Fleiri fréttir Kyrrsettu 111 milljónir í eigu Jóns Ásgeirs Slitastjórn Glitnis banka hf. fékk í dag úrskurð um alþjóðlega kyrrsetningu í sambandi við kröfur Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Slitastjórn Glitnis segir að kyrrsetningin komi til vegna millifærslna sem framkvæmdar voru daginn eftir að eignir Jóns Ásgeirs voru kyrrsettar í Bretlandi þann 11. maí síðastliðinn. 30.7.2010 18:12 Gamma hækkaði lítillega Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði lítillega í dag í 2,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 1,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 1,1 ma. viðskiptum. 30.7.2010 16:19 Met slegið í innflutningi á fjárfestingarvörum Athygli vekur að innflutningur fjárfestingarvara nam ríflega fjórðungi alls vöruinnflutnings í júní. Fluttar voru inn slíkar vörur fyrir 10,2 milljarða kr. í mánuðinum, en það er mesti innflutningur slíkra vara í krónum talið í einum mánuði svo langt aftur sem tölur Hagstofu ná. 30.7.2010 11:05 Aflaverðmætið eykst um 10,6 milljarða milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 45,6 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010 samanborið við 35 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 10,6 milljarða eða 30,2% á milli ára. 30.7.2010 09:07 Vöruskiptin hagstæðum um 8,7 milljarða í júní Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 48,0 milljarða króna og inn fyrir 39,3 milljarða króna. Vöruskiptin í júní voru því hagstæð um 8,7 milljarða króna. Í júní 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 6,2 milljarða króna á sama gengi. 30.7.2010 09:05 Gjaldþrotum fyrirtækja fækkaði milli ára í júní Í júní 2010 voru 93 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 95 fyrirtæki í júní 2009, sem jafngildir rúmlega 2% fækkun milli ára. 30.7.2010 09:01 Eigendum fasteigna fækkar í fyrsta sinn í sögunni Eigendum fasteigna fækkaði milli ára um 0,7% en það hefur ekki gerst áður í sögunni. Þetta kemur fram í upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu um álagningu opinberra gjalda í ár. 30.7.2010 07:27 Moody´s setur lánshæfiseinkunn Íslands á neikvæðar horfur Matsfyrirtækið Moody´s hefur sett lánshæfiseinkunn Íslands á neikvæðar horfur en einkunn Moody´s fyrir Ísland er Baa3 sem er aðeins einum flokki frá svokölluðum ruslflokki. 30.7.2010 06:14 Krónan styrkst um 11 prósent 30.7.2010 00:01
Sjá næstu 50 fréttir
Kyrrsettu 111 milljónir í eigu Jóns Ásgeirs Slitastjórn Glitnis banka hf. fékk í dag úrskurð um alþjóðlega kyrrsetningu í sambandi við kröfur Glitnis á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni. Slitastjórn Glitnis segir að kyrrsetningin komi til vegna millifærslna sem framkvæmdar voru daginn eftir að eignir Jóns Ásgeirs voru kyrrsettar í Bretlandi þann 11. maí síðastliðinn. 30.7.2010 18:12
Gamma hækkaði lítillega Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði lítillega í dag í 2,4 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 1,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 1,1 ma. viðskiptum. 30.7.2010 16:19
Met slegið í innflutningi á fjárfestingarvörum Athygli vekur að innflutningur fjárfestingarvara nam ríflega fjórðungi alls vöruinnflutnings í júní. Fluttar voru inn slíkar vörur fyrir 10,2 milljarða kr. í mánuðinum, en það er mesti innflutningur slíkra vara í krónum talið í einum mánuði svo langt aftur sem tölur Hagstofu ná. 30.7.2010 11:05
Aflaverðmætið eykst um 10,6 milljarða milli ára Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 45,6 milljörðum króna á fyrstu fjórum mánuðum ársins 2010 samanborið við 35 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 10,6 milljarða eða 30,2% á milli ára. 30.7.2010 09:07
