Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Byggingakostnaður minnkar Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan desember 2010 er 100,8 stig sem er lækkun um 0,1% frá fyrri mánuði. 20.12.2010 09:10
Kaupmáttur launa eykst lítillega milli mánaða Vísitala kaupmáttar launa í nóvember 2010 er 107,3 stig og hækkaði um 0,1% frá fyrri mánuði. Síðustu tólf mánuði hefur vísitala kaupmáttar launa hækkað um 2,0%. 20.12.2010 09:08
Seðlabankinn birtir skýrslu um peningastefnuna Seðlabanki Íslands hefur birt skýrslu um peningastefnu hér á landi og afhent hana efnahags- og viðskiptaráðherra. Í skýrslunni er gerð grein fyrir helstu sjónarmiðum er varða framtíðarfyrirkomulag gengis- og peningamála. 20.12.2010 08:53
Nauðungarsölur fasteigna meir en tvöfaldast milli ára Í lok nóvember 2010 höfðu 425 fasteignir verið seldar nauðungarsölu hjá Sýslumanninum í Reykjavík á árinu. Þetta er meir en tvöföldun á fjölda nauðungarsalna á fasteignum miðað við sama tímabil í fyrra en þá voru þær 207 talsins í lok nóvember. 20.12.2010 08:36
Actavis vill kaupa pólskt lyfjafyrirtæki Actavis er meðal áhugasamra kaupenda að pólska lyfjafyrirtækinu Polfa. Samkvæmt frétt Bloomberg fréttaveitunnar mun Actavis berjast við fjögur önnur lyfjafyrirtæki um kaupin. 20.12.2010 08:01
Dráttarvextir komnir niður í 11,5% Seðlabankinn hefur lækkað dráttarvexti um eina prósentu og eru þeir því komnir niður í 11.5%. Þessir vextir fóru hæst í 26,5% í lok ársins 2008 eða skömmu eftir bankahrunið. 20.12.2010 07:45
Landsvirkjun hefur enn ekki fengið lán i Búðarháls Fjárfestingarbanki Evrópu frestar því enn að afgreiða lán til Búðarhálsvirkjunar. Forstjóri Landsvirkjunar segir ljóst að Icesave sé að tefja málið. Fyrir vikið fá bormenn Ístaks ekki jólagjöfina sem þeir höfðu óskað sér. 19.12.2010 19:31
Umfangsmiklar skattahækkanir ákveðnar Fjármagnstekjuskattur og tekjuskattur fyrirtækja hækkar í 20% og erfðafjárskattur tvöfaldast, en lög þessa efnis voru samþykkt á Alþingi í gær. Alls er talið að skattahækkanir skili ríkissjóði rúmum 10 milljörðum á næsta ári. 19.12.2010 18:30
Til áréttingar vegna Icesave fréttar Vegna fréttar okkar í gær um forgangsrétt á greiðslum úr þrotabúi Landsbankans skal árétta að Ragnar Hall, hæstaréttarlögmaður, benti á galla á eldra Icesave samkomulagi sem skrifað var undir í júní 2009. 19.12.2010 16:59
Réttur til atvinnuleysisbóta lengdur í fjögur ár Alþingi hefur samþykkt breytingu á lögum um atvinnuleysistryggingar sem lengir rétt fólks til atvinnuleysisbóta tímabundið um eitt ár, úr þremur árum í fjögur. 19.12.2010 10:48
Íslenskir dómstólar skera úr um forgangsrétt á greiðslum Tekist verður á um það fyrir dómstólum hvort Íslendingar njóti forgangsréttar á greiðslum úr þrotabúi Landsbankans. Bretar og Hollendingar eiga um helming af kröfum í þrotabúið á móti íslenska ríkinu. 18.12.2010 18:27
Mikið af loðnu fyrir norðan Skip HB Granda hafa veitt 3.300 tonn það sem af er loðnuvertíðinni. Mikið er af loðnu fyrir norðan land að sögn skipstjóra. Aflanum hefur verið landað til vinnslu á Vopnafirði. Um 700 tonn hafa verið unnin til manneldis en um 2.600 tonn hafa farið til framleiðslu á fiskmjöli og -lýsi. 18.12.2010 06:30
Landsvirkjun fjárfestir fyrir 1,5 milljarð á Norðausturlandi Landsvirkjun áformar að fjárfesta fyrir 1,500 milljónir íslenskra króna í verkefnum á Norðausturlandi á næsta ári samkvæmt fjárhagsáætlun fyrirtækisins sem samþykkt var á fundi stjórnar Landsvirkjunar í dag. 17.12.2010 17:59
