Bilun hjá Suzuki skipti sköpum

Sindri Sverrisson skrifar
Zion Suzuki missti boltann eftir hornspyrnu, rétt inn fyrir marklínuna.
Zion Suzuki missti boltann eftir hornspyrnu, rétt inn fyrir marklínuna. Getty/Carl Recine

Suzuki var þó ekki sá eini sem gerði mistök í kvöld. Villa-menn fengu vítaspyrnu snemma leiks þegar boltinn fór í hönd Norðmannsins Sander Berge en John McGinn þrumaði boltanum í þverslá úr spyrnunni.

Á 39. mínútu komst Villa þó yfir þegar hinn sjóðheiti Nicolas Jackson fékk boltann frá Johan Manzambi í skyndisókn og skoraði, þrátt fyrir að sækja einn gegn tveimur varnarmönnum í teignum.

Sjálfsmark Suzuki kom svo á 64. mínútu þegar hann ætlaði að grípa hornspyrnu en missti boltann rétt inn fyrir marklínuna.

Villa-menn voru nær því að skora sigurmark en það kom ekki og eftir tvo góða sigurleiki í röð urðu þeir að sætta sig við jafntefli. Villa hefur þó leikið fimm leiki í röð án taps og er með 12 stig í 9. sæti, jafnmörg og Tottenham og Bournemouth í næstu sætum fyrir ofan.

Fulham er með níu stig í 15. sæti.

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira