Fleiri fréttir

Lilja spyr um ábyrgð á efnahafsstefnunni eftir AGS-fund

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, spyr hver beri ábyrgð á efnahagsstefnunni eftir að hún átti fund með Julie Kozack nýjum yfirmanni sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) og Mark Flanagan í höfuðstöðvum AGS.

Rjómauppgjör hjá Marel fyrir þriðja ársfjórðung

Marel skilaði rjómauppgjöri fyrir þriðja ársfjórðung ársins. Hagnaður af heildarstarfsemi eftir skatta var 2,4 milljónir evra tæplega 380 milljónir kr. Hagnaðurinn nam 0,9 milljónum evra fyrir sama tímabil í fyrra.

Gjaldskrárhækkun skilar 4 milljörðum

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti á fundi sínum í dag fjölþættar ráðstafanir sem ætlað er að styrkja rekstur fyrirtækisins. Í Fjárhagsáætlun fyrir árin 2012 til 216 segir að gera eigi fyrirtækinu mögulegt að standa við skuldbendingar gagnvart lánadrottnum og tryggja jafnframt áframhaldandi trausta og góða þjónustu við viðskipta vini.

SA vill að breyting á tekjuskattslögum falli niður

Samtök atvinnulífsins(SA) vilja að breyting á tekjuskattslögum sem gerðar voru í árslok í fyrra verði felldar niður. SA segir að breyting hafi óveruleg áhrif á tekjur ríkissjóðs en mun án efa draga úr vilja erlendra aðila til þess að koma með fjármagn til Íslands.

Síminn segir upp 29 starfsmönnum

Alls hefur 29 starfsmönnum Símans verið sagt upp. Forsvarsmenn Símans kynntu fyrr í dag nýtt skipulag fyrirtækisins á fundi með starfsfólki. Deildir eru sameinaðar og stjórnendum og starfsfólki fækkar en áhersla er lögð á að þjónusta við viðskiptavini skerðist ekki við þessar breytingar.

Ekkert formlegt tilboð komið í Iceland, margir áhugasamir

Erlendur fjárfestingarsjóður sem lýst hafði yfir áhuga á að greiða jafnvirði 249 milljarða króna fyrir Iceland Foods verslanakeðjuna, hefur ekki gert formlegt tilboð ennþá. Það hefði þýtt tæplega 167 milljarða króna fyrir hlut skilanefndar Landsbankans í fyrirtækinu.

Segir verðbólguhorfur að mestu óbreyttar

Greining Íslandsbanka segir að verðbólgumæling Hagstofunnar í morgun breyti ekki í stórum dráttum sýn greiningarinnar á verðbólguþróun næstu mánuðina. Nokkur hækkun mun verða á vísitölunni fram til áramóta vegna frekari áhrifa af hækkun veitufyrirtækja og verðhækkunum á landbúnaðarhrávörum erlendis.

Fjörkippur í sölu atvinnuhúsnæðis á höfuðborgarsvæðinu

Í september 2010 var 47 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 50 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 1.955 milljónir króna en 566 milljónir króna utan þess. Um er að ræða um 50% aukningu frá fyrri mánuði hvað fjölda skjala varðar á höfuðborgarsvæðinu en um 30% hvað fasteignmat varðar.

Ársverðbólgan minnkar í 3,3%

Ársverðbólgan mælist 3,3% í október og lækkar um 0,4 prósentustig milli mánaða. Verðbólgan mældist 3,7% í september. Lækkunin nú er nokkuð minni en sérfræðingar höfðu spáð fyrir um.

Innflutningur á nautakjöti eykst töluvert milli ára

Samkvæmt upplýsingum frá Landssamtökum Sláturleyfishafa hefur innflutningur á nautakjöti til og með ágúst á þessu ári numið 95 tonnum, en á sama tíma árið 2009 var innflutningur nautakjöts kominn í 74 tonn. Er þetta aukning um 27% á milli ára.