Milljónasta áltonnið framleitt á Reyðarfirði Milljónasta tonnið var framleitt í álveri Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði í vikunni, en framleiðsla hófst í álverinu í apríl 2007. Verðmæti milljón tonna af áli eru um 265 milljarðar króna miðað við álverð á markaði og gengi dollarans nú, en verðmæti útfluttra afurða frá Fjarðaáli frá upphafi nemur um 260 milljörðum króna. 17.12.2010 15:27
Málskostnaður slitastjórnar í New York 375 milljónir Slitastjórn Glitnis banka segir að kostnaður við málssókn gegn fyrrum hluthöfum og stjórnendum Glitnis fyrir dómstóli í New York nemi nú 375 milljónum króna. Heildarkostnaður þrotabúsins vegna rannsókna til að endurheimta fé nemur 1,2 milljörðum króna. 17.12.2010 15:23
Spá því að verðbólgumarkmið Seðlabankans náist á árinu IFS Greining spáir því að verðbólgumarkmið Seðlabanka Íslands náist fyrir árslok en spá fyrirtækisins gerir ráð fyrir að verðbólgan á 12 mánaða tímabili lækki úr 2,6 prósentum og í 2.5 prósent í desember. Hagstofan mun birta niðurstöður sínar úr mælingu á vísitölu neysluverðs á miðvikudaginn í næstu viku. IFS gerir hinsvegar ráð fyrir að verðbólgan hækki úr 3,2 prósentum í 4,8 prósent á þriggja mánaða tímbabili. 17.12.2010 14:40
Spáir því að íbúðaverð hækki um 10% næstu tvö árin Greining Íslandsbanka spáir því að íbúðaverð muni hækka um 10% að nafnverði næstu tvö árin. Þetta kemur fram í Morgunkorni greiningarinnar þar sem fjallað er um nýjar tölur Þjóðskrár Íslands um að íbúðaverð í borginni hafi lækkað um 0,1% milli október og nóvember. 17.12.2010 13:03
Starf forstjóra OR auglýst um helgina Starf forstjóra Orkuveitu Reykjavíkur (OR) verður auglýst laust til umsóknar í dagblöðum nú um helgina. 17.12.2010 11:14
Losa þarf Álftanes við 4,1 milljarðs skuldbindingar Fjárhaldsstjórn Álftanes hefur skilað af sér skýrslu um fjárhag sveitarfélagsins og lausnir á þeim vanda sem sveitarfélagið er í. Þar kemur m.a. fram að losa þurfi sveitarfélagið við skuldbindingar upp á 4,1 milljarð kr. og jafnframt að setja þurfi a.m.k. 5% álag á útsvar íbúa Álftanes fram til ársins 2014. 17.12.2010 10:43
Eignir tryggingafélaga lækka um hálfan milljarð Heildareignir tryggingarfélaga námu 135,5 milljörðum kr. í lok október og lækkuðu um 540 milljónir kr. á milli mánaða. 17.12.2010 09:28
Nýjum bílum fjölgar mest hér og á Írlandi Hlutfallsaukning nýrra bíla hér á landi á þessu ári er með því mesta sem gerist meðal landa á Evrópska efnahagssvæðinu (EES) og hátt yfir meðaltali sem hljóðar upp á 5,1 prósents samdrátt milli ára. Þetta má lesa út úr nýjustu tölum ACEA, samtaka evrópskra bílaframleiðenda. 17.12.2010 08:00
Lítil breyting í þróun íbúðaverðs í borginni Lítil breyting varð í þróun íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu í nóvember. Samkvæmt nýjum tölum frá Þjóðskrá Íslands hækkaði vísitala íbúðaverðs í borginni um 0,1% milli mánaða. 17.12.2010 07:20
OR aflar sér 5 milljarða með skuldabréfaútgáfu Orkuveita Reykjavíkur (OR) hefur lokið sölu skuldabréfa í útboði að fjárhæð 5 milljarðar króna. Bréfin voru seld til innlendra fagfjárfesta. Fyrirtækið vinnur áfram að fjármögnun langtímaverkefna innan lands og utan. 17.12.2010 07:00
Eignarhald erlendis ekki gefið upp Eignir Íslendinga í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum námu rúmum 873 milljörðum króna í lok síðasta árs, samkvæmt svari Árna Páls Árnasonar, efnahags- og viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar. 17.12.2010 06:30
Gagnaverin samkeppnishæf Þingmenn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna hafa náð samkomulagi um að leggja til veigamiklar breytingar á frumvarpi fjármálaráðherra um virðisaukaskatt. Breytingarnar eru forsenda þess að gagnaver hér á landi verði samkeppnishæf við gagnaver í ríkjum Evrópusambandsins. 17.12.2010 06:30