Vöruskiptin hagstæðum um 8,7 milljarða í júní Í júnímánuði voru fluttar út vörur fyrir tæpa 48,0 milljarða króna og inn fyrir 39,3 milljarða króna. Vöruskiptin í júní voru því hagstæð um 8,7 milljarða króna. Í júní 2009 voru vöruskiptin hagstæð um 6,2 milljarða króna á sama gengi. 30.7.2010 09:05
Gjaldþrotum fyrirtækja fækkaði milli ára í júní Í júní 2010 voru 93 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta samanborið við 95 fyrirtæki í júní 2009, sem jafngildir rúmlega 2% fækkun milli ára. 30.7.2010 09:01
Eigendum fasteigna fækkar í fyrsta sinn í sögunni Eigendum fasteigna fækkaði milli ára um 0,7% en það hefur ekki gerst áður í sögunni. Þetta kemur fram í upplýsingum frá fjármálaráðuneytinu um álagningu opinberra gjalda í ár. 30.7.2010 07:27
Moody´s setur lánshæfiseinkunn Íslands á neikvæðar horfur Matsfyrirtækið Moody´s hefur sett lánshæfiseinkunn Íslands á neikvæðar horfur en einkunn Moody´s fyrir Ísland er Baa3 sem er aðeins einum flokki frá svokölluðum ruslflokki. 30.7.2010 06:14
Um 85% andvígir því að útlendingar kaupi íslenskar náttúruauðlindir Tæplega 85% eru mjög andvígir eða frekar andvígir því að erlendir aðilar geti keypt íslenskar náttúruauðlindir, samkvæmt skoðanakönnun sem Capacent Gallup vann fyrir Teit Atlason guðfræðing og bloggara. Um 10,6% eru hvorki hlynntir né andvígir en 4,5% voru mjög eða frekar hlynntir. 29.7.2010 15:46
Tekjurnar helmingi lægri en upplýsingar benda til Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir laun sín á síðasta ári hafa verið víðs fjarri því sem fram komi upplýsingum tekjublaða sem birst hafa undanfarinn sólarhring. 29.7.2010 11:42
Gamma hækkaði um 0,3% Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,3% í dag í 9,2 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,3% í 6,2 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,1% í 3 ma. viðskiptum. 29.7.2010 15:59
Leiguverð í borginni hefur hækkað um allt að 17% frá áramótum Samkvæmt nýrri könnun Neytendasamtakanna hefur leiguverð á höfuðborgarsvæðinu hækkað síðan í byrjun árs og nemur hækkunin allt að 17% fyrir stærstu íbúðirnar sem auglýstar eru til leigu. 29.7.2010 11:16
Eignir aukast hjá verðbréfa- og fjárfestingarsjóðum Eignir verðbréfa- og fjárfestingarsjóða námu 263,9 milljarða kr. í lok júní og hækkuðu um 14,7 milljarða kr. milli mánaða eða um 5,9%. 29.7.2010 10:46
Eignarhaldsfélag Daggar gert upp Búið er að slíta þrotabúi Insolidum ehf, sem var í eigu Daggar Pálsdóttur, fyrrverandi varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins. Kröfuhafar félagsins fengu greiddar um 7,3 milljónir eða um 1,5% upp í kröfur sínar. Helstu kröfurhafar félagsins voru SPRON og Landsbankinn. 29.7.2010 09:42
Forsetinn launahæstur Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, var tekjuhæsti stjórnmálamaður á Íslandi í fyrra. Samkvæmt tekjusíðum Vísis var hann með 1591 þúsund krónur í laun á mánuði á síðasta ári. 29.7.2010 09:11
Töluverð lækkun á vísitölu framleiðsluverðs Vísitala framleiðsluverðs í júní 2010 var 192,9 stig og lækkaði um 5,4% frá maí 2010. 29.7.2010 09:10
Töluvert dregur úr hagnaði Marel Hagnaður af heildarstarfsemi Marel eftir skatta nam 100.000 evrum eða 15,7 milljónum króna á öðrum ársfjórðungi ársins. Þetta er töluvert minni hagnaður en á sama tímabili í fyrra þegar hann nam 17,3 milljónum evra eða 2,7 milljörðum króna. 29.7.2010 07:04
