Fleiri fréttir

Hagstofan spáir 2,9% samdrætti í landsframleiðslu

Útlit er fyrir að árið 2010 dragist landsframleiðsla saman um 2,9%. Hagvöxtur verður hinsvegar jákvæður frá 2011 og út spátímann miðað við að stóriðjuframkvæmdir hefjist þá af fullum krafti og að geta heimilana til einkaneyslu verði ekki fyrir frekari skakkaföllum.

Gaman ef Seðlabankinn hefur fleiri tromp á hendi

Í Markaðsfréttum Íslenskra verðbréfa er fjallað um góðan árangur Seðlabanka Íslands að undanförnu og sagt að gaman væri að sjá á næstu vikum hvort bankinn hafi fleiri tromp á hendi.

Fjárfestar áhugasamir um ríkisvíxla - stabbinn minnkar

Fjárfestar reyndust áhugasamir um ríkisvíxlaútboðið sem haldið var hjá Lánamálum ríkisins síðastliðinn föstudag. Þannig bárust alls 50 gild tilboð í ríkisvíxlaflokkinn RIKV 10 1015 að fjárhæð tæplega 31,3 milljarða kr. að nafnverði. Á morgun mun ríkisvíxlastabbinn minnka um 4,3 milljarða kr.

Eignir lífeyrissjóða halda áfram að aukast

Hrein eign lífeyrissjóða í lok apríl sl. var 1.874 milljarðar kr og hækkaði um 16 milljarða kr í mánuðinum. Þar af hækkuðu útlán og verðbréfaeign um 9,7 milljarða kr.

Líf að færast í fasteignamarkaðinn á höfuðborgarsvæðinu

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku var 63. Þar af voru 45 samningar um eignir í fjölbýli, 15 samningar um sérbýli og 3 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.715 milljónir króna og meðalupphæð á samning 27,2 milljónir króna.

Skilanefndin ætlar að byrja að greiða út í lok næsta árs

Skilanefnd Glitnis hyggst byrja að greiða út til kröfuhafa seint á árinu 2011, en nefndin hefur núna 200 milljarða króna í handbæru fé til að greiða út. Skilanefndin hefur hitt forsvarsmenn stærstu kröfuhafa Glitnis, eins og Burlington Loan Management, og eru þeir hlynntir sölu Íslandsbanka þegar rétt verð fæst.

Mest verslað með Marel í Kauphöllinni

Gengi hlutabréfa Marels hækkaði um 1,8 prósent í Kauphöllinni í dag en mestu viðskiptin voru með bréf í fyrirtækinu eða fyrir rúmar 37 milljónir króna. Gengi bréfa Össurar fóru niður um 1,34 prósent í dag. Önnur hlutabréf á aðallista hreyfðust ekki úr stað.

Atvinnuleysi minnkar, mældist 8,3% í maí

Skráð atvinnuleysi í maí 2010 var 8,3% en að meðaltali 13.875 manns voru atvinnulausir í maí og minnkar atvinnuleysi um 5,4% frá apríl, eða um 794 manns að meðaltali.

Borgin tapaði 88 milljónum á fyrsta ársfjórðungi

Samkvæmt árshlutareikningi Reykjavíkurborgar fyrir fyrsta ársfjórðung ársins er niðurstaða A hluta fyrir fjármagnsliði neikvæð um 509 milljónir króna og rekstrarniðurstaða neikvæð um 88 milljónir króna.

Icelandair flýgur til Þrándheims

Icelandair hóf í dag áætlunarflug til Þrándheims í Noregi. Flogið verður til og frá borginni tvisvar í viku til 8. október í haust með viðkomu í Bergen á leiðinni frá Íslandi. Í tilefni dagsins tóku borgarstjóri Þrándheims, Tore O Sandvik, á móti Birki Hólm Guðnasyni, framkvæmdastjóra Icelandair og öðrum farþegum þegar Icelandair þotan lenti í Þrándheimi, en þar var haldin stutt móttökuathöfn, segir í tilkynningu.