Kærir málið til ríkissaksóknara Jóhann Páll Símonarson og fimm aðrir sjóðsfélagar í lífeyrissjóðnum Gildi hafa kært þá ákvörðun sett saksóknara efnahagsbrota til ríkissaksóknara að hætta við rannsókn á háttsemi stjórnar og starfsmanna lífeyrissjóðsins í aðdraganda bankahrunsins. 17.12.2010 06:00
Bjóða í verk í Noregi vegna verkefnaskorts á Íslandi Óvissa er með verkefni á vegum Íslenskra aðalverktaka (ÍAV) annað en reytingur smáverkefna þegar framkvæmdum við tónlistarhúsið Hörpu í Reykjavík lýkur í maí á næsta ári. Þungt hljóð mun vera í mörgum starfsmönnum. Um 450 manns á vegum ÍAV og undirverktaka hafa unnið við byggingu tónlistarhússins upp á síðkastið. 17.12.2010 06:00
Botnfiskafli sá sami á milli ára Afli íslenskra skipa í nóvember nam alls 83.811 tonnum samanborið við 85.698 tonn í sama mánuði í fyrra. 17.12.2010 04:30
Fóður til lífrænnar ræktunar Vottunarstofan Tún hefur staðfest að fyrirtækið Bústólpi ehf. uppfylli kröfur um lífrænar aðferðir við framleiðslu á kjarnfóðri. Bústólpi er fyrsta sérhæfða kjarnfóðurfyrirtækið hér á landi sem hlýtur vottun til lífrænnar framleiðslu á kjarnfóðri. 17.12.2010 04:00
Um 14 þúsund færri störf Samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands fór fjöldi þeirra sem starfa á innlendum vinnumarkaði mest í 183.800 einstaklinga á þriðja ársfjórðungi 2008 en hefur minnkað síðan. Þetta kemur fram í svari Guðbjarts Hannessonar, félags- og tryggingamálaráðherra, við fyrirspurn Vigdísar Hauksdóttur, þingmanns Framsóknarflokks, sem vildi vita hversu mörgum störfum hefði fækkað hér á landi árin 2008 og 2009 og það sem af er þessu ári. 16.12.2010 22:30
Sérstakur saksóknari fær öll gögn Undirréttur í Lúxemborg hefur úrskurðað að afhenda skuli sérstökum saksóknara öll gögn sem aflað var með húsleitum í Banque Havilland fyrr á árinu. Bankinn og fyrirsvarsmenn 19 félaga hafa kært úrskurðinn til Hæstaréttar. 16.12.2010 19:19
Tveimur núllum ofaukið í svari efnahags- og viðskiptaráðherra Það skeikaði tveimur núllum í svari efnahags- og viðskiptaráðherra við fyrirspurn Marðar Árnasonar, þingmanns Samfylkingarinnar, um eign Íslendinga í sjávarútvegsfyrirtækjum erlendis. Fram kom í svarinu sem birtist á vef Alþingis í gær, og Vísir sagði frá, að eign Íslendinga í erlendum sjávarútvegsfyrirtækjum næmi tæpum 900 milljörðum króna. 16.12.2010 15:12
Mosfellsbær þarf að auka tekjur um 240 milljónir Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar fyrir árið 2011 var lögð fram til fyrri umræðu í bæjarstjórn í gær. Megináherslur hennar eru að standa vörð um grunn- og velferðarþjónustu Mosfellsbæjar en jafnframt að skila hallalausum rekstri. 16.12.2010 14:14
Heildarskuldir Vesturbyggðar nema 1300 milljónum Fjárhagsáætlun Vesturbyggðar og stofnanir sveitarfélagsins fyrir árið 2011 var samþykkt í gær á fundi bæjarstjórnar. „Að frumvarpinu stendur bæjarstjórnin öll en einnig var íbúum boðið að koma að gerð fjárhagsáætlunarinnar,“ að því er fram kemur í tilkynningu. Þá er bætt við að ríflega 10% íbúa sveitarfélagsins hafi tekið þátt í þeirri vinnu og að þrátt fyrir erfiða stöðu sé bæjarstjórn bjartsýn á framtíð sveitarfélagsins enda sé atvinnuástand í Vesturbyggð mjög gott. Heildarskuldir sveitarfélagsins nema hinsvegar 1300 milljónum króna en í Vesturbyggð búa tæpelga þúsund manns. 16.12.2010 13:35
