostaði hið opinbera tæpa 15 milljarða á síðasta ári. Kostnaður við samninginn hefur aukist, en leggja þurfti fram tæpa fjóra milljarða til leiðréttingar þegar samið var árið 2023 eftir næstum 5 ára samningsleysi. Það var vegna þess að nær engar verðbætur höfðu verið gerðar á árunum á undan sem leitt hafði til verulegs kostnaðarauka fyrir sjúklinga. Eftir að nýr samningur tók gildi hefur þróunin verið líkt og áformað var. Útgjöld hafa aukist víða. Á hverju ári verjum við meiri fjármunum til tannlækninga, sjúkraþjálfunar, ljósmæðra, kaupa á lyfjum og hjálpartækjum svo nokkuð sé nefnt. Framlög til heilsugæslunnar hafa næstum tvöfaldast að raunvirði síðan 2015 og hefur aukningin helst farið í sérverkefni, sem skilað hafa misjöfnum árangri, í stað þess að veita þeim í grunnþjónustuna - heilsugæsluna sjálfa. Læknisheimsóknir, í heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, hafa dregist saman á liðnum árum, en þeim hefur fækkað um 23% á hvern íbúa síðan 2019. Runólfur minnist ekki á neitt af þessu í leiðara sínum. Runólfur talar gjarnan um skort á stýringu og nú hreinlega stjórnleysi í viðtali við Morgunblaðið. Síðasta áratug hef ég helst upplifað stjórnleysi innan veggja Landspítala þegar ég hef staðið vaktir og sinnt bráðveikum á bráðamóttöku spítalans. Auk stjórnleysis upplifði ég einnig úrræðaleysi yfirmanna og stjórnvalda. Neyðarástand á bráðamóttöku í áratug - og máttlitlar aðgerðir til úrbóta þrátt fyrir harðorðar úttektir Embætti landlæknis. Ég held að við margir starfsmenn spítalans höfum deilt þessari upplifun. Vonandi horfir það til betri vegar með uppbyggingu hjúkrunarrýma og löngu tímabærri endurskipulagningu bráðaþjónustunnar líkt og nýleg úttekt virðist sýna. Enn er talsvert í land. Heildarfjárveitingar til heilbrigðiskerfisins árið 2025 voru um 413 milljarðar. Stærstur hluti rann til sjúkrahúsa, langmest til Landspítala. Einungis 3,6% af framlögum til heilbrigðismála voru notuð til kaupa á þjónustu sjálfstætt starfandi lækna og minnkar sennilega á þessu ári. Varla ber það merki stjórnleysis? En málið snýst um læknisþjónustu. Ástæðan fyrir því að ríkið kaupir þjónustu af sjálfstætt starfandi læknum er að við veitum góða, nauðsynlega og hagkvæma læknisþjónustu sem sjúklingar eru ánægðir með. Í nýlegri þjónustukönnun voru 98% sjúklinga ánægðir eða mjög ánægðir með þjónustuna. Á síðasta ári voru 548 þúsund lækniskomur hjá sjálfstætt starfandi sérfræðilæknum. Það eru fleiri lækniskomur en göngudeildir lækna Landspítala og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins veittu samanlagt á liðnu ári.Ég vil hvetja forstjóra Landspítalans til að leita hugmynda um hagræðingu í rekstri spítalans og rýna nánar í afköst spítalans. Þá hvet ég hann til að leita aukins samstarfs og samvinnu við sjálfstætt starfandi lækna. Það er flestum ljóst að fjöldi verka sem Landspítalinn sinnir ætti betur heima annars staðar. Að auki ætti að nýta tækifæri utan spítalans til menntunar og þjálfunar heilbrigðisfólks. Það myndi létta á starfsemi Landspítalans og leiða til hagræðingar.Með slíkum aðgerðum getum við eflt heilbrigðiskerfið í heild og sinnt fleiri sjúklingum. Næg er þörfin. Höfundur er formaður Læknafélags Reykjavíkur, sérfræðilæknir í Heilsuklasanum og Gigtarmiðstöðinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Landspítalinn Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Skoðun Skoðun Er öryggi barna sökkvandi skip? Alfa Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar