Fleiri fréttir

Gengi krónunnar styrkist á óvenjulegum tíma

Gengi krónunnar hefur verið að styrkjast í morgun og stendur gengisvísitalan í 204,5 stigum í augnablikinu. Þetta er gengisstyrking upp á 0,6% frá því í gærdag. Hinsvegar ætti gengið að standa í stað eða jafnvel veikjast eins og málum er háttað.

Nafni Saga capital breytt

Nafni Saga Capital Fjárfestingarbanka hefur verið breytt og mun bankinn eftirleiðis heita Saga Fjárfestingarbanki.

Orkugjaldið orðið næsthæst hjá Orkuveitu Reykjavíkur

Svonefnt orkugjald, sem tekið er fyrir dreifingu á hverri kílówattsstund til notenda, er orðið næsthæst hjá Orkuveitu Reykjavíkur eftir gjaldskrárhækkun um síðustu mánaðamót, samkvæmt útreikningum Orkuvaktarinnar. Dreifing RARIK, eingöngu í dreifbýli, er aðeins hærri.

Ríkisskattstjóri skoðar 60 mál vegna söluréttasamninga

Um sextíu mál eru í vinnslu hjá Ríkisskattstjóra varðandi skattálagningu á söluréttasamninga og fer þeim fjölgandi. Lægsta endurákvörðunin í málunum nemur tugum milljóna en hæsta hálfum milljarði króna. Ríkisskattstjóri vann í dag í annað sinn mál fyrir héraðsdómi vegna samninganna.

Kröfu Bjarka Diego hafnað - áfrýjar til Hæstaréttar

Íslenska ríkið var sýknað af kröfu Bjarka H. Diego, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Kaupþingi, en hann höfðaði mál á hendur Ríkisskattstjóra vegna skattálagninga á söluréttarsamningum af hlutabréfum í Kaupþingi.

Fréttaviðtal: Útgerðin greiðir mikið til ríkisins

Adolf Guðmundsson, formaður LÍÚ, fór hörðum orðum um breytingar á aflamarkskerfinu, í ræðu sinni á aðalfundi samtakanna fyrir helgi. Hann sagði meðal annars að ef hugmyndir sjávarútvegsráðherra næðu fram að ganga, væri grundvöllur aflamarkskerfisins brostinn.

Skinney-Þinganes: 3,6 milljarðar í hagnað - 2,5 í afskriftir

Skinney-Þinganes hagnaðist um 3,6 milljarða króna í fyrra; en afskriftir hjá dótturfélagi námu tveimur og hálfum milljarði króna. Hagnaður sex stórútgerða í fyrra nam ríflega fjórföldum skattgreiðslum útgerðarinnar í heild.

Geir H. Haarde neitar að bera vitni

Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, neitaði að bera vitni í skaðabótamáli hlutdeildarskírteinishafa í peningarmarkaðssjóðum gegn Ríkissjóði Íslands en aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur dag.

Greining spáir 0,5 prósentustiga vaxtalækkun

Greining Íslandsbanka spáir 0,5 prósentustiga vaxtalækkun hjá Seðlabankanum á miðvikudag. Þetta er í takt við spá greiningar Arion banka en greining MP banka gerir ráð fyrir 0,75 prósentustiga lækkun.

Marel dregur úr áhættu gagnvart íslensku krónunni

Marel hefur ákveðið að bjóða eigendum skuldabréfaflokkanna MARL 06 1 og MARL 09 1 að endurkaupa þessi skuldabréf. Um er að ræða einu eftirstandandi skuldir félagsins í íslenskum krónum. Samtals er heildarvirði þessara skuldabréfa rúmir sex milljarðar kr. Með þessu ætlar Marel að draga úr gengisáhættu gagnvart íslensku krónunni.

Enn er framlengt í endurskipulagningu Farice

Eignarhaldsfélagið Farice ehf. og dótturfélag þess, Farice hf., vinna enn að fjárhagslegri endurskipulagningu félaganna í samvinnu stærstu kröfuhafa þeirra og hluthafa.

Reiknar með 0,75 prósentustiga vaxtalækkun

Greining MP Banka reiknar með því að á miðvikudaginn kemur muni peningastefnunefnd Seðlabankans ákveða að lækka vexti um 0,75 prósentustig. Þetta yrði í þrettánda sinn sem vextir lækka frá því að nefndin tók við vaxtaákvörðunarhlutverkinu fyrir hálfu öðru ári.

Eignarnám HS orku nánast út af borðinu

Ólíklegt er að starfshópur ríkisstjórnarinnar um eignar­hald á orkufyrirtækjum geti komist að þeirri niðurstöðu sem stjórnin lagði honum í hendur.