Ísland hrapar niður listann yfir mestu verðbólgulöndin Verðbólgan hér á landi var 3,8% í nóvember samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs sem Hagstofa Evrópusambandsins (e. Eurostat) tekur saman og birti nú í morgun. Minnkar því verðbólgan um 0,8 prósentustig milli mánaða en hún var 4,6% hér á landi í október samkvæmt vísitölunni. Íslæand hrapar niður listan yfir Evrópulönd með mesta verðbólgu. 16.12.2010 11:29
Formsatriði tefja endurskipulagningu Icelandair Ekki hefur enn tekist að ganga frá formsatriðum við endurskipulagningu Icelandair og tefst endurskipulagingin því fram að janúarlokum á næsta ári. 16.12.2010 11:18
NSA kaupir rúmlega 30% hlut í Transmit Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins (NSA) hefur undirritað samning um kaup á 30,6% hlut í hugbúnaðarfyrirtækinu Transmit ehf. Markmið eigenda félagsins er að Transmit verði leiðandi á sviði hugbúnaðar fyrir umsýslu rafræns markaðsefnis fyrirtækja. 16.12.2010 10:29
Greining spáir óbreyttri verðbólgu í desember Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) muni hækka í desember um 0,5% frá nóvembermánuði. Gangi spáin eftir verður verðbólgan 2,6% í mánuðinum og óbreytt frá nóvember. 16.12.2010 09:58
Norðmenn opna olíuleitarsvæði á Jan Mayen-hrygg Norska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hefja undirbúning að opnun hafsvæðisins á Jan Mayen-hrygg fyrir olíuleit. 16.12.2010 09:33
Héraðsdómur hafnaði kröfu FME á hendur Landsbanka Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað kröfu Fjármálaeftirlitsins (FME) á hendur Landsbankanum. 16.12.2010 09:15
Félag Kristjáns skuldar rúma tvo milljarða Eignarhaldsfélagið 7 hægri, einkahlutafélag Kristján Arasonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra viðskiptabankasviðs hjá Kaupþingi, var úrskurðað gjaldþrota í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku. Lánasamningar félagsins eru allir í erlendri mynt og nema 2,1 milljarði króna. 16.12.2010 08:00
Reikna með 84 prósenta heimtum Slitastjórn Kaupthing Singer & Friedlander (KSF), banka Kaupþings í Bretlandi, hefur greitt kröfuhöfum 45 prósent af kröfum í bú bankans. Reiknað er með að endurheimtur muni nema á milli 78 og 84 prósentum. Þetta kemur fram í skýrslu til kröfuhafa frá lögfræðingum Ernst & Young í Bretlandi sem stýra slitum á KSF. 16.12.2010 06:00
ÍSAL er lykileign í safni Rio Tinto Tom Albanese, forstjóri fjölþjóðlega náma- og málmvinnslufyrirtækisins Rio Tinto, afhenti í gær álveri Rio Tinto Alcan í Straumsvík öryggisviðurkenningu samstæðunnar. Álverið er fyrst fyrirtækja Alcan, sem Rio Tinto keypti árið 2007, til þess að fá slík verðlaun. Með endursamningum um orkuverð fyrr á árinu jókst kostnaður álversins hér. Á móti kemur rekstraröryggi til langs tíma, segir forstjórinn. 16.12.2010 06:00
Gömlu eigendurnir eignast helming á ný Karl Þráinsson, forstjóri Íslenskra aðalverktaka (ÍAV), og Gunnar Sverrisson framkvæmdastjóri hafa hvor um sig keypt 25 prósenta hlut í ÍAV. Þeir voru meðal aðaleigenda ÍAV sem misstu hlut sinn til kröfuhafa í fjárhagslegri endurskipulagningu í mars. Hinn helminginn á svissneska verktakafyrirtækið Marti Contractors, sem yfirtók verktakahluta ÍAV í mars síðastliðnum. 16.12.2010 06:00
Hraða úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja Víðtækt samkomulag hefur náðst um leiðir við úrvinnslu skuldamála lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að því standa efnahags- og viðskiptaráðuneytið, Félag atvinnurekenda, fjármálaráðuneytið, Samtök atvinnulífsins, Samtök fjármálafyrirtækja og Viðskiptaráð Íslands. Skrifað var undir samkomulagið síðdegis í dag í Rúgbrauðsgerðinni. 15.12.2010 15:29