Múrbúðin eykur umsvif sín

Múrbúðin hefur að undanförnu stóraukið þjónustu sína við byggingamarkaðinn. Deild fyrir grófvörur hefur verið opnuð í Kópavogi og jafnframt hefur Múrbúðin tekið til starfa í Vestmannaeyjum.

Pálmi Haralds: Markmið Svavars virðist að sverta æru mína

Pálmi Haraldsson segir í yfirlýsingu að hann sé stoltur af aðkomu sinni að kaupum bresku verslunarkeðjunnar Iceland 2005. Hann segir framsetningu Svavars Halldórssonar fréttamanns RÚV í frétt sinni í gær virðast ekki hafa annað að markmiði en að sverta æru sína.

Þrotabú Baugs vill rifta 100 milljón króna gjörningi

Héraðsdómur Reykjavíkur þingfesti í dag riftunarmáli þrotabús Baugs gegn Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) þar sem krafist er riftunar á hundrað milljón króna greiðslu til dótturfélags SPRON.

Icelandic Group hefur vottunarferli í þorsk- og ýsuveiðum

Icelandic Group hefur hafið vottunarferli í öllum þorsk- og ýsuveiðum við Ísland samkvæmt vottunarstaðli Marine Stewardship Council (MSC). Í tilkynningu frá fyrirtækinu segir að MSC - staðallinn sé sá víðtækasti og virtasti í heiminum yfir sjálfbærar fiskveiðar sem byggja á vísindalegri ráðgjöf.

Íslenskir neytendur hafa ekki verið svartsýnni í rúmt ár

Íslenskir neytendur hafa nú ekki verið svartsýnni í rúmt ár samkvæmt Væntingavísitölu Gallup í október sem birt var nú í morgun. Þannig hrapaði vísitalan um heil 35,7 stig milli mánaða og mælist nú 32 stig. Aðeins einu sinni áður hefur vísitalan lækkað svona mikið milli mánáða en það var í bankahruninu í nóvember árið 2008.

IFS greining spáir góðu uppgjöri hjá Marel

IFS greining spáir góðum þriðja fjórðungi hjá Marel en uppgjörið verður birt á morgun, miðvikudag. Samkvæmt spánni verður salan á fjórðungnum um 18% meiri en á sama fjórðungi í fyrra.

Pólitískur skotgrafarhernaður á Alþingi til umræðu hjá VÍ

„Í stað heildarsamstarfs um lausnir á erfiðri stöðu heimila og atvinnulífs hefur pólitískur skotgrafarhernaður því miður í of mörgum tilvikum orðið ofan á. Þá skortir ríkisstjórninni forystu og getu til að koma brýnum verkefnum í framkvæmd hjálparlaust.“

Rúmlega 7% heimila í vanskilum með húsnæðislán 2009

Samkvæmt lífskjararannsókn Hagstofunnar 2009 höfðu 7,1% heimila lent í vanskilum með húsnæðislán/leigu á undanförnum 12 mánuðum og 10,3% heimila höfðu lent í vanskilum með önnur lán á sama tímabili.

SA: Fyrirtækjum gert auðveldara að afla verkefna erlendis

Samtök atvinnulífsins (SA) vilja að fyrirtækjum í verktakagreininni og starfsmönnum þeirra verði gert auðveldara að afla sér verkefna erlendis. Þetta sé nauðsynlegt til að koma í veg fyrir verkefnaskort og atvinnuleysi meðal verktaka og að greinin leggist ekki af í bókstaflegri merkingu.

Íslendingar í viðræðum við Rússa um stórt orkuver

Íslendingar og Rússar eiga nú í viðræðum um jarðvarmaorkuver á Kamstjaka í austasta hluta Rússlands. Þetta kom fram í máli Sergei Shmatko orkumálaráðherra Rússlands á ríkisstjórnarfundi þar í landi í gærdag.

Starfandi fólki fækkaði um 1.300 á þriðja ársfjórðungi

Fjöldi starfandi á þriðja ársfjórðungi 2010 var 170.200 manns og fækkaði um 1.300 frá sama tíma ári áður. Á vinnumarkaði voru alls 181.900 manns sem jafngildir 81,4% atvinnuþátttöku. Atvinnuþátttaka karla var 84,1% og kvenna 78,6%.