Tölvur og sjónvörp hafa lækkað í verði

Á sama tíma og tóbak hefur margfaldast í verði á síðustu árum eru tölvur og sjónvörp ódýrari í dag en fyrir áratug. Vísitala neysluverðs sem mælir verðbólgu hefur hækkað um 3,3% síðastliðna tólf mánuði. Undanfarna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 1% sem jafngildir 4% verðbólgu á ári.

Starfsmannastjórar sérfræðingar í innflytjendalöggjöf

Á sumum sviðum í íslensku atvinnulífi er svo mikill skortur á starfsfólki að starfsmannastjórar eru orðnir sérfræðingar í innflytjendalöggjöf og að taka á móti fólki inn í landið. Þetta segir Orri Hauksson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins.

Tapið gæti orðið enn meira

Formaður Landssamtaka lífeyrissjóða segir að sjóðirnir geti nýtt skuldajöfnun til að gera upp skuld vegna gjaldeyrisvarnarsamninga. Nettótap verði um 30 milljarðar. Hann neitar því alfarið að sjóðirnir hafi verið í braski.

Á sjöunda tug misstu vinnuna

Alls var 64 sagt upp hjá tveimur fyrirtækjum á Vestfjörðum í gær. Fiskvinnslu­fyrirtækið Eyraroddi á Flateyri sagði upp öllum 42 starfsmönnum fyrirtækisins, og 22 til viðbótar var sagt upp hjá jarðverktakafyrirtækinu Ósafli í Bolungarvík.

Meira flutt bæði inn og út

Vöruskipti voru hagstæð um 10,6 milljarða króna í september. Fluttar voru út vörur fyrir 49,7 milljarða og inn fyrir rúma 39 milljarða. Sama mánuð í fyrra voru vöruskipti hagstæð um tæpa 9,5 milljarða á sama gengi.

Freista þess að aflétta gjaldeyrishöftum

Seðlabankinn og Samtök iðnaðarins hafa sett af stað prófverkefni til að aflétta gjaldeyrishöftunum og verður milljörðum í aflandskrónum hleypt í fjárfestingu á Íslandi. Viðskiptaráðherra segir þetta skref í átt að varanlegu afnámi haftanna.

Aðstæður kalla á lækkun stýrivaxta

Efnahagsaðstæður kalla á 0,75 prósentustiga lækkun stýrivaxta, að mati Landsbankans. Peningastefnunefnd Seðlabankans tekur ákvörðun um stýrivexti næstkomandi miðvikudag.

Skýrsla Ríkisendurskoðunar gagnrýnd

„RES Orkuskóli hefur ýmislegt við skýrslu Ríkisendurskoðunar um RES Orkuskólann að athuga,“ segir í Guðjón Guðjón Steindórsson, framkvæmdarstjóri skólans í tilkynningu. Hann segir starfi RES Orkuskólans stefnt í tvísýnu en óvissa ríkir um fjárhagslegan og faglegan rekstrargrundvöll skólans.

Hagar högnuðust um 470 milljónir

Hagnaður Haga á tímabilinu mars - ágúst á þessu ári nam 470 milljónum króna, samkvæmt árshlutauppgjöri sem barst fjölmiðlum nú siðdegis. Hagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skattanam 2.416 milljónum króna. Heildareignir samstæðunnar námu 24.324 milljónum króna í lok tímabilsins og eru 10-11 verslanirnar ekki inni í þeirri tölu.

Enn fleiri uppsagnir á Vestfjörðum

Jarðverktakafyrirtækið Ósafl tilkynnti á starfsmannafundi í hádeginu í dag að öllu starfsfólki fyrirtækisins yrði sagt upp störfum frá og með 1.nóvember næst komandi. Eins og greint var frá á Vísi í dag sagði fiskvinnslan Eyraroddi líka upp 42 mönnum. Því hefur rúymlega sextíu manns á Vestfjörðum verið sagt upp störfum í dag.

Rúmlega 9 milljarða viðskipti með skuldabréf

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI hækkaði um 0,5% í dag í 9,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt hækkaði um 0,5% í 3,4 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,6% í 5,5 ma. viðskiptum. Samtals hækkaði GAMMA: GBI um 0,3% í vikunni, GAMMAi: Verðtryggt um 0,5% en GAMMAxi: Óverðtryggt lækkaði um -0,2%. Meðal dagsvelta í vikunni var 12,6 ma., þar af 4,7 ma. með verðtryggt og 7,9 ma. með óverðtryggt.

