Íslenski boltinn

Fer frá Stjörnunni í FH

Aron Guðmundsson skrifar
Sandra Hauksdóttir er mætt í Kaplakrika
Sandra Hauksdóttir er mætt í Kaplakrika Mynd: FH

Varnarmaðurinn öflugi, Sandra Hauksdóttir, er gengin í raðir FH frá Stjörnunni. 

FH greinir frá þessu í dag en Sandra skrifar undir þriggja ára samning við félagið. Sandra kom við sögu í 17 leikjum með Stjörnunni á nýafstöðnu tímabili og skoraði tvö mörk. 

„Sandra er einn af efnilegustu varnarmönnum landsins og var nýverið valin í U19 ára landslið Íslands,“ segir meðal annars í tilkynningu FH. 

Bundnar eru miklar vonir við hana hjá Hafnarfjarðarfélaginu.

„Það gleður okkur að Sandra hafi valið FH til að halda áfram að vaxa og dafna sem leikmaður. Það fellur vel að stefnu félagsins að gefa efnilegum leikmönnum tækifæri til að þróast og taka næstu skref.“

FH var lengi vel í baráttunni við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn en endaði að lokum í 2. sæti Bestu deildarinnar. Stjarnan hafnaði í sjötta sæti. 

https://www.instagram.com/p/DfPgqzYiO9H/?utm_source=ig_web_copy_link&cplk=NTc4MTIwNjQ2YQ==



Fleiri fréttir

Sjá meira


×