Atvinnuleysið var 6,4% á þriðja ársfjórðungi

Á þriðja ársfjórðungi 2010 voru að meðaltali 11.700 manns án vinnu og í atvinnuleit eða 6,4% vinnuaflsins. Atvinnuleysi mældist 6,1% hjá körlum og 6,8% hjá konum. Frá þriðja ársfjórðungi 2009 til þriðja ársfjórðungs 2010 fjölgaði atvinnulausum um 800 manns.

Uppgjör Össurar veldur smávægilegum vonbrigðum

Viðskiptablaðið Börsen segir að uppgjör Össurar hf. fyrir þriðja ársfjórðung hafi valdið smávægilegum vonbrigðum, eða "skuffer en smule" eins og það er orðað í blaðinu.

Eignir innlánsstofnana lækkuðu um 60 milljarða

Heildareignir innlánsstofnana námu 2.861 milljörðum kr. í lok september 2010 og lækkuðu um 59,8 milljarða kr. frá fyrri mánuði. Innlendar eignir lækkuðu um 76,8 milljarða kr en erlendar eignir hækkuðu um 17 milljarða kr.

Jón Ásgeir hafnar frétt RÚV

Fréttastofu barst rétt í þessu athugasemd frá Jóni Ásgeiri Jóhannessyni þar sem hann hafnar framsetningu Svavars Halldórssonar fréttamanns í frétt um bresku verslunarkeðjuna Iceland Foods fyrr í kvöld.

Hrintu ekki áætlun Heiðars Más í framkvæmd

Félög Björgólfs Thors Björgólfssonar fóru ekki nema að litlu leyti að ráðum Heiðars Más Guðjónssonar um að byggja upp skortstöður á gjaldeyris- og hlutabréfamarkaði árið 2006. Þetta fullyrðir talsmaður Novators.

Spáði að bankahrun yrði 2007

Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri Novators spáði fyrir um það árið 2006 að bankarnir gætu ekki fjármagnað sig árið 2007.

Heiðar Már: Viðskiptavinirnir grunlausir um áhættu

Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi framkvæmdastjóri Novators, segir í minnisblaði sem hann kynnti fyrir bankaráði Landsbankans og Björgólfi Thor Björgólfssyni í ársbyrjun 2006 að viðskiptavinir bankanna séu almennt grunlausir og hafi lítið hugsað út í áhættuna sem fylgi því að krónan veikist.

Fjöldauppsagnir framundan á uppsjávarskipunum

Svo kann að fara að nokkur hundruð undirmönnum á svo nefndum uppsjávarskipum verði sagt upp á næstunni, þar sem margt bendir til að þau verði verkefnalaus alveg fram á næsta sumar.

Heiðar Már vildi taka skortstöðu í íslenskum hlutabréfum

Heiðar Már Guðjónsson, fjárfestir og fyrrverandi starfsmaður Novators, lagði til í minnisblaði í byrjun árs 2006 að fyrirtæki í eigu Björgólfs Thors byggðu upp 20 milljarða króna skortstöðu í íslenskum hlutabréfum til að bregðast við ójafnvægi í hagkerfinu og minnka áhættu.

Nýr framkvæmdastjóri Íslenska dansflokksins

Sigrún Lilja Guðbjartsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdarstjóri Íslenska dansflokksins. Sigrún Lilja er 42 ára hagfræðingur með Cand. Merc gráðu frá Viðskiptaháskólanum í Árósum.

Landsbankinn lokaður, nema í Austurstræti

Í tilefni kvennafrídagsins hefur Landsbankinn ákveðið að loka öllum útibúum bankans kl. 14 í dag, nema útibúinu við Austurstræti þar sem hefðbundin þjónusta verður veitt. Í tilkynningu frá bankanum segir að þar verði þó einungis karlar við afgreiðslu.

Sjá næstu 50 fréttir