Öllu starfsfólki Eyrarodda sagt upp

Öllu starfsfólki fiskvinnslufyrirtækisins Eyrarodda hf., á Flateyri var sagt upp störfum í dag. Um er að ræða 42 starfsmenn. Uppsagnirnar taka gildi nú um mánaðarmótin. Ástæða uppsagnanna er fyrst og fremst viðvarandi hráefnisskortur og erfiðleikar í rekstri sem af þeim skorti leiðir, að því er segir í tilkynningu frá fyrirtækinu sem vísað er til á fréttavefnum BB.is.

GAMMA: Vaxtakostnaður dýrkeyptur fyrir ríkissjóð

„Að okkar mati leiða háir vextir Seðlabankansbankans til aukins þrýstings á krónuna þar sem útlendingar hafa haldið á bilinu 400-600 milljörðum kr. í skammtímaeignum í krónum sem hafa hlaðið upp á sig vöxtum og þar með ýtt undir vandann við að losa gjaldeyrishöftin.“

Rólegt á fasteignamarkaði í borginni

Fjöldi þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu 22. október til og með 28. október 2010 var 55. Þar af voru 42 samningar um eignir í fjölbýli, 11 samningar um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 1.392 milljónir króna og meðalupphæð á samning 25,3 milljónir króna.

Hlutur Íslandsbanka í Sjóklæðagerðinni til sölu

Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka hf. hefur verið falið að annast formlegt og opið söluferli sem lýtur að mögulegri sölu á þriðjungshlut Íslandsbanka í Sjóklæðagerðinni hf., en fyrirtækið er að meirihluta í eigu EGUS Inc. Sjóklæðagerðin framleiðir m.a. 66 North fatnaðinn.

Skuldatryggingaálag Íslands helst stöðugt

Skuldatryggingaálag á evruskuldir Ríkissjóðs Íslands til 5 ára hefur haldist undir 300 punktum frá því um miðjan október. Í lok dags í gær stóð álagið í 280 punktum (2,80%) samkvæmt gögnum úr Bloomberg-fréttaveitunni.

Icesave-skuldin fer líklega ekki yfir 75 milljarða

Nýjustu upplýsingar benda til að heildarupphæð sem ríkissjóður þarf að greiða vegna Icesave-reikninga Landsbankans verði 5 prósent af landsframleiðslunni eða 75 milljarðar króna. Þetta kom fram í máli seðlabankastjóra í gær. Engir samningar hafa enn litið dagsins ljós.

Ríkið hætti stuðningi við RES Orkuskóla eða yfirtaki hann

Óvissa ríkir um fjárhagslegan og faglegan rekstrargrundvöll RES Orkuskólans. Ríkisendurskoðun telur að stjórnvöld eigi um tvennt að velja: Annaðhvort að hætta stuðningi við skólann eða yfirtaka starfsemina. Brýnt er að ákvörðun verði tekin sem fyrst. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Ríkisendurskoðunnar sem birt er á vefsíðu hennar.

Vill leggja sæstreng fyrir 450 milljarða

Heiðar Már Guðjónsson segist hafa setið fund með Landsvirkjun þar sem hann tjáði forsvarsmönnum fyrirtækisins að hann væri í sambandi við tvo aðila sem væru áhugasamir um lagningu sæstrengs fyrir Landsvirkjun.

Afgangur af vöruskiptum eykst um 26 milljarða

Vöruskiptajöfnuður var jákvæður um 10,6 milljarða króna í september. Fluttar voru út vörur fyrir 49,7 milljarða króna en fluttar voru inn vörur fyrir tæpa 39,1 milljarð. Í september í fyrra voru vöruskiptin hagstæð um tæpa 9,5 milljarða króna.

Aflaverðmætið hefur aukist um 18,8% milli ára

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam rúmum 79 milljörðum króna á fyrstu sjö mánuðum ársins 2010 samanborið við tæpa 67 milljarða á sama tímabili 2009. Aflaverðmæti hefur því aukist um 12,5 milljarða eða 18,8% á milli ára.

Meiri loðna margra milljarða búbót

Þjóðarbúið gæti átt von á átta milljarða króna búbót með næstu loðnuvertíð eftir að mælingar sýndu betra ástand loðnustofnsins en verið hefur undanfarin ár.

Um 7 milljarða viðskipti með Gamma

Skuldabréfavísitalan GAMMA: GBI lækkaði lítillega í dag í 7,1 ma. viðskiptum. GAMMAi: Verðtryggt lækkaði um 0,2% í 0,3 ma. viðskiptum og GAMMAxi: Óverðtryggt hækkaði um 0,5% í 5,7 ma. viðskiptum.

Reiknar með stöðugri krónu fram að áramótum

Gjaldeyrishöftin og talsverður afgangur af vöruskiptum við útlönd eru meðal þeirra þátta sem valda því að greining Íslandsbanka reiknar með tiltölulega stöðugri krónu það sem eftir lifir árs.

Sjá næstu 50 fréttir