Magma opið fyrir því að selja erlendum fjárfesti hlut í HS Orku Magma upplýsti kanadísku kauphöllina um vilja til að selja hlut í HS Orku til annarra erlendra fjárfesta. Fyrirtækið bauð lífeyrissjóðunum fyrir aðeins mánuði að kaupa fjórðungshlut í HS Orku, en ríkissjóður hafði hvatt til þess á fyrri stigum. Þetta var eftir að skrifað hafði verið undir kaup á meirihluta í HS Orku. 28.7.2010 18:40
Íslenskt tölvukerfi notað í kauphöllinni í London Hugbúnaðarfyrirtækið TM Software ehf. hefur á skömmum tíma selt eigið tímaskráningar- og verkbókhaldskerfi til 38 landa með aðstoð netsins, þar á meðal til fjölmargra stórfyrirtækja og stofnana, svo sem til kauphallarinnar í Lundúnum og Deutsche bank. Einnig hefur kauphöllin í New York og örgjörvaframleiðandinn Intel hlaðið kerfinu niður til reynslu. 28.7.2010 11:20
Skuldatryggingaálag Íslands hríðlækkar Skuldatryggingaálag Íslands hefur hríðlækkað í vikunni. Samkvæmt Markit Itraxx vísitölunni er álagið nú komið niður í 286 punkta og hefur ekki verið lægra síðan í maí á síðasta ári. 28.7.2010 11:05
Neytendur ekki bjartsýnni síðan fyrir hrunið 2008 Væntingar neytenda halda áfram að glæðast ef marka má Væntingavísitölu Gallup sem birt var um hádegisbilið í gær. Væntingavísitalan hækkar nú um 6 stig og er vísitalan nú 67,1 stig sem er það hæsta sem hún hefur verið frá því fyrir hrun. 28.7.2010 10:04
Mikill viðsnúningur á rekstri móðurfélags Norðuráls Century Aluminium, móðurfélag Norðuráls, skilaði hagnaði eftir skatta upp á rúmar 5 milljónir dollara eða rúmlega 600 milljónir króna á öðrum ársfjórðungi ársins. 28.7.2010 09:47
Fjögur fyrirtæki styðja sprotafyrirtæki Fyrirtækin N1, CCP, Nýherji og Íslandspóstur hafa ákveðið að niðurgreiða þátttökugjöld í Viðskiptasmiðjuna - Hraðbraut nýrra fyrirtækja fyrir valin fyrirtæki. Með stuðningnum vilja fyrirtækin efla nýsköpun og styðja sprotafyrirtæki á Íslandi. Þá vilja þau benda á mikilvægi þess að frumkvöðlar sæki sér þekkingu og sérfræðiráðgjöf þegar nýjum fyrirtækjum er komið á legg. 28.7.2010 09:10
Verðbólgan komin niður í 4,8%, mesta lækkun frá 1986 Vísitala neysluverðs miðuð við verðlag í júlí er 361,7 stig og lækkaði um 0,66% frá fyrra mánuði. Ársverðbólgan mælist því 4,8%. 28.7.2010 09:01
Skilanefnd á von á tíu milljarða arði frá FIH bankanum Skilanefnd Kaupþings gæti átt von á allt að 10 milljarða kr. arðgreiðslu frá FIH bankanum í Danmörku. Bankinn er sem kunnugt er í eigu skildanefndar Kaupþings. 28.7.2010 08:47
Eignir stóreignafólks nema um 350 milljörðum Samkvæmt upplýsingum frá skattinum hefur hluti landsmanna sloppið vel undan fimbulvetri fjármálakreppunnar. 28.7.2010 07:22
Lánshæfiseinkunn ÍLS óbreytt hjá Moody´s, horfur stöðugar Matsfyrirtækið Moody´s heldur lánshæfiseinkunn sinni hjá Íbúðalánasjóði (ÍLS) óbreyttri í Baa3 og með stöðugum horfum. 27.7.2010 10:05
Ríkissjóður hagnast á fátæku úrvali fjárfestingarkosta Það er ljóst að fátæklegt úrval fjárfestingakosta aðstoðar ríkissjóð við að fá ódýra fjármögnun. Fjárfestar hafa fáa möguleika til að ávaxta fé sitt aðra en kaup á ríkisskuldabréfum. 27.7.2010 07:38
Hagnaður Össurar hf. sjöfaldast milli ára Hagnaður Össurar hf. á öðrum ársfjórðungi sjöfaldaðist miðað við sama tímabil í fyrra. Hagnaðurinn í ár nam tæplega 1,7 milljörðum króna en í fyrra varð hann rúmlega 240 milljónir króna. 27.7.2010 06:31
Einblínir á sushi-markaðinn Dótturfélag Atlantis Group, félags í íslenskri eigu, er orðið langstærsta fyrirtækið á sviði túnfiskseldi í heiminum eftir sameiningu við mexíkóskt eldisfyrirtæki. Fyrirtækið framleiðir nú 20 til 30 prósent af öllum bláuggatúnfiski sem alinn er í kvíum í heiminum. 27.7.2010 06:00
Stefán Hilmarsson hefur áfrýjað gjaldþrotaúrskurðinum Stefán H. Hilmarsson endurskoðandi áfrýjaði i gær gjaldþrotaúrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur til Hæstaréttar. 24.7.2010 13:30