Gamma: GBI hækkaði um 0,1 % í dag

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,1% í dag í 3,5 milljarða viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði lítillega í 0,3 milljarða viðskiptum og GAMMAxi:

Hagspá ASÍ gerir ráð fyrir minni samdrætti

Endurskoðuðu hagspá hagdeildar ASÍ gerir ráð fyrir heldur minni samdrætti í efnahagslífinu þó enn sé staðan erfið og svigrúm heimila og fyrirtækja mjög takmarkað. Atvinnuástandið er erfitt og áfram útlit fyrir mikið atvinnuleysi næstu misserin þó horfurnar séu heldur betri en hagdeildin gerði ráð fyrir í febrúarspá sinni. Mikilvægt er að hraða endurreisn atvinnulífsins og fjölga nýjum störfum.

Ný framkvæmdastjórn skipuð hjá Byr

Síðastliðna daga og vikur hefur verið unnið að því að móta framtíð Byrs og er nýtt skipurit, ný framkvæmdastjórn og stefnumótun fyrir félagið liður í því starfi samkvæmt tilkynningu frá Byr.

Vill sérstakan bankaskatt

Magnús Orri Schram, þingmaður Samfylkingarinnar, segir stjórnvöld þurfa að brúa gríðarlega stórt fjárlagagat. Hann vill að settur verði tekjuskattur á fjármálastofnanir eða það sem hann kallar bankaskatt. Undanfarin ár hafi Íslendingar einkavætt hagnað fjármálatofnanna en ríkisvætt tap þeirra. Magnús telur brýnt að þessari þróun verði snúið við.

Erlend staða þjóðarbúsins batnar um rúma 600 milljarða

Erlend staða þjóðarbúsins er talsvert hagfelldari en bráðabirgðatölur Seðlabanka Íslands gáfu til kynna í byrjun þessa mánaðar. Þannig var hrein staða við útlönd að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð neikvæð um 461 milljarða kr. í lok fyrsta ársfjórðungs 2010 í stað 1.082 milljarða kr. eins og fyrst var talið. Er hér um töluverðan mismun að ræða, eða sem nemur um 621 milljarða kr.

Veltan í dagvöruversluninni jókst í maí

Rannsóknarsetur verslunarinnar birti tölur um veltu í smásöluverslun í maí nú í morgun. Frá fyrri mánuði jókst veltan í dagvöruverslun um 7,6% á föstu verðlagi.

Staða ríkissjóðs heldur áfram að versna

Greiðsluuppgjör ríkissjóðs fyrir fyrstu fjóra mánuði ársins 2010 liggur nú fyrir. Samkvæmt uppgjörinu er handbært fé frá rekstri neikvætt um 11,1 milljarða kr. Tekjur reyndust 4,2 milljörðum kr. minni en í fyrra á meðan gjöldin jukust um 3,5 milljarða kr. Hreinn lánsfjárjöfnuður var neikvæður um 16,4 miljarða kr. sem er 3,9 milljarða kr. verri staða en á sama tíma í fyrra.

Erum ekki að deyja úr þörf fyrir gjaldeyri

„Samningurinn er rammi sem eykur tiltrú og er ákveðin traustsyfirlýsing,“ segir Már Guðmundsson seðlabankastjóri um tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamning Seðlabanka Kína og Seðlabanka Íslands, sem skrifað var undir í gærmorgun. Hu Xiaolian aðstoðarseðlabankastjóri skrifaði undir fyrir kínverska bankann.

Landsvirkjun er nú hjá Vodafone

Landsvirkjun hefur samið við Vodafone um að annast alla almenna fjarskipta­þjónustu fyrir félagið og dóttur­félögin Landsnet og Landsvirkjun Power næstu fjögur árin. Samningurinn var gerður að undangengnu fyrsta útboði Landsvirkjunar á fjarskiptaþjónustu fyrir félagið.

Velta í smásöluverslun dróst saman í maí

Velta í dagvöruverslun dróst saman um 3,7% á föstu verðlagi í maí miðað við sama mánuð í fyrra en jókst um 3,4% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum dróst velta dagvöruverslana saman í maí um 3,8% frá sama mánuði árið áður. Verð á dagvöru hækkaði um 7,4% á síðastliðnum 12 mánuðum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknasetri verslunarinnar á Háskólanum á Bifröst.

