Fleiri fréttir

GAMMA hækkaði um 0,4%

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,4% í dag í 10,6 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,5% í 6,9 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 3,7 ma. viðskiptum.

Telur Lýsingu hafa brotið lög

Neytendastofa telur að ákvæði bílasamnings, sem Lýsing gerði við bifreiðakaupanda, um vexti láns, bæði íslenskan og erlendan hluta þess,

Álfheiður er ríkasti ráðherrann

Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra er ríkasti ráðherrann samkvæmt álagningaskrá sem birt var um síðustu mánaðamót. Eftir því sem fram kemur í Viðskiptablaðinu í dag á Álfheiður 150 milljónir í eignir umfram skuldir sem hún greiðir auðlegðarskatt af.

Rólegt á millibankamarkaði með gjaldeyri

Velta á millibankamarkaði með gjaldeyri í júlímánuði 2010 nam 629 milljónum kr. sem er 312 milljónum kr. minni velta en í júní mánuði. Gengi krónunnar styrktist um 0,12 % gagnvart evru í mánuðinum.

Iceland Express fjölgar starfsmönnum vegna aukinna umsvifa

Iceland Express hyggst færa út kvíarnar næsta sumar og fljúga daglega til New York frá og með júníbyrjun. Félagið mun líka fjölga áfangastöðum í Bandaríkjunum og fljúga fjórum sinnum í viku til Boston. Einnig verður flogið til Chicago. Þessi auknu umsvif Iceland Express kalla á fjölgun starfsmanna hjá félaginu.

FME sektar Atorku um 8 milljónir fyrir brot á lögum

Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að sekta Atorku um átta milljónir króna vegna brota á lögum um verðbréfaviðskipti. Er þetta ein mesta sekt sem Fjármálaeftirlitið hefur beitt gegn einstöku félagi vegna slíks brots frá hruninu haustið 2008.

Áttatíu starfsmönnum Kaupþings stefnt

Um 80 starfsmönnum gamla Kaupþings hefur verið stefnt til greiðslu skuldar vegna hlutabréfakaupa í bankanum. Þetta kemur fram í Viðskiptablaðinu, sem kemur út í fyrramálið.

Afskrifar sex milljarða vegna lána til stjórnenda Atorku

Skilanefnd Landsbankans þarf að afskrifa rúmlega sex milljarða króna vegna lánveitinga til félaga í eigu fyrrverandi eigenda og stjórnenda fjárfestingafélagsins Atorku, en félögin hafa nú verið tekin til gjaldþrotaskipta.

Á fimmta hundrað manns verið sagt upp í hópuppsögnum

Alls hefur 430 manns verið sagt upp störfum í hópuppsögnum það sem af er árinu, samkvæmt upplýsingum á vef Vinnumálastofnunar. Um 18 uppsagnir hefur verið að ræða. Þar af var 89 manns sagt upp í hópuppsögnum í júlí. Um var að ræða fyrirtæki í byggingariðnaði.

Litlar breytingar á GAMMA

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,5% í dag í 12,6 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,6% í 7,7 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 4,9 ma. viðskiptum.

Rekstur S. Helgasonar tryggður

Fjárhags- og rekstrarlegri endurskipulagningu S. Helgasonar ehf. er lokið. Félagið rekur stærstu og elstu steinsmiðju landsins og einnig verslun með afurðir sínar að Skemmuvegi 48 í Kópavogi.

Skattalega óhagstætt fyrir ríkið að eigandinn sé sænskt félag

Það er óhagstæðara fyrir íslenska ríkið að eigandi HS Orku er sænskt félag en ekki kanadískt. Þetta segir forstöðumaður skattasviðs KPMG. Ef eigandinn væri skráður í Kanada, en ekki Svíþjóð, nyti íslenska ríkið aukinna skatttekna vegna eignarhaldsins.

Mikið framboð á verslunarhúsnæði í kreppunni

Fermetrafjöldi verslunarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu hefur aukist töluvert frá því að kreppan braust út. Á síðasta ári jókst fermetrafjöldi verslunarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu um 7,9% en heildarfermetrafjöldi verslunarhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu er nú 816.408 fm. eða sem nemur 4 fm. á hvern íbúa.

Gamma lækkaði um 0,2%

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,2% í dag í 4,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,2% í 2,1 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 2 ma. viðskiptum.

30 milljóna króna viðskipti á dag

Heildarviðskipti með hlutabréf í júlí námu rúmri 661 milljón eða 30 milljónum á dag. Þessu til samanburðar var veltan með hlutabréf í júní mánuði 1.221 milljón eða 58 milljónir á dag. Mest voru viðskipti með bréf Marels (MARL) 456 milljónir og með bréf Össurar (OSSR) 153 milljónir. Þetta kemur fram í yfirliti Kauphallarinnar fyrir júlí.

Innflutningstölur sýna að botninum er náð í kreppunni

Innflutningur jókst á fyrri hluta þessa árs samanborið við sama tímabil í fyrra. Aukningin í magni mæld var lítil eða 0,8% en um er að ræða viðsnúning engu að síður frá því sem hefur verið í undangenginni kreppu.

Stækkun verksmiðju Actavis í Hafnarfirði er á áætlun

Framkvæmdir við stækkun lyfjaverksmiðju Actavis í Hafnarfirði ganga samkvæmt áætlun. Gert er ráð fyrir að hefja framleiðslu í nýja hlutanum um áramót. Við stækkunina eykst framleiðslugetan á Íslandi um 50%, eða í um einn og hálfan milljarð taflna á ári.

Hótar að hætta við kaupin á HS Orku

Ross Beaty, forstjóri kanadíska orkufyrirtækisins Magma Energy, hefur hótað að fresta eða jafnvel hætta við kaup fyrirtækisins á HS Orku vegna pólitískrar óvissu, að því er Financial Times greinir frá í dag.

Sjá næstu 50 fréttir