Auknar heimtur úr þrotabúi Landsbankans Samningur milli þrotabús Landsbankans í Lúxemborg, Landsbanka Íslands, Seðlabanka Lúxemborgar og nokkurra af stærstu kröfuhöfum bankans hefur verið samþykktur. 24.7.2010 13:22
Undirbúa stofnun nýs banka Undirbúningur að stofnun nýs banka hér á landi er langt komin, að því er fréttavefur Viðskiptablaðsins greinir frá. 24.7.2010 09:54
Verulegur viðsnúningur í rekstri Nýherja Verulegur viðsnúningur hefur orðið í rekstri Nýherja á fyrri árshelmingi ársins miðað við sama tímabil í fyrra, samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu. 23.7.2010 20:36
Icesave ekki hluti af skuldauppgjöri Icesave reikningar Landsbankans eru ekki hluti af skuldauppgjöri Björgólfs Thors Björgólfssonar þrátt fyrir að félag í hans eigu hafi átt tæplega helming hlutabréfa í bankanum og fengið marga milljarða í arð. Talsmaður Björgólfs segir að hann beri enga ábyrgð á Icesave. 23.7.2010 18:30
Runólfur Ágústsson er umboðsmaður skuldara Runólfur Ágústsson, lögfræðingur, hefur verið skipaður í nýtt embætti umboðsmanns skuldara sem tekur til starfa 1. ágúst næstkomandi. 23.7.2010 17:09
Gamma hækkaði lítillega í dag Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði lítillega í dag í 3,6 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði lítillega í 1,7 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,2% í 1,9 ma. viðskiptum. 23.7.2010 16:15
Mjög dregur úr viðskiptum með atvinnuhúsnæði Mjög hefur dregið úr viðskiptum með atvinnuhúsnæði í kreppunni. Í júní síðastliðnum var 68 kaupsamningum og afsölum um atvinnuhúsnæði þinglýst á landinu öllu. Í sama mánuði árið 2006,þegar viðskiptin voru hvað mest á þessum markaði í aðdraganda þenslunnar sem endaði með bankahruninu, var 311 skjölum þinglýst. 23.7.2010 11:10
Sendinefnd AGS mælir með þriðju endurskoðuninni Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) segir að hún muni mæla með því að stjórn sjóðsins afgreiði og samþykki þriðju endurskoðunin á áætlun sjóðsins fyrir Ísland í september n.k. 23.7.2010 09:30
Segir að Deutsche Bank gæti tapað 200 milljörðum á Actavis Reuters hefur heimildir fyrir því að Deutsche Bank gæti þurft að taka á sig hátt í 1,5 milljarða evra eða allt að 200 milljarða króna skell við endurskipulagninguna á Actavis sem tilkynnt var um í gærdag. 23.7.2010 08:45
Íslendingar undir þrýstingi að leysa Icesave í ESB viðræðum Íslendingar verða beittir þrýstingi til að leysa Icesavedeiluna og að endurskoða fiskveiðistefnu sína í komandi aðildarviðræðum við Evrópusambandið, en þær eiga að hefjast í næstu viku. 23.7.2010 07:31
Björgólfur lagði áherslu á að halda Fríkirkjuveginum Björgólfur Thor Björgólfsson lagði mikla áherslu á það við 1.200 milljarða skuldauppgjör að halda í sinni eigu sögufrægu húsi við Fríkirkjuveg, sem langafi hans lét reisa fyrir hundrað árum. Björgólfur segir að engar skuldir verði afskrifaðar en inn í uppgjörinu er hluti skulda föður hans. 22.7.2010 18:30
Segja stefnuna tilefnislausa PricewaterhouseCoopers hf. krefst frávísunar á máli slitastjórnar, skilanefndar og fulltrúa Glitnis gegn fyrirtækinu sem höfðað er fyrir dómstóli í New York. Í yfirlýsingu sem Reynir Vignir, framkvæmdastjóri hjá PricewaterhouseCoopers, sendi frá sér í kvöld segist hann telja að stefnan sé tilefnislaus og ekki á rökum reist. 22.7.2010 21:47
Um 4,7 milljarða viðskipti á skuldabréfamarkaði Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði um 0,2% í dag í 4,7 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,2% í 2,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði lítillega í 2,4 ma. viðskiptum. 22.7.2010 17:41