Virði útfluttra sjávarafurða 209 milljarðar árið 2009

Virði útfluttra sjávarafurða árið 2009 var 209 milljarðar króna sem er um 42% af heildarvirði alls útflutnings frá landinu samkvæmt skýrslu Íslandsbanka um sjávarútveg á Íslandi. Þar kemur einnig fram að boðuð fyrningarleið í sjávarútvegi muni hafa þungbær áhrif á greinina.

Heildarskuldir ríkissjóðs eru 99% af landsframleiðslu

Gríðarleg aukning hefur orðið á skuldum ríkissjóðs undanfarið eins og kunnugt er. Í lok fyrsta ársfjórðungs námu þær 1.536 milljörðum kr. sem er næstum þriðjungi hærri fjárhæð en á sama tíma árið 2008. Nema heildarskuldir ríkissjóðs nú um 99% af landsframleiðslu ársins en árið 2008 voru þær um 39% af landsframleiðslu.

Kínasamningur hærri en nemur utanríkisviðskiptum landanna

Fjárhæð gjaldmiðlaskiptasamningsins milli seðlabanka Íslands og Kína er hærri en sem nemur verðmæti utanríkisviðskipta landanna í fyrra. Á síðasta ári nam innflutningur á vörum frá Kína rúmum tuttugu milljörðum króna, eða um 5% af heildarinnflutningi.

Leigusamningum fjölgaði í maí

Í maí síðastliðnum var samtals 705 leigusamningum um íbúðarhúsnæði þinglýst. Þetta er nokkur fjölgun frá fyrri mánuði þegar 625 samningum var þinglýst. Þá er þetta nákvæmlega sami fjöldi leigusamninga og þinglýst var í sama mánuði fyrir ári síðan samkvæmt upplýsingum sem Fasteignaskrár Íslands hefur birt.

Erlend staða Seðlabankans batnaði í maí

Erlend staða Seðlabankans batnaði nokkuð í maí mánuði samanborið við apríl. Staðan batnaði um tæpa sjö milljaða kr. samkvæmt tölum sem birtar hafa verið á vefsíðu bankans.

Skipti hf. hagnast um 5,5 milljarða á sölu Sirus IT

Skipti hf., móðurfélag Símans, hafa selt upplýsingatæknifyrirtækið Sirius IT sem er með starfsemi í Danmörku, Noregi og Svíþjóð. Kaupandi er norska upplýsingafyrirtækið Visma. Kaupverð er trúnaðarmál en með sölunni mun heildarhagnaður Skipta vegna fjárfestingarinnar í Sirius IT nema um 5,5 milljörðum íslenskra króna.

Samningurinn við Kínverja er upp á 66 milljarða

Skrifað hefur verið undir tvíhliða gjaldmiðlaskiptasamning á milli Seðlabanka Kína og Seðlabanka Íslands hinn 9. júní 2010. Fjárhæð samningsins er 66 milljarðar króna eða 3,5 milljarðar kínverskra júan.

Hallinn á rekstri hins opinbera eykst

Á fyrsta ársfjórðungi ársins var hið opinbera var rekið með 24,2 milljarða króna tekjuhalla samanborið við 23,9 milljarða króna tekjuhalla á sama tíma 2009.

Farþegum Icelandair fjölgaði milli ára í maí

Farþegum á vegum Icelandair fjölgaði um 2% í maí miðað við sama mánuð í fyrra. Hefur farþegum félagsins fjölgað um 8% á fyrstu fimm mánuðum ársins miðað við sama tímabil í fyrra.

AGS bannar ríkinu að taka lán í vegagerð

Vegatollar verða innheimtir til að kosta tvöföldun Suðurlandsvegar, Vesturlandsvegar og Reykjanesbrautar á næstu fjórum árum verði frumvarp sem samgönguráðherra mælti fyrir á Alþingi í fyrrakvöld að lögum.

Sjá næstu 